Vikan


Vikan - 11.09.1969, Qupperneq 10

Vikan - 11.09.1969, Qupperneq 10
Það var að loknum blaðamanna- fundi í Ameríska bókasafninu að mér tókst að króa hann af og spjalla stundarkorn við hann einan. Bill Anders er þægilegur og dæmigerður ameríkani. Bæði í út- liti og hugsunarhætti; hefur trölla- trú á tæknilegu ofurvaldi fóstur- lands síns, burstaklipptur í stutt- erma skyrtu. Svör hans eru hnit- miðuð og nákvæm, þannig að í því felst allt sem máli skiptir i sam- bandi við það sem spurt er um, og hann veit upp á hár hvernig hann á að bregðast við hinum ýmsu spurningum sem fyrir hann eru lagðar. Hann veit hvað hann á að segja og hvað hann má segja, fljótt og vel. Anders var hér fyrir 10—11 ár- um síðan, er hann þjónaði fóstur- landinu í 13 mánuði á Keflavíkur- flugvelli sem orrustuflugmaður. „Það fyrsta sem mér datt í hug," segir Anders, „þegar mér var til- kynnt að ég ætti að fara til Islands, var að fara út og kaupa einhver lifandis býsn af ullarfatnaði, því mér fannst það hljóma heldur kuldalega að fara til Islands. En þegar ég svo kom hérna komst ég að því, að það eina sem ég þurfti bráðnauðsynlega að hafa var regn- kápa. En mér leizt vel á landið um leið og ég kom hér. Daginn sem ég kom var ákaflega gott veður, sól og blíða um mitt sumar. Um kvöld- ið ætlaði ég svo að fara að sofa,- klukkan var að verða 12, svo mér fannst það alls ekki svo galin hug- mynd. En ég var ekki búinn að draga sænginga upp fyrir haus þegar ég heyrði einhverja hefja „baseball"-keppni beint fyrir utan gluggann minn, svo ég svaf ekki mikið þá nóttina. Birtan háði mér líka töluvert, og ég beið þangað til næsta morgun eftir því að sólin settist. Það fyrsta sem ég gerði svo þegar ég fór á fætur var að fara og verða mér úti um svört gluggatjöld." Hann hlær og starir svo fjarrænt út í bláinn smástund. Ég þarf ekki að spyrja um hvað hann er að hugsa-. Omurlegt landslagið á Reykjanesinu, bjartar sumarnætur á íslandi og hve honum fannst í raun- inni tilkomulitið í upphafi að vera látinn dvelja hér í heila 13 mán- uði. „En hvernig likaði þér þá við fólkið?" spyr ég. „AAér fannst fólkið á íslandi nokkuð margbreytilegt. í þá daga var samkomulagið á milli Islend- inga og hermannanna á Keflavíkur- flugvalli því miður ekki upp á sitt bezta — ekki nærri því eins gott og núna. Ég kvnntist þannig fólki sem var ákaflega vingjarnlegt og öðru sem var akkúrat á hinn veginn. Strax í upphafi einsetti ég mér að reyna að ferðast örlítið um land:ð og reyna að kynnast fólkinu sem átti að „hýsa" mig í heilt ár — hvort sem mér líkaði betur eða verr. Því miður var töluverður fjöldi hermanna á Keflavíkurflug- velli sem annaðhvort vildi ekki fara af vellinum eða þá að þeir höfðu ekki leyfi til þess, og þeir vissu í rauninni ekkert um landið. En á þennan hátt komst ég að því, að inn við beinið eru Islend- ingar mjög líkir Ameríkönum, þeir eru mannlegar verur og ég gat lif- að í sátt og samlyndi við þá. Og er kom að því, að ég skyldi halda heim á leið, var mér farið að þykja ákaflega vænt um landið og íbúa þess. Vissulega hef ég eignazt vini hér; ég er til dæmis hér nú til að heimsækja einn þeirra, Peter Gúd- múndsson, flugvallarstjóra. Við höf- um skrifazt á síðan ég fór héðan, og ég hef heimsótt hann tvisvar sinnum og við höfum rennt fyrir dýrlegan íslenzkan lax. Eins hlakka ég alltaf til að sjá vísindamennina sem voru með geimfarahópnum þegar við vorum hér, og við send- um línur á milli alltaf öðru hvoru." „Hverjir voru bernskudraumar þínir? Var það alltaf stóri draumur- inn að komast til tunglsins?" „Nei. í þá tíð virtist það alls Hlægilegt að menn skuli ekki geta komið sér saman á þessari litlu kúlu, jörðinni. 10 VIKAN 37 tbl i

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.