Vikan - 02.04.1970, Page 7
Blessaðir
þingmennirnir
Háttvirta Vika!
Það er ekki oft sem ég sezt
niður og rita bréf. 35g ætla nú
samt sem áður að gera það núna.
Ég les Póstinn hjá ykkur með
mikilli athygli, eins og fleira
gott efni, sem í blaðinu er. Ekki
var nú tilgangur minn sá með
þessu bréfi að skammast eða
hæla hinu og þessu í Vikunni.
Og heldur ekki ætla ég að fá
að vita, hvort þessi stelpa eða
hin elskar mig eða ekki. Kg læt
alla ungbarnaástarrómantík
hvíla í friði. Þið fáið víst nóg
af svoleiðis bréfum. Nei, ég ætla
að skrifa um annars konar ást
og hatur. Það eru blessaðir þing-
mennirnir okkar, sem ég ætla að
ræða ofurlítið um.
Ég er nú reyndar hálfgert
ungbarn ennþá, aðeins 17 ára
gamall, og hef því anzi takmark-
að vit á stjórnmálum. Samt er
ég fyrir löngu búinn að mynda
mér mínar eigin skoðanir á
þeim. Ég ætla þó að reyna að
skrifa þetta bréf í algeru hlut-
leysi, eins og vera ber. Þing-
mennirnir okkar hafa mjög þýð-
ingarmiklu hlutverki að gegna
og bera þunga ábyrgð á sínum
herðum, eins og við vitum öll.
En nú kem ég loksins að aðal-
efni bréfsins. Þegar forustumenn
stjórnmálaflokka koma fram í
sjónvarpinu er fróðlegt að at-
huga viðbrögð fólks. Menn brosa
sínu breiðasta, þegar engillinn
úr flokknum þeirra birtist á
skerminum. Hvert orð, sem
hrýtur af munni hans, er gleypt
ómelt og ekki fundið að hinu
minnsta smáatriði, hvorki í út-
liti eða framkomu. En bíðum nú
við! Á eftir koma hinir og hvað
gerist þá? Jú, þá er engu líkara
en fjandinn sjálfur sé kominn á
skerminn. Það er fundið að
hverju orði og skopazt að útliti
og framkomu.
Stjórnmálamenn reyna yfir-
leitt að gera sem flestum til hæf-
is og vinna gagn. En svo fá þeir
bara skammir fyrir. Eigum við
ekki að reyna að bæta þetta
hugarástand okkar? Hvað segir
þú um það, Póstur góður? Ert
þú kannski hlutlaus, eins og Vik-
an?
Með beztu kveðjum.
XABDGI,
Vestmannaeyjum.
Þetta er eitt af sárafáum bréf-
um, sem Pósturinn hefur á sinni
löngu ævi fengið og fjallar um
stiórnmál. Og ekki höfum við oft
áður fundið slíka hlýju í garð
stjórnmálamanna ALLRA flokk-
anna. En þótt bréfritari sé ung-
ur að árum, og kannski einmitt
þess vegna, hefur hann mikið til
síns máls. Okkur hættir alltof
mikið til að vera einsýn og jafn-
vel staurblind á stjórnmálamenn;
ofmetum þá sem við fylgjum að
málum, en finnum hinum flest
til foráttu og getum ekki unnt
þeim sannmælis, enda þótt þeir
standi sig líka með prýði. Við
tökum undir ósk hins imga Eyja-
búa um að breyting verWi á
þessu hugarástandi, og við reyn-
um að meta stjórnmálamenn eft-
ir verðleikum þeirra á hlutlaus-
an hátt.
Þrettán ára glaumgosi
Elsku Póstur!
Ég grátbið þig að svara mér
fljótt. Þú hefur hjálpað svo
mörgum og ég vona að þú getir
líka hjálpað mér.
Þannig er mál með vexti, að
ég er alveg ofboðslega hrifin af
strák í mínum bekk, en ég er í
13 ára bekk. Á seinasta balli
bauð hann mér upp í einn dans,
en mér sámaði svo, að hann
skyldi ekki bjóða mér upp aftur
allt kvöldið. En eins og ég hef
áður sagt, þá er hann í sama
bekk og ég og situr rétt hjá mér.
Ég og stelpan, sem situr við
hliðina á mér, tölum stundum
við hann í tímum. Þótt hann sé
ekki nema 13 ára, er hann byrj-
aður að reykja og drekka. En
mér er alveg sama þótt hann
geri þetta hvort tveggja. Ég gæti
vel hugsað mér að koma heim
til hans í partý og vera með
honum.
Elsku Póstur! Hvað á ég að
gera til þess að hann sjái, að
ég elska hann hreint og beint?
Svaraðu mér fljótt!
Helga.
Þarna kemur eitt dæmigert bréf
um „ungbarnaástarrómantíkina“
eins og bréfritarinn hér á und-
an minntist á. En okkur þykir
skörin heldur betur vera farin
að færast upp í bekkinn, þegar
þrettán ára strákar eru bæði
farnir að reykja og drekka og
halda partý heima hjá sér í of-
análag! Og þegar stelpurnar sjá
ekkert athugavert við þetta og
vilja ólmar vera með slíkum
strákum, — þá er málið farið að
vandast. Við getum ekki annað
en ráðlagt þér að forðast allt
samneyti við hann. En gaman
væri að vita, hvort þetta bréf
er ekkert einsdæmi og hvort það
gerist nú algengt, að þrettán ára
unglingar séu farnir að „lifa“
sisona.
— Hvernig getur hann elskað þig,
þegar hann slær þitt eigið hold og
blóðl
ADDIS
STERKAR
Fæst aðeins í
lyfjabúðum
UU
LlU
MEÐ ÓKEYPIS
d
FERÐAHYLKI
ADDIS TANNBURSTI
TANNBURSTI Á HEIMSMÆLIKVARÐA
Pv 11 'fl
SKARTGRIPIR
U V/U^r^Li^7 LL^U
Modelskartgripur er gjöf sem ekki gleymist.
- SIGMAR OG PÁLMI -
Hverfisgötu 16a. Sími 21355 og
Laugaveg 70. Sími 24910
14. tbi. yiKAN 7