Vikan


Vikan - 11.09.1969, Page 43

Vikan - 11.09.1969, Page 43
öruggarl en nokkur önnur gagnvart forvitnura börnura og ungllngum. HurOina er ekkl hægt aO opna fyrr en þeytivindan er STÖÐV- UÐ og dælan búin aO tæma vélina. RAFHA-HAKA 500 þvottavélin yöar mun ávallt skila yöur full- komnum þvotti ef þér aðeins gætið þess að nota rétt þvottakerfi,, þ. e. þaö sem viö á fyrir þau efni er þér ætlið að þvo. MeÖ hinum 12 fullkomnu þvottakerfum og að auki sjálfsta'Öu þeytivindu- og dælukerfi, leysir hún allar þvottakröfur yðar. Þvottakerfin eru: 1. Ullarþvottur 30° 2. ViÖkvæmur þvottur 40° 3. Nylon, Non-Iron 90° 4. Non-Iron 90° 5. Suðuþvottur 100° 6. Heitþvottur 60° 7. Viðbótarbyrjunarþvottur 90° 8. Heitþvottur 90° 9. Litaður hör 60° 10. Stífþvottur 40° 11. Bleiuþvottur 100° 12. Gerviefnaþvottur 40° Og aö auki sérstakt kerfi fyrir þeytivindu og tæmingu. gat meira að segja veri'ð í bíln- um við hliðina á henni. Einhver ökumannanna fyrir aftan hana flautaði illskulega, og fleiri tóku undir. Öll gatan bergmálaði af reiðilegu bílflauti. Röddin kom aftur: — Þú átt að bera þetta stöðugt með þér. Skil- ur þú það? Hafðu það alltaf inn- an heyrnarmáls. Hún starði eins og dáleidd á litla fjarskiptatækið. Svo kink- aði hún kolli, eins og til að gefa honum til kynna, að hún hefði heyrt og skilið. —• Tækið hefur kalltón. Þegar ég vil þér eitthvað, suðar í því. — En — en .. .. sagði hún, en mundi svo, að hún yrði að ýta á sendihnappinn, svo hann heyrði til hennar. Hann hélt áfram: — Hlustaðu nú á. Þú átt að leggja bílnum við Fimmta stræti og Cranston, ná- kvæmlega kortér yfir tíu. Kom- ir þú ekki, verður örugglega les- ið yfir þér í kirkjunni á laugar- daginn, — en það verður ekki brúðkaup! Framhald í næsta blaði. Hann klæðir fólkiS í fréttunum Framhald af bls. 47. stekkur upp þrepin á höllinni við Montecitorio, gæti maður frekar haldið að hann væri á leið í síð- degisboð með standspersónum í Róm, heldur en á leið til að þrasa um nýju eftirlaunalöggjöf- ina. Hann segir: — Karlmenn eiga að klæðast fatnaði af ýmsum litum, en samt með herrasniði. Það geri ég, og ég held að margir eigi eftir að fara að mínu fordæmi. Og ef einhver dregur í efa að hann taki stjórnmálastörf sín al- varlega, vegna þess að hann klæðir konurnar í ljómandi silki, og græðir milljónir á skrautgirni amerískra auðkvenna. — Það er ekki hægt að byggja afkomu sína á áliti almennings. En það er erfitt að sinna meira en einu lífsstarfi. Þingmaðurinn Pucci er þrjá daga vikunnar í Róm. Hina þrjá vinnudagana helgar hann tízku- húsinu í Flórens, og ferðalögum út um allan heim, til að sýna framleiðslu sína. Að vera á fundi í London síðdegis, og standa fyrir tízkusýningu í París um kvöldið, er daglegt brauð fyrir Pucci, og hann er einhver sá erfiðasti viðureignar við blaða- menn. Þegar hann stanzar á ein- hverjum flugveRi, milli Suður- Ameríku og Spánar, er hann svo uppgefinn, að auðvitað væri það sjálfsögð háttvísi að launmast í burtu og láta þennan örþreytta mann í friði. Markgreifinn felur fíngert andlit sitt í höndunum og andvarpar: — Ég hefi ekki haft einkarit- ara í fjóra mánuði. Tvær sýn- ingarstúlkurnar eru veikar. Það eru þrjátíu manns, sem bíða mín, í þrjátíu herbergjum. Ég hefi verið á fótum síðan klukkan sex í morgun. Hvað viljið þér vita? Sím'nn hringir. Pucci tekur hann, víkur sér með hann aðeins frá, verður ákafur og ákveðinn í máli: — Stuttir kjólar, í mörg- um bláum litabrigðum, sérstak- ir hattar úr sama efni, síðir eyrnalokkar og Vivara ilmvatn. (Það lætur hann sjálfur fram- leiða). — Þetta á við þjónustustúlk- urnar á ítölsku veitingahús1, við vörusýningu í Texas, segir hann til skýringar og kallar á grísku sýningarstúlkuna sína, Ersi Cagi- mitriu, til að sýna þennan nýja „einkennisbúning“. Það er stór furðulegt hvernig þessi örþreytti maður gjörbreytist, þegar hann kemur auga á sköpunarverk sitt. Það slaknar á spenntum dráttun- um í andlitinu, hann styður hönd undir kinn, virðir fötin fyrir sér, með aðdáun og hlær glaðlega. Þegar Ersi kemur aftur inn, og þá í brúðarkjól, í tíu litbrigðum af „Emil o“ rauðum lit, (hvers- vegna á ekki að hafa litaskrúð við brúðkaup, það er hátíð gleð- innar), getur hann ekki á sér setið að láta aðdáun sína í ljós: — Beautiful, isn‘t it? Emilio Pucci talar ensku jafn auðveldlega og ítölsku. Hann tók Master of Art gráðu við háskól- ann í Portland rétt fyrir stríðið, og hafði alltaf hugsað sér að verða diplomat. En heimsstyrj- öldin síðari breytti áformum hans, því að árið 1938 gekk hann í ítalska flugherinn, gerðist orr- ustuflugmaður, og hlaut fyrir það heiðursverðlaun. Hann varð kyrr í flughernum í fjórtán ár, og það að. hann gerðist tízku- frömuður var alger tilviljun. Hann fór í vetrarfrí til Alpanna, veturinn 1947, þar sem hann hitti tízkuljósmyndara Harper's Ba- saar, Toni Frissel, sem varð yfir sig hrifinn af skíðafötum Puccis, sem hann hafði teiknað sjálfur. Frissel spurði hann hvort hann gæti ekki teiknað eitthvað í þeirri líkingu handa kvenfólki, og sýnt það í Zermatt um vor- ið. í desemberehefti Harper‘s Ba- sarr kynntust amerískar konur fyrst framleiðslu Emilios, og inn- an tíðar fengust framleiðsluvör- ur hans í fínustu búðum Banda- ríkjanna. Pucci hugsaði svo ekki meira um þau mál. Þangað til sumarið 1949; þá var hann í fríi á Capri, og teiknaði að gamni sínu sum- 37. tbi. VIKAN 43

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.