Vikan - 02.04.1970, Síða 43
til að komast í mátulegt stuð.
Fíknilyfin nafnfrægu hafa sem
sé ekki ennþá náð teljandi út-
breiðslu í landinu.
Japanskar demonstrasjónir
hafa yfirleitt sérstakan svip og
bera í senn keim af reglulegum
orrustum og leiksýningum. —
Átakasveitir þarlendra stúdenta
eru miklu betur búnar og þjálf-
aðar til síns hlutverks en félag-
ar þeirra í Evrópu og Ameríku.
Þeir ganga til atlögu með hjálma
á höfði og reiddar klubbur, en
lögreglan hefur á móti skildi sér
til hlífðar að fornum sið. Vest-
rænum áhorfendum virðist oft
sem óeirðir þessar fari fram eft-
ir flóknum en samt ákveðnum
reglum eins og Nó-leikir, sem
eru merkilegt framlag Japana til
leiklistar. En eins og víða vill
hér brenna við að róttæknin
renni af ungmennunum með ár-
unum, og sum fyrirtæki kváðu
jafnvel sérstaklega sækjast eftir
að ráða til sín unga menn sem
hafa verið óeirðasamir og rót-
tækir á námsárunum. Þeir eru
ólíkt tápmeiri og frumlegri en
íhaldssálirnar, sem aldrei vildu
eða þorðu að mótmæla neinu,
segja iðnjöfrar lands komandi
aldar.
Kvenfólkið í Japan er auðvit-
að að breytast eins og annað.
Lengstaf hafa þær getið sér
prýðisorð sem þjónustugóðar og
undirdánugar heimilisambáttir
og geisur, en nú kváðu eiginkon-
urnar teknar að gerast harla
sjálfráðar og geisunum, þessum
listfengustu gleðikonum verald-
arinnar (að sögn) fer hraðfækk-
andi. Stúlkur, sem áður sáu sér
enga atvinnumöguleika nema í
vændishúsum og „nuddstofum“
geta nú valið um stöður í hinu
blómstrandi atvinnulífi. Þessi
þróun mála varð landsfeðrum
mikið áhyggjuefni þegar farið
var að undirbúa yfirstandandi
Expó í Ósaka. Allir vita að
vændiskonur eru það fyrsta og
síðasta sem þorri karltúrista spyr
um hvar sem þeir koma, og með
tilliti til ferðamannastraumsins
sem von var á á sýninguna var
ekki annað að sjá en að eftir-
spurnin á geisunum færi langt
fram úr framboðinu, í fyrsta
sinn í sögu landsins. Nú voru
góð ráð dýr, og þá var það að
einum ungum og bráðsnjöllum
bissnissmanni á þessu sviði hug-
kvæmdist að virkja giftar konur
í bransann. En ekki kváðu allir
hlutaðeigandi eiginmenn jafn-
ánægðir með þá ráðstöfun.
Engan skyldi undra þótt hinar
ógnarhröðu þjóðlífsbreytingar
hefðu komið nokkru rutli á jap-
anska þjóðarsál, enda er það svo.
Mótsagnirnar í skapgerð þess-
arar þjóðar eru með mesta móti.
Japanir geta til skiptis verið
gífurlega frekir og framúrskar-
andi hlédrægir, þrællyndir og
uppreisnargjarnir, trölltryggir og
svikráðir, fræknir og blauðir,
afturhaldssamir og framfarasinn-
aðir. Þorri Japana verður dag
lega að lúta ströngum og marg-
brotnum hegðunarreglum, og
þetta á eflaust mikinn þátt í
því að þeir eru almennt mjög
taugaspenntir. Óaðfinnanlega
fágaður og háttvís skrifstofu-
stjóri, sem labbar út úr húsnæði
fyrirtækis síns klukkan fimm, er
kannski tíu mínútum síðar eftir
einn drykk á barnum á næsta
horni orðinn að bullandi fífli.
Engir sýna ættingjum sínum og
vinum meiri kurteisi og nær-
gætni en Japanir og engir ganga
betur um heimili sín en þeir. En
utan heimilis eru þeir flestir
heldur þjösnalegir, vægast sagt.
Á japönsku er til orðskviður,
sem er nokkurn veginn sömu
merkingar og íslenzki húsgang-
urinn alkunni:
Þar sem enginn þekkir mann,
þar er gott að vera,
því að allan andskotann
er þar hægt að gera.
Siðareglur, sem ná þúsundir
ára aftur í tímann, segja Japön-
um fyrir hvernig þeir eiga að
hegða sér heima fyrir og við ná-
grannana í sveitaþorpunum, en
hins vegar hafa iðnaðarborgir
nútímans vaxið of hratt til að
neinar hliðstæðar reglur hafi
náð að festa rætur um mannleg
samskipti þar. Þess vegna er það
svo að Japani, sem biður kunn-
ingja sinn jafnvel afsökunar á
móðgun, sem hann alls ekki hef-
ur auðsýnt honum, lætur sér
ekki til hugar koma að biðja
forláts þótt hann stígi ofan á
tærnar á einhverjum ókunnug-
um eða reki sig á hann í búð
eða undirgangi. Þess vegna seg-
ir það sig sjálft að það er óvenju
mikið um hrindingar og pústra
í ösinni á gangstéttum, í verzlun-
um og á járnbrautarstöðvum
Japans. Hvergi kemur þó þessi
ruddaskapur Japana utan heim-
ilis betur fram en þegar „hetj-
urnar harðfengu Árljómalands"
fara út að stríða. Þeir þykja að
vísu berjast vasklega, en auð-
sýna jafnframt óþokkaskap með
mesta móti, eins og alræmt er
úr síðari heimsstyrjöld.
Hins sama þykir enn kenna í
fari Japana, þótt þeir nú reyni
ekki að leggja undir sig lönd
með eldi og sverði, heldur með
kaupskap og framkvæmdum. —
Þótt japanskar vörur, allt frá
transistortækjum upp í stál-
bræðslur, hafi gengið út eins og
heitar lummur erlendis, hafa
vinsældir seljendanna ekki vax-
ið að sama skapi. Sérstaklega eru
japanskir kaupsýslumenn og túr-
istar miðlungi vinsælir í öðrum
Asíulöndum. Þar hefur „ljóti
Japaninn" þegar stolið senunni
af „ljóta Ameríkananum". Ofan
á hefðbundna ókurteisi Japana
þegar þeir eru að heiman bætist
það, að þrátt fyrir sína æva-
gömlu, fáguðu hámenningu eru
flestir þeirra ennþá grófir,
kauðalegir og fráhrindandi þeg-
ar þeir reyna að taka á sig vest-
rænt gervi. Þeir þykja frekir og
ruddalegir, drykkfelldir og yfir-
gengilega kvensamir. Mútuþægni
og spilling fylgir hvarvetna í
kjölfar þeirra, eða svo er sagt.
Leiðinlegar endurminningar um
fyrri kynni af þessari þjóð eiga
skiljanlega sinn þátt í viðhorfi
margra nágranna til hennar.
Japanskt fjármagn og japanskar
vörur streyma nú inn í lönd eins
og Malasíu, Indónesíu, Filipps-
eyjar, Taívan, Suður-Víetnam
og Taíland í straumum svo stríð-
um, að þeir virðast alla sam-
keppni ætla að kæfa. „Fólkinu
hérna finnst að það hafi orðið
fyrir innrás,“ sagði taílenzkur
framámaður nýlega, „þótt að
þessu sinni sé hún ekki hernað-
arleg.“
Aðrir Asíumenn segja um
Japani að þeir séu fullir minni-
máttarkenndar gagnvart Evrópu-
og Ameríkumönnum, en bæti
það upp með hroka og derringi
gagnvart fólki úr eigin álfu. Líkt
og Bandaríkjamenn eru Japanir
að sínu leyti frægir fyrir að
flytja Japan sitt með sér hvert
sem þeir fara. Hvar sem nokkr-
ir þeirra eru samankomnir forð-
ast þeir að umgangast lands-
menn, en flytja inn með sér eig-
in bjór, eigin blöð, vín, rétti og
skóla.
En einn af mörgum þver-
stæðukenndum eiginleikum í
fari Japana er sjálfsgagnrýni,
sem stundum nálgast sjálfskval-
arsýki. Japanskur ambassador,
Itsjíró Kavasaki að nafni, gaf
ekki alls fyrir löngu út bók er
hann nefndi Japan grímulaust.
Þar úthúðaði hann löndum sín-
um svo eftirminnilega að mörg-
um þótti nóg um, allavega Jap-
önum sjálfum, enda missti am-
bassadorinn embættið fyrir vik-
ið. Meðal annars hélt Kavasaki
því fram að japanskir karlmenn
væru manna ljótastir í augum
útlendra kvenmanna og kvæði
svo rammt að sénsleysi þeirra
erlendis að þeir yrðu yfirleitt
að borga tvöfalt verð á vændis-
húsum þar.
Skemmtanalíf og menning
hefur auðvitað eins og annað
tekið breytingum eftir vestræn-
um fyrirmyndum. Nýjustu tízku-
pilsin frá París og síðustu popp-
plöturnar koma næstum jafn-
snemma til Tókíó og New York.
Japanir framleiða ósköpin öll af
ofboðslega ómerkilegum
skemmtikvikmyndum, og eru
flestar þeirra klámkenndar í
meira lagi. En hins er ekki síð-
ur vert að geta að japönsk fag-
urmenning hefur fyllilega hald-
ið í við þá vestrænu. í því sam-
EllifliHllÍil
VK
MYNDATöKUR FYRIR
ALLA FJÖLSKYLDUNA
*
VIÐ MYNDUM RÆÐI í SVART-HVlTU
OG í LIT
#
FERMINGARKIRTLAR Á STOFUNNI
*
I
Garðastræti 2 - Reykjavik - Sími 20900
u. tbi. VIKAN 43