Vikan - 02.04.1970, Síða 6
SKÓLARITVÉLIN
NYTSAMASTA FERMINGARGJÖFIN
\
SKRIFSTOFUVÉLAR H.F.
OTTO A. MICHELSEN
Hverfisgötu 33
Sími 20560
PERSTORP
HARÐPLAST
ER SÆNSK
GÆÐAVARA
•
ÁVALLT FYRIRLIGGJANDI
í MIKLU OG
FALLEGU LITAVALI
* MJÖG HAGSTÆTT
VERÐ
SMIÐ3UBUÐIN
VIÐ HÁTEIGSVEG - SÍMI 21222
Skemmdarvargar
Kæri Póstur!
É'g fæ nú ekki lengur orða
bundizt vegna máls, sem snertir
mig og raunar alla íbúa höfuð-
staðarins. Ég kom mér upp af
vanefnum en með töluverðum
dugnaði, þótt ég segi sjálfur frá,
ofurlitlum sumarbústað í ná-
grenni Reykjavíkur. Þessi bústað-
ur hefur verið stolt mitt um nokk-
urt árabil og fjölskyldu minni
til mikillar ánægju. Þegar ég
byggði bústaðinn á sínum tíma
með ærinni fyrirhöfn, eins og
fyrr greinir, grunaði mig ekki,
að sá tími kæmi, að eigur manna
ættu eftir að vera í hættu fyrir
skemmdarvörgum og fengju ekki
að standa í friði yfir veturinn,
nema þær væru vaktaðar nótt
sem nýtan dag. En þetta hefur
því miður gerzt. Bústaðurinn
minn hefur orðið fyrir stórfelld-
um skemmdum næstum hvern
einasta vetur að undanförnu, svo
að ég hef orðið að kosta miklu
til hans á hverju vori til þess að
geta notað hann yfir sumarmán-
uðina. Nú er svo komið, að ég
hef alls ekki lengur ráð á að
standa í þessu ár eftir ár. Ég
fæ til dæmis ekki séð, að ég hafi
nokkur tök á að lagfæra þær
svívirðilegu skemmdir, sem unn-
ar hafa verið á honum nú í vet-
ur.
Mér er alveg óskiljanlegt,
hvernig á þessu stendur. Hvers
lags fólk er hér um að ræða?
Látum vera, þótt einhverjir
flökkumenn brjótist inn í sum-
arbústaði til þess að leita sér þar
húsaskjóls eða reyna að finna
eitthvað ætilegt. Slíkt athæfi
væri skiljanlegt, þótt auðvitað
sé það engan veginn verjandi.
En þessu er alls ekki að heilsa.
í sumarbústöðum hér í nágrenni
Reykjavíkur eru unnin slík
spjöll, að ég hef aldrei séð annað
eins og fæ ekki betur séð en hér.
séu óðir menn á ferð. öllu er
snúið við og allt sem hægt er að
hugsa sér skemmt í algeru til-
gangsleysi. Nú væri enn hægt að
skilja, þótt þetta kæmi fyrir
öðru hverju. Það eru alltaf til
sjúkir menn, sem ganga lausir.
En þegar þetta kemur fyrir ár
eftir ár og í jafn ríkum mæli
og raun ber vitni um, þá er eitt-
hvað meira en lítið að. Hverjir
eru það, sem stunda þessa líka
þokkalegu iðju að vinna stór-
felld spellvirki á sumarbústöðum
alveg að ástæðulausu og hjá
fólki, sem það á ekkert sökótt
við?
Mér finnst vera hér um að
ræða svo alvarlegt mál, að ekki
verði lengur skotið skollaeyrum
við því. Við verðum að gera
eitthvað í málinu. Skyldu vera
hér unglingar á ferð, eða er það
fullorðið fólk, sem hegðar sér
svona?
Mér þætti fróðlegt að heyra
álit þitt á þessu máli, Póstur
góður, og ef þú skyldir luma á
einhverjum tillögum í málinu,
þá bið ég þig endilega að þegja
ekki yfir þeim.
Með fyrirfram þakklæti fyrir
birtinguna og beztu kveðjum.
Sumarbústaðareigandi.
Þetta mál hefur veriff talsvert
rætt í blöffunum og auffvitað
fordæma allir heiibrigðir menn
slíkt athæfi. Þaff er óskiljanlegt,
hvers konar fólk hér er á ferff-
inni og óhætt aff fullyrffa, aff
þaff sé meira en lítiff sjúkt. Al-
menn fordæming á skemmdar-
verkaæffinu virffist ekki ætla aff
duga neitt og er þá nokkuff hægt
aff gera nema fá mann eða menn
til aff vakta bústaðina á vetrum?
Ef lesendur hafa einhverjar
snjallar tillögur á taktelnum til
aff klekkja á skemmdarvörgun-
um, þá væri gaman aff fá aff
heyra þær.
Lög unga fólksins
Kæra Vika!
Eg get ekki látið það bíða
lengur að skrifa þér um mál,
sem ég held að mætti ráða bót
á og breyta. Þetta er um þáttinn
„Lög imga fólksins“ í útvarp-
inu. Hvernig stendur á því, að
hann er felldur niður til að lýsa
síðari hálfleik í heimsmeistara-
keppni milli íslendinga og Jap-
ana? Ég trúi því ekki, að ekki
hefði mátt færa annað hvort lýs-
inguna eða þáttinn aðeins til.
Það hefur svo sem komið fyrir
áður, að þátturinn hefur verið
felldur niður vegna annarra
dagskrárliða. Mér finnst þetta
óréttlátt, vegna þess, að „Lög
unga fólksins" er einn vinsælasti
þáttur íslenzkra unglinga. Nú
skora ég á alla unglinga að láta
álit sitt í ljósi á þessu máli.
Ég þakka þér svo fyrir allt
gamalt og gott, kæra Vika, og
vona að þetta bréf lendi ekki í
bréfakörfunni.
Hippi,
Stöðvarfirði.
Viff fáum alltaf öffru hverju bréf
varffandi dagskrá útvarpsins. Við
höfum áffur bent á pósthólfiff
hans Guffmundar Jónssonar, og
þar eiga auffvitaff slikar um-
kvartanir hcima. En viff komum
þessu hérmeff á framfæri engu
aff siffur.
6 VIKAN 14 tbl-