Vikan - 11.09.1969, Side 39
r
Gegnum meginlandið
mikla
Framhald af bls. 15.
á slóðum, sem hann leit á sem sitt
einkasvæði. Stanley fann Emín að
vísu um síðir, en þá var þessi und-
arlegi þýzkari eins og snúið roð í
hund og þóttist engrar björgunar
þurfa. Harðneitaði hann að yfir-
gefa ríki sitt í frumskóginum. Leið-
angur Stanleys komst um síðir til
Bagamoyo á austurströndinni, gegnt
Sansíbar, og ekki sérlega vel á sig
kominn. Gagnrýnin á Stanley í
Englandi varð nú harðari en nokkru
sinni fyrr.
Þess er skylt að geta að langt í
frá allir Bretar voru Stanley fjand-
samlegir. Honum var margs konar
sómi sýndur í ættlandi sínu, enda
gerðist hann aftur brezkur borgari
1890 og sat meira að segja í neðri
málstofu Parlamentsins um fimm
ára skeið. Síðustu ár ævinnar dvaldi
hann mestanpart í kyrrþey á litlu
sveitasetri, sem hann hafði eignazt
í Surrey.
Hann skrifaði um ferðir sínar
fjölda bóka, sem þykja hin merk-
ustu heimildarverk.
í hinzta leiðangurinn lagði hann
fimmta maí 1904. Stanley lá þá
rúmfastur, hafði blundað en vakn-
aði við að nálæg kirkjuklukka sló
fjögur. Hann spurði konu sína, sem
sat yfir honum, hvaða hljóð það
væri. Hún sagði hið sanna. Þá
sagði Stanley:
— Klukkan er fjögur . . . undar-
legt . . . tíminn . . . undarlegt. —
Hann sagði þetta mjög hægt og
bætti svo við: — Þetta er nóg.
Þetta voru síðustu orð manns,
sem alla ævi hafði verið í hörðu
kapphlaupi við tímann.
dþ.
Kvöldið
fyrir brúðkaupið
Framhald af bls. 22.
Barney kinkaði kolli.
— Unnusti hennar kom í
heimsókn tólf mínútur yfir þrjú
og stóð við í 17 mínútur. Við
náðum engu gegnum hlustunar-
kerfið, því þau voru í eldhúsinu
allan tímann. Hann var kominn
heim til sín tíu mínútur fyrir
fjögur.
Barney leit á blöðin sín.
— Klukkan fimm mínútur
fyrir fjögur hringdi kúgarinn til
Helenar, og það stóð í sextán
sekúndur. Hann notaði gömlu,
góðu hræðsluaðferðina. Sagðist
ætla að koma og skemmta henni.
En enginn kom. Nú höfum við
reiðubúnar hreyfanlefar eining-
ar, þegar hún fer að heiman.
Fjóra bíla. Einn á undan henni,
einn á eftir, og sinn á hvorri ak-
grein við hliðina.
Hawk kinkaði kolli, og um
leið kom Angela aftur.
— Dr. Barton er kominn.
— Hver?
PÉR SPARIÐ
MED ÁSKRIFT
ÞÉR GETIÐ SPARAÐ FRA KR. 7.50 TIL KR. 15.38 MÉÐ ÞVI AÐ
GERAST ASKRIFANDI AÐ VIKUNNI
OG ÞÉR ÞEKKIÐ EFNHJ:
VIKAN £R HKIMILISBLAÐ OG t ÞVÍ BRD GREINAR OG LFNI FYRIR ALLA Á HEIMILINU, — DNGA OG
GAMLA, SPENNANDI SÖGDR OG FRÁSAGNIR, FRÓÐLEIKUR, FASXIR ÞÆTTIR O.FL., OJTL.
Vinsamlegast sendið mér Vikuna í áskrift
r
□
4 TÖLUBLÖÐ Kr. 170.00. Hvart blaS á kr. 42.50.
3 MÁNUÐIR - 13 tölubl. - Kr. 475.00. Hvart blaS á kr. 36.58.
6 MÁNUÐIR - 26 tölubl. - Kr. 900.00. Hvart blaS á kr. 34.62.
Gjalddagar fyrir 13 tölubl. og 26 tölubl.: 1.' febrúar —
1. maí — 1. ágúst — 1. nóvember.
SkrifiS, hrihgið eða komið.
VIKAN
SKIPHOLTI 33
POSTHOLF 533
REYKJAVfK
SlMAR:
36720 - 35320
1
I
I
I
37. tbk VIKAN 39