Vikan


Vikan - 11.09.1969, Side 33

Vikan - 11.09.1969, Side 33
Fræg fyrir tiiviljun Framhald af bls. 29. þætti upptakan ekki ýkja merkileg, gaf hann þó leyfi til útgáfunnar, sjálfsagt í þeirri trú, að það gilti einu, þar eð enginn mundi kaupa plötuna. Platan kom á mark- aðinn, og sagði fátt af vin- sældum hennar nokkra hríð, þar til plötusnúður í útvarps- stöð einni tók að spila hana í gríð og erg. Þessi plötusnúð- ur smitaði sannarlega út frá sér, því að ekki leið á löngu þar til plötusnúðar fleiri út- varpsstöðva tóku að spila lag- ið, og þar með voru allir farn- ir að raula lagið fyrir munni sér. Þetta hafði þau áhrif, að þær takmörkuðu birgðir, sem ldjómplötuverzlanir áttu af plötunni, hurfu eins og dögg fyrir sólu. Lagið þokaðist nú upp eftir vinsældalistanum vestan hafs — og brátt var það farið að heyrast í Eng- landi og í fleiri löndum. Þann- ig' er í stuttu máli sagan á liak við þetta sérstæða lag, „Oh Happy Days“. Af príma- donnunni, Dorothv Morrison, er það tíðinda, að hún hefur nú sagt sig úr sveit með söngvurum Edwin TTawkins og hyggst nú freista gæfunn- ar sem söngkona, ein og ó- studd. Það var plötufyrirtæk- ið, Elektra, sem fór á fjör- urnar við hana og gerði henni tilboð um plötusamning, sem henni leizt svo fýsilegt, að lnin ákvað að taka því. Hún var heldur ekki bundinn nein- um samningi, hvorki við kór- inn né plötufyrirtækið Buddha. sem gaf út „Oh Happy Days“. "fr Líf í tuskunum hjá Nice Framhald af bls. 28. bótar því, sem hann átti fyr- ir. Er nú fvrst orðið líf í tusk- unni þegar hann spilar á tvö orgel — í einu. Þegar hljóm- sveitin kemur fram, er að- stoðarmaður jafnan hafður til taks, og stekkur sá fram á sviðið, þegar hljóðfæri Emer- sons neita að starfa eðlilega. Hefur þessi náungi ærinn starfa, eins og nærri má geta. Hljómsveitin var nýlega á ferð í Bandaríkjunum, og fengu rassaköst Emersons þar misjaína dóma, en músikin þótti hin ágætasta. Um þetta geta þeir líka dæmt, sem kaupa nýjustu hæggengu plötu Nice. Helmingur lag- anna á henni eru hljóðritanir frá hljómleikum í Bandaríkja- ferðinni. & Það má ekki vera satt Framhald af bls. 17. Sú var ástæðan, sem hún gaf móður sinni upp, þegar hún bað hana að vera hjá börnunum þessa morgunstund. Og hún hafði í sannleika ætlað að kaupa regn- kápu. Peningarnir voru í veskinu hennar. En það var lítið vit í að eyða þeim í regnkápu, eins og nú var komið. Hún yrði að dug- ast við gamla tjaldið, sem hún hafði notað meðan tvíburarnir og Lena voru á leiðinni. Hún stóð. við gangbraut hjá umferðarljósum og sá bílana þjóta fram hjá. Enginn veitti at- hygli þessari einmana konu, sem stóð þarna og beið færis að kom- ast yfir götuna. Manneskjurnar skeyta engu hver um aðra, hugs- aði hún drungalega. Hver kærir sig um barnið, sem ég ber? Til annars en að hafa áhyggjur af því, eins og mamma, eða hæðast að því, eins og Annika? Hið innra með henni fæddist allt í einu rödd, sem sagði: Hvernig getur þú vænzt þess, að nokkur fagni þessu barni, úr því þú gerir það ekki sjálf? Hún stóð hreyfingarlaus, með- an ljósið skipti frá rauðu í grænt og aftur yfir í rautt. Þetta er satt, hugsaði hún. Það var eins meðan ég geklc með tvíburana, meira að segja áður en ég vissi, að það voru tvíburar. Ég var ekki heldur glöð þá, aðeins niðurdreg- in og vonsvikin af því að þeir komu fyrr en við höfðum áætlað. Og þegar ég átti von á Lenu, var það ennþá verra. Þá hagaði ég mér eins og það væri reiðar- slag að eignast eitt barn enn. Litla, ljúfa Lena mín. Heimsins fallegast og glaðasta stúlkubarn. Ég á ekki slíkt barn skilið. Ekki drengina heldur. Þessa dásam- legu tvíbura mína. Ég á þá ekki skilið. Hún steig í blindni út á ak- brautina. Um leið var henni rykkt harkalega aftur upp á gangstéttina. — Ætlið þér að fyrirfara yður? var spurt með æstri röddu. — Sjáið þér ekki, að það er rautt ljós? Hvað meinið þér með því að ætla að vaða fyrir bílana.... — Takk, þúsun sinnu takk, stamaði Barbro. Hún skalf öll og nötraði, og hélt dauðahaldi í handlegginn á gamla manninum í slitna frakkanum, sem stóð við hliðina á henni. — Ég hefði get- að orðið fyrir bíl.. . . látið lífið, ef þér ekki.. og barnið líka ... — Barnið? Sá gamli litaðist undrandi um. — Já — það er að segja — það er ekki enn fætt. — Þannig. Hann brosti, og bjóst til að fara. — Nei, ekki fara. Hún tók að róta eftir peningum í veskinu, en fann ekkert annað en smápen- inga og svo seðlana, sem áttu að fara til kápukaupa. Án þess að hika tók hún fimmhundruð krón- ur og stakk þeim í vasa gamla mannsins. — Ekki taka mér þetta illa upp, sagði hún. — Ég verð að sýna þakklæti mitt.... Takið þetta sem gjöf frá ófædda barn- inum mínu og fáið yður eitthvað, sem yður langar í. Þegar hann verður nógu stór, skal ég segja honum hvernig ég sóaði peningunum hans, áður en hann fæddist, hugsaði hún. Hún stóð stundarkorn og horfði á eft- ir gamla manninum, sem haltr- aði yfir götuna. Þegar hann var kominn yfir, sneri hann sér við og veifði henni vandræðalega. Allt í einu fannst henni, sem hún gæti faðmað allan heiminn. Ef mamma væri hér nú, hugsaði hún. Og Annika! Ég skal njóta þess að segja þeim frá þessu. En fyrst varð hún að segja Hans allt af létta. Hún beið, þar til umferðarljósið sýndi aftur grænt, og fetaði sig þá varlega yfir götuna. Hún fann símaklefa og hringdi til skrifstofu hans. — Barbro? Hann var kvíðinn í röddinni, því hún var ekki vön að hringja á skrifstofuna til hans, nema eitthvað sérstakt væri á seyði. — Hefur eitthvað komið fyrir — þig eða börnin? Hún hló við. Það er það eina, sem hann skeytir í alvöru um, hugsaði hún. — Ég og börnin. — Nei, alls ekki ástin mín. Allt í bezta lagi. — Ertu búin að kaupa þér kápu? — Ég fann enga, sem mig langaði í, svaraði hún. — Hans? — Já. — Hefur þú tíma til að borða með mér? — Það máttu bóka, svaraði hann léttilega. — Hittumst þá á grillbarnum eftir kortér. — Grillbarnum? Nei, karl minn! Heldur þú, að ég fari á grillbar, þegar ég býð þér út að borða? — Þannig, svaraði hann kank- víslega. — Það ert þú, sem býður, Krösus litli! Barbro horfði á það sem eftir var af kápuaurunum. — Já, það er ég, sem býð, sagði hún. — Ég kem og sæki þig, og svo sjáum við til, hvert við förum. Það verður að vera fallegur staður, hugsaði hún. Bara hið dýrasta og bezta var hæfandi því, sem hún hafði að segja. — Hans, sagði hún andsutt. — Ég þarf að segja þér dálítið dá- samegt! ☆ Hættu að blfstra Áhlaupsmarsinn! 37. tbi. VIKAN 33

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.