Vikan - 02.04.1970, Page 22
ÞÁ ER KOMIN NÝ KVIKMYNDAHETJA FRAM Á SJÓNAR-
SVIÐIÐ, EINU SINNI ENNÞÁ. ROBERT REDFORD
BRÆÐIR HJÖRTU STÚLKNANNA, EINS OG RUDOLPH
VALENTINO OG DOUGLAS FAIRBANKS BRÆDDU
HJÖRTU FORMÆÐRA ÞEIRRA!
Fólk fer til að sjá Paul Newman í „Butch
Cassidy og Sundance Kid“, en kemur út úr
kvikmyndahúsinu, yfir sig hrifið af Robert
Redford. Hann hefur slegið í gegn.
Hlutverk lestarræningjans Sundance Kid
er eins og skapað fyrir Robert Redford. Hann
er mjög sannfærandi með yfirvararskeggið
og barðabreiðan kúrekahatt.
Það er mikið talað um Robert Redford. En
hvers vegna?
Hann er ekkert sérstakur í útliti, lítill og
grannur. Hann er ekki sérlega svipmikill og
hlutverk hans í þessari kvikmynd var ekki
neitt hetjuhlutverk. En hann hefur eitthvert
leynilegt aðdráttarafl. Menn grunar ósjálfrátt
að bak við þetta rólega útlit leynist sterkur
maður, — skógarmaður, sem ekki lætur
sig muna um að slengja konum upp á öxlina.
Hann er spennandi, — og vekur forvitni.
En hver er hann?
Robert Redford er glaðlyndur og hressi-
legur náungi og alltaf til í ævintýri. Hann
er nokkuð villtur og er ekki metnaðargjarn.
Hann segir sjálfur að hann hafi aldrei lagt
mjög mikið að sér til að ná settu takmarki.
Robert Redford er fæddur i Los Angeles.
Hann er 32 ára.
Hann var frekar erfiður i uppvextinum;
lenti oft í kasti við lögregluna, lenti í áflog-
um og ók alltaf of liratt.
Þegar hann lék i kvikmyndinni um Sun-
dance Kid, sagði hann:
— Ef ég væri fæddur 75 árum fyrr, og
hefði búið á svipuðum stað og Sundance, þá
liefði ég eflaust lifað á ránum, eins og hann.
22 VIKAN 14-tbl-