Vikan - 02.04.1970, Qupperneq 3
14. tölublað - 2. apríl 1970 - 32. árgangur
VIKAN
I ÞESSARI VIKU
Einn mesti viSburSur ársins er liklega opnun
heimssýningarinnar í Japan, EXPO 70, en
sagt er aS hún sé stórkostlegasta sýning,
sem sést hefur í heimi hér. Hún var opnuS
TS. marz síSastliSinn, og í tilefni af þvi
birtum viS grein um Japan, sem nú er
orSiS þriSja mesta framleiSsluland heims.
Margir spá því, aS 21. öldin verSi fyrst og
fremst öld Japans.
ÞaS eru fleiri skaSvaldar en eituriyfin,
sem ógna lífi og heilsu okkar. Eftt af þvi
er til dæmis reykingar, en æ betur kemur
nú i Ijós meS auknum vísindalegum rann-
sóknum skaSsemi þeirra. Um allan heim,
og þó sérstaklega í Bandaríkjunum, er hafin
herferS til þess aS fá menn til aS hætta
aS reykja. VIKAN hefur ákveSiS aS slást
i hópinn og birtir athyglisverSa grein um
skaSsemi reykinga.
Lionsklúbburinn heldur árlega allfrumlega
skemmtun, sem kallast Kútmagakvöld.
Þessi skemmtun er einvörSungu fyrir karl-
menn og er snæddur dýrSlegur matur
úr ríki sjávarins. VIKAN brá sér á Kútmaga-
kvöldiS í ár, sem haldiS var aS Hótel Sögu,
og í þessu blaSi birtum viS skemmtilegar
svipmyndir þaSan.
■■bhhhhhhh
í NÆSTU VIKl J
Ásta Nielsen var á timum þöglu
myndanna ein frægasta leikkona heims.
Hún lifir enn i hárri elli, er orSin 88
ára gömul, en þó engan veginn af baki dottin.
Hún gifti sig meira aS segja ekki alls
fyrir löngu. ViS segjum svolitiS frá þess-
ari frægu, dönsku listakonu í næsta
blaSi, lifi hennar og listferli.
„HeiSindómur ( Brasiliu" nefnist grein,
sem fjallar um sérstök brasilisk trúarbrögS,
sem komiS hafa fram viS blöndun
kristni og afrískra trúarbragSa. Þessum
trúarbrögSum fylgja margir sérkennilegir
helgisiSir, þar á meSal blóSfórnir
og særingar.
Einn af kostum Inngöngu okkar i EFTA er
allveruleg lækkun á bifreiSum,
cg má því búast viS, aS fleirum en
áSur gefist nú kostur á aS eignast
nýjan bíl. VIKAN hefur á hverju ári
sagt frá nýjustu bílategundunum
og lætur þaS ekki hjá liSa í ár.
í næsta blaSi segjum viS frá öll-
um helztu bilunum, bæSi stórum og smáum.
f FULLRI ALVÖRU
BITLINGAÞJÖÐFÉLAGIÐ
Á ferSalagi i Vestur-Asiu siSastliSiS sumar
kynntist ég ungum menntamanni frá Súdan. Þar
hafSl þá nýlega veriS gerS bylting og sett i
hásæti stjórn, sem kenndi sig viS sósialisma og
alla mögulega blessun. Ég spurSi þennan sú-
danska kunningja minn, hvort hann ( raun og
veru teldi þessi umskipti verSa þjóS sinni til
bóta og hversvegna einkum.
— Til bóta verSur þaS vafalaust, sagSi hann.
— Og einkum vegna þess aS byltingarmenn-
irnir afnámu alla stjórnmálaflokkana. Þeir voru
orSin hreinustu krabbamein i þjóSfélaginu;
spilltar klikur sem ekki börSust um annaS en
bitlinga handa forustuliSi og hjálparkokkum. En
hvernig er þaS hjá ykkur fslendingum?
— ViS erum ennþá stigi á eftir ykkur Súdön-
um í þróuninni, svaraSi ég. — ViS sitjum ennþá
uppi meS flokkana okkar og allt sem þeim
fylgir.
Þetta samtal hefur oft komiS mér í hug undan-
fariS, síSan á því var byrjaS i dagblöSum okkar
aS telja fram þau ógrynni starfa og nefndar-
verka, sem allnokkur hópur manna í þjóSfélagi
okkar virSist draga aS sér eins og segull stál.
Timinn reiS hér á vaSiS meS Jóhannes Nordal
og Gylfa Þ. Gislason, og síSan hafa fleiri blöS
komiS meS álíka upptalningar. Þannig var Vísir
nú nýveriS meS grein um islenzka „nefnda-
þjóSfélagiS" og taldi þar fram störf nokkurra
manna auk nefnda er þeir eiga sæti i. Munu
þar hafa veriS tindir til fulltrúar allra flokka,
enda hætt viS aS íslenzku stjórnmálaflokkarnir
séu aS þvi leyti svipaSir þeim súdönsku, aS
hver þeirra reynir aS sjá um sig.
Ýmislegt hefur veriS fært fram þessu þjóS-
félagseinkenni okkar til varnar, og þá hvaS helzt
veriS bent á okkar margrædda fámenni. Vegna
þess sé hörgull á mönnum f allar þær marg-
vislegu stöSur, er gegna þurfi í jafn flóknu
apparati og sjálfstætt nútima- og velferSarþjóS-
félag sé. Þessvegna hljóti óhjákvæmilega fjöl-
mörg ábyrgSarstörf aS hlaSast á hvert þeirra
sárafáu mikilmenna, sem drottinn af sinni náS
einstaka sinnum láti fæSast svo nálægt norSur-
pólnum. En varla munu allir taka þá röksemd
góSa og gilda. Allavega er þakkarvert aS blöS-
in skyldu hreyfa þessu máli, þvi aS hversu sem
því er variS í smáatriSum má ætla aS i þvi sé
rannsóknar og endurskoSunar þörf. dþ.
FORSlÐAN ForsfSan er í sambandi viS grein eftir Sir George Godber á bls.
16 og fjallar um skaSsemi reykinga.
VIKAN
Útgefandl; HUmir hf. Ritstjóri: Gylfi
Gröndal. BlaSamenn: Dagur Þorleifsson, Matthildur
Edwald og Ómar Valdimarsson. Útlitsteikning: Hall-
dóra Halidórsdóttir. Auglýsingastjóri: SigríSur Þor-
valdsdóttir. — Ritstjóm, auglýsingar, afgreiðsla og
dreifing: Skipholti 33. Símar 35320 — 35323. Pósthólf
533. Verð í lausasölu kr. 50,00. Áskriftarverð er 475
kr. fyrir 13 tölublöð ársfjórðungslega, 900 kr. fyrir
26 tölublöð misserislega. — Áskriftargjaldið greiðist
fyrirfram. Gjaldd. era: Nóv., febrúar, mai og ágúst
14. tw. VIKAN