Vikan


Vikan - 11.09.1969, Side 28

Vikan - 11.09.1969, Side 28
LÍF í TUSKUNUM HJÁ NICE Brezka hljómsveitin Nice er þekkt fyrir líflega sviðsfram- komu. Mesti fjörkálfurinn er organistinn Keith Emerson. Hefur bægslagangur hans á sviðinu jafnvel vakið ugg þeirra, sem höfðu ekki áður haft spurnir af hinum glæfra- legu tiltækjum hans. Er hann einkurn frægur eða alræmdur fyrir það tiltæki sitt að veifa rýtingi framan í áheyrendur og fremja með honum hinar ólíklegustu kúnstir, eins og t.d. að, reka hann með látum ofan í nótnaborð orgelsins. Einnig þykir honum sport í að þeyta vopninu í hina risa- vöxnu magnara hljómsveitar- innar. Eru þeir að vonum orðnir harla ósjálegir eftir illa meðferð. Þó fer fyrst að hitna í kolunum, þegar hljómsveit- in leikur lagið „America“ úr West Side Story. Hefur það lag lengi verið síðasta númer- ið á efnisskránni hjá Nice, ANDRÉS INDRIÐASON rm&timl JTLmI ImmmMl mSm þegar þeir hafa komið fram á hljómleikum. I þessu lagi mæðir mest á orgelinu enda er það á fleygiferð um sviðið, slíkur er aðgangurinn hjá vini vorum Emerson. I lok lagsins dregur þó fyrst til tíð- inda: Emerson rótar í innyfl- um hljóðfæris síns, og þá fyrst fer áheyrendum að hætta að standa á sama, þegar eldglær- ingar gjósa upp og brak í leiðslum og aðskiljanlegum vírum, verður að háværum drunum. En hvað er maður- inn að óskapast? Jú, það kem- ur brátt í Ijós. Hann er að seilast í bandaríska fánann, sem er geymdur í hljóðfærinu. En ekki er sagan búin, þegar fáninn er fundinn. Þá er eftir það atriði, sem þeir sveinar í Nice líta á sem hápunktinn. Eldur er borinn að fánanum og hann brenndur á sviðinu. Margir ganga út, þegar hér er komið sögu. Nýjustu fregn- ir herma, að Emerson hafi fengið sér nýtt orgel til við- Framhald á bls. 33. JULIE ROGERS Fyrir nokkrum árum skemmti Julie Rogers í einu samkomu- húsanna í Reykjavík. Skömmu síðar söng hún inn á plötu lagið „The Wedding“, sem hlaut slíkar vinsældir, að það seldist í sjö milljónum eintaka um heim allan. Til er íslenzk útgáfa af þessu lagi — „Brúðkaupið“, sem Ellý Vilhjálms hefur sungið á plötu. Eftir að Julie söng „The Wedding“, komu út fleiri plötur með söng hennar, en þær vöktu enga athygli. Nú virðist útlitið hins vegar bjartara. Vænlega Framhald á bls. 34. Lagið „In The Year 2525“, sem nú er farið að heyrast í óskalagaþáttum hér, hefur um langan tíma verið að sniglast á vinsældalistum vestan hafs og í Bretlandi. Þetta er dá- lítið óvenjulegt lag, en sagan á bak við það er líka óvenju- leg. Það var í nóvember sl„ að tveir náungar frá Neb- raska, Denny Zager og Rick Evans, fengu þá flugu í koll- inn að syngja á plötu lag, sem hinn síðarnefndi hafði samið. Til þess að svo mætti verða, þurftu þeir að fara til Odessa í Texas. Þeim tókst að kría út lán til fararinnar, fengu lagið hljóðritað og létu síðan pressa eitt þúsund eintök af plötunni. Til málamynda stofnuðu þeir eigin hljóm- plötuútgáfu, sem þeir kölluðu 28 VIKAN 37- tbl- Truth. Aðalbækistöðvar fyr- irtækisins voru í sendiferða- bíl, sem þeir áttu. Þeir óku sjálfir með plötuna í hljóm- plötuverzlanir, og ekki gleymdu þeir plötusmiðum útvarpsstöðvanna. Þegar lag- ið fór að heyrast í útvarpi, leið ekki á löngu, þar til fyrstu þúsund eintökin af plötunni voru horfin. Þeir létu nú gera tíu þúsund eintök til viðbót- ar, hvergi smeykir. Þetta upp- lag fauk út á örfáum dögum. Þar með var lagið komið í efsta sætið á vinsældalistan- um í heimahögum þeirra, Ne- braska. Meðan á öllu þessu stóð, hafði einn af fram- kvæmdastjórum plötufyrir- tækisins RCA í New York tekið eftir þessari plötu, sem Zager og Evans höfðu sent honum. Þeir hjá RCA voru ekki seinir á sér að boða })á félaga á sinn fund. Zager og Evans voru yfir sig hressir og undirrituðu samning um að syngja á plötur fyrir RCA. Þar með var hljómplötuút- gáfan Truth máð af skrá yfir fyrirtæki. Því að nú tók RCA að sér að dreifa plötunni með laginu „In The Year 2525“. Um skeið voru þeir Zager og Evans saman í hljómsveit, sem nefndist „The Eccen- trics“. Þegar þessi hljómsveit leystist upp, hófst samvinna þeirra tveggja: þeir fóru að æfa saman lög, sem þeir höfðu sjálfir samið og komust fljótt að raun um, að sú samvinna bar góðan árangur. Þeir komu í fyrsta skipti fram á Kín- Framhald á bls. 34. ZAGER EVANS

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.