Vikan - 11.09.1969, Qupperneq 6
Ástir frumstæðra þjóða
klám?
Pósturinn, Vikan:
Er ekki gefið út nóg af klám-
bókmenntum á íslandi, svo þið
séuð ekki að bætast í þann hóp
með þessum andstyggilega grein-
arflokki um „Ástir frumstæðra
þjóða“? Mér finnst það fyrir neð-
an allar hellur að virðulegt blað
eins og VIKAN sé að tína til
svona óþverra. Ég skora á ykk-
ur að hætta strax að birta þetta;
ég hef hugsað um að segja blað-
inu upp af þessum sökum.
Sælir.
Gestur Pétursson.
Mér þykir fyrir því, Gestur
minn, en ég er alls ekki á sama
máli og þú. I»að sem nú er kom-
ið af þessum greinarflokki finnst
mér einstaklega skemmtilegt og
fræðandi efni. Og hvað er svona
klámfengið við það? Mér finnst
hugsanagangur þinn bera bara
þó nokkurn keim af miðöldum.
Og ein enn....
Kæri Póstur!
Þannig er mál með vexti að
ég er mjög hrifin af strák sem
ég þekki lítið. Hann er fjórum
árum eldri en ég og er með ann-
arri stelpu. Hvort á ég að tjá
honum ást mina eða hætta að
hugsa um hann. Mér finnst hann
alveg draumur.
Ein feimin, 15 ára.
P.S. Hvemig er skriftin?
Hætta að hugsa um hann. Hver
veit nema hann ætli að giftast
—■ eða trúlofast, sem er víst
nokkurn veginn það sama nú á
dögum — þessari stelpu, sem
hann er með?
P.S. Sæmileg.
Roof Tops
Kæri Póstur!
Við erum hér tvær vinkonur
og okkur langar mikið til að fá
að vita eitthvað um Svein Guð-
jónsson og bróður hans; þá sem
eru í ROOF TOPS. Okkur lang-
ar til dæmis að vita hvað bróð-
ir Sveins heitir, hvað þeir eru
gamlir og svo framvegis. Eða
gætuð þið ekki birt grein um
alla strákana í ROOF TOPS?
Og eitt enn: Hvers vegna
fengu krakkar, yngri en 18 ára
ekki aðgang að POP HÁTÍÐ-
INNI í Klúbbnum? Við héldum
þó að pop væri aðallega fyrir
unglinga ’ 14—18 ára, en ekki
hálf fullorðið fólk. Það er ekki
lengur Pop-hátíð, heldur fyllirí-
issamkoma, þegar fólk á þessum
aldri, 18 ára og eldri, er saman
komið einhvers staðað. — Þó
krakkar 14—16 ára hafi vín um
hönd, þá er það oftast ekki mik-
ið og áhrifin þá ýkt all verulega.
Þá er ekki fleira að sinni.
Hrönn Sigurðardóttir,
Ingunn Þórðardóttir.
Bróðir Sveins heitir Gunnar, og
allir piltamir eru um og yfir tvi-
tugt. VIKAN hefur oft birt
myndir og greinar um þessa
ágætu hliómsveit: í 20., 26. og
28. tbl. 1969.
Ástæðan fyrir því að þið
fenguð ekki að fara inn á Pop-
hátíðina í Klúbbnum, var sú, að
það er bannað með íslenzkum
lögum að unglingar innan 18
ára aldurs sæki vínveitingahús.
Og hver segir að þeir sem eru
eldri en 18 ára megi ekki hafa
áhuga á poppi? Pop er músik en
ekki aldursflokkur, og amma
Póstsins hefur ákaflega gaman
af þeirri músik.
Sú fullyrðing ykkar að Pop-
hátíðin, og fleiri samkomur af
slíku tagi séu fylliríssamkomur,
er hreinasti barnaskapur, og þar
að auki eiga 14—16 ára krakkar
ekki að hafa vin um hönd —
jafnvel þó það sé „oftast ekki
mikið, og áhrifin þá ýkt all
verulega.“
Ef ykkur liggur eitthvað fleira
á hjarta, þá er Pósturinn tilbú-
inn að svara því — svo framar-
lega sem það er rökrétt!
StnnHakirkia
Kæri Póstur!
Mig langar svo til að biðja þig
um að segja mér hvert maður á
að senda þá peninga sem maður
heitir á Strandakirkju. Eg hét
nefnilega að gamni mínu á kirkj-
una, því ég hélt að það væri
ómögulegt að það rættist. En
FYRSTIR með STÆRRA rými
320 lítra DJUP-
FRYSTIRINN
STÆRRA geymslurými
miðað við utanmál.ryð-
frír, ákaflega öruggur í
notkun, fljótasti og bezti
djúpfrystirinn.
KPS-djúpfryst er
örugglega djúpfryst.
Eigum einnig frystiskápa 180, 220, 330 lítra. —
Sölustaðir í Reykjavík:
Einar Farestveit & Co. hf., Bergstaðastræti 10 A, sími 16995 og
Baldur Jónsson sf., Hverfisgötu 37, sími 18994.
r
Þér sparið meö éskriít
VIKAN
Skipholtl 331’- slml 35320
v_________________________________/
MIÐA
PREIMTUIM
Takiö upp hina nýju aðferö og
látiö prenta alls konar aðgöngu-
miða, kontrolnúmer, tilkynning-
ar, kvittanir o.fl. á rúllupappír.
Höfum fyrirliggjandi og útvegum
með stuttum fyrirvara ýmis konar
afgreiðslubox.
LEITIÐ UPPLVSINGA
HILMIR HF
SKIPHOLTI 33 - SlMI 35320
L___________________7
6 VIKAN
37. tbl.