Vikan


Vikan - 11.09.1969, Side 40

Vikan - 11.09.1969, Side 40
— Sálfræðingurinn. Þú vildir fá sálfræðing. — Rétt. Láttu hana koma. Hún kom inn, dálítið hikandi, svo sem vaninn er fyrsta daginn á nýjum vinnustað. Hún gat ver- ið einhvers staðar á milli tuttugu og fimm og þrjátíu ára. Hún geislaði af velvild og mannúð. Hún var bein í baki og örugg í hreyfingum. Hárgreiðslan gaf með engu móti til kynna, að hún væri langskólagengin. — Fáðu þér sæti, sagði Hawk, og vertu velkomin í hópinn. Barney dró fram stól, og hún brosti til þakklætis. — Ég heiti Hawk. Og þetta er Barney. Barney Carlson. — Jenný heiti ég, svaraði hún. — Jenný Barton. — Já, sagði Hawk. Svo tók hann um möppu með öllum upp- lýsingum um hana og hélt áfram: — Þú hlýtur að komast að því fyrr eða síðar, svo það er eins gott að ég segi þér það strax. Ég vildi ekki fá þig í þetta verk. Ég vonaðist til að fá dr. Raymond Hendricks. — Hann er afbragðs sálfræð- ingur, svaraði hún og vætti var- irnar. Hawk kinkaði kolli. — Kannski þú sért það líka — hver veit? Hann leit yfir skjölin, en síðan á hana aftur. — Ég sé, að þetta er fyrsta starf þitt í þágu lögreglunnar. — Það er rétt, en mig skorÞr ekki sjálfstraust. Hawk íhugaði svarið og svar- aði loks: — Við verður að sjá, hvernig til tekst, þótt við höfum ekki beinlínis tíma til að standa í kennslustörfum. En við höfum hérna mál, sem ég vonast til að þú getir hjálpað okkur með. Ung kona, að nafni Helen Rogers, kom til okkar í nótt. Þegar hún var setzt inn í bilinn sinn í nótt, um miðnæturleytið, réðist á hana maður, sem hótaði að myrða hana og móður hennar, ef hún sam- þykkti ekki að vera milliliður og sækja fyrir hann tvö hundruð þúsund dollara til þriðja manns. Við vitum ekki hvert hún á að sækja þá eða til hvaða manns, né heldur hvers vegna. Þetta get- ur verið fjárkúgun, mannrán eða hvað sem er. Hann reis á fætur og gekk til dyra. — Komdu með mér. Ég skal sýna þér dálítið nýtt, sem við vorum að fá. Við getum talað saman á meðan. Komdu líka, Barney. — Hvers lags kona? sja — vel gefin, sjálfstæð .... — Þver, skaut Barney inn í glottandi. — Hún virðist vera í góðu jafnvægi, hélt Hawk áfram, án þess að skeyta um Barney. — En eins og þú veizt, getur óbóta- maður brotið niður jafnvel hinn harðgerðasta, ef hann heldur rétt á spilunum. Við getum öll náð svo langt, að við þolum ekki meira. Hawk gekk á undan þeim eftir löngum gangi, og Jenný og Bar- ney urðu að hafa langt á milli til að halda í við hann. Loks opnaði hann dyr með áletruninni RANNSÓKNARSTOFA og sagði yfir öxl sér: — Við fengum radd- rita fyrir nokkrum vikum. Eins og svo margt annað tæknilegs eðlis, á hann rætur að rekja til síðari heimstyrjaldarinnar. Það voru merkjadeildirnar, sem settu saman fyrsta tækið. Auðvitað var það frumstætt apparat, og það var ekki fyrr en á þessum ára- tug, að það þróaðist í brúklegt áhald. Lágvaxinn og taugaóstyrkur maður kom á móti þeim, og Hawk kynnti hann fyrir Jenný sem Ed Hames, deildarstjóra. Hann gekk með þeim lengra inn á stofuna, að strokk, sem snerist í sífellu, klæddur með sérstakri gerð af pappír. Sjálfvirkur „penni“ skrifaði á pappirinn. — Hér er hann, sagði Hawk. — Þetta er hljóðriti, skaut Ed Hames inn í. — Hann vinnur einmitt nú eftir hljóðtíðni frá segulbandsupptöku. Með honum getum við mælt hraða hins mælta máls, áherzlur og all ann- að. Mannsröddin býr yfir.... Hawk greip fram í fyrir hon- um. — Hér sjáum við eins konar raddarlínurit. Engar tvær raddir eru nákvæmlega eins, og með þessu tæki er hægt að skilgreina fólk jafn nákvæmlega og með fingraförum. — En ef röddinni er breytt? spurði Jenný. — Kemur út á eitt. Það kemur sámt sama munstur. Viltu kannski lofa okkur að heyra upp- tökuna, Ed? Hann sneri sér að Barney og Jenný og hélt áfram. — Þegar sá óþekkti hringdi til ungfrú Rogers í nótt, fengum við fyrsta sönnunargagn okkar móti hon- um, Hann vissi örugglega ekki, að með hringingunni kynnti hann sig jafn vel eins og hann hefði sent okkur fingraförin sín. Meðan Ed Hames baukaði við segulbandstækið, hélt Hawk áfram: — Hann hringdi í tvenn- um tilgangi. í fyrsta lagi vildi hann viðhalda hræðslu hennar, og í öðru lagi koma róti á hana, svo hún gæti ekki hugsað skýrt. Og þar kemur þú í spilið Jenný. Kannski hafði hann fleir ástæður, sem við gátum ekki komið auga á. Kannski getur þú fundið eitt- hvað og bent okkur á það. Eftir samtalið flýtti Helen sér að klæða sig, eins og fötin væru einhver vernd. Við nánari um- hugsun sá hún þó, að hann myndi ekki koma. Ekki, ef hann var með sæmilegum mjalla. En á hinn bóginn gat maður, sem girndin hafði á valdi sínu, gefið öllum hugsanlegum hættum langt nef. Hún sat uppi það sem eftir var til dögunar, og reyndi að skilgreina öll hljóð næturinnar. Hún hafði aldrei imyndað sér, að svona mörg hljóð væri til — bara ef eftlr þeim væri hlustað. Rétt eftir klukkan sex tóku McDonald-hjónin að æpa á hvort annað, og hún bað þess í hljóði, að þau hættu því. Jafnvel undir venjulegum kringumstæðum varð hún pirruð og uppstökk af því að hlusta á þau rífast. Hefði hún lagt eyrun við, hefði hún getað heyrt hvað þeim fór á milli, en hún lagði að sér að gera það ekki. Þau voru þrátt fyrir allt, bezta fólk; þau voru vis til að láta af hendi síðasta dollarann sinn, ef einhver þurfti á honum að halda, og ef einhver nágrann- anna veiktist, voru engir hjálp- samari og umhyggjusamari en einmitt þau. McDonaldfólkið var eins og op- in bók, en þótt merkilegt mætti virðast hafði hún aldrei heyrt svo mikið sem bofs úr íbúðinni hinum megin. Þar bjó Spánverji, sem kenndi spænsku við mið- skólann í grenndinni. Hann var á fimmtugsaldri, mjög lágvaxinn, ævinlega óaðfinnanlega klæddur, hlédrægur og hógváer. Hann kinkaði vingjarnlega kolli ef þau sáust, en reyndi aldrei að fitja upp á samtali. Það var afar sjaldan hringt til hans. Þegar hún hafði drukkið kaff- ið sitt — almennilegum morgun- mat kom hún ekki niður — hringdi hún til móður sinnar. — Er eitthvað að? spurði mamma hennar. — Nei, ekkert. Ég ætlaði bara að hringja til þín. 40 VIKAN 37-tbl-

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.