Vikan - 02.04.1970, Qupperneq 46
BLÓMABÚÐIN DÖGG
er meðlimur í
Sendum um allan heim.
Páskablóm og páskaskreytingar
í miklu úrvali
Allskonar gjafavörur.
Höfum í þjónustu okkar einn færasta
skreytingamann landsins, Ásmund
Jónasson, skreytingameistara.
BLOHABUDIN DÖGC
Álfheimum 6 - Sími 33978
Allt gengur betur og
auSveldar með
H
hrærivélina við höndina.
Sterkur 180W mótor með 3 hraðastillingum
Fjöldi ódýrra fylgihluta
BORÐSTOÐ • HRAÐBLANDARI • HNOÐAR-
AR • Kartöfluafhýðari • Grænmetiskvörn •
Stálskál • Hnífa- og skærabrýni •
Berjahræra.
Eina vélin á markaðinum með 3 ára ábyrgð
Húsmóðirin
verður
ánægð með
HHHX
EINAR FARESTVEIT & CO. HF.
Bergstaðastræti 10A • Sími 16995
NORSK HÖNNUN NORSK GÆÐ
HDHX
ÁBYRGÐ
skrifaði um þeta leyti, hve
gjörsneydd Bessie var öllu
ímyndunarafli. Til þess þó að
gera henni ekki rangt til, við-
urkenndi hann, að þetta hefði
hann alltaf vitað: að þessi ró-
semi hugans, sem hún var
gædd í svo ríkum mæli, hefði
einmitt verið það, sem laðaði
óann að henni í fyrstu.
En þrátt fyrir allt þetta
hélt hann áfram með „Ulf
Larsen“. Fyrirmynd aðal-
söguhetjunnar var Alex Mc-
Clean skipstjóri, en Jack
hafði heyrt um hið ævintýra-
lega Iíf hans, þegar hann var
á „Sophie Sutherland“.
í júní 1903 komu „Kemp-
ton-Wace-bréfin“ út undir
dulnefni. Eitt blaðanna þekkti
þó undir eins annan höfund-
inn á „þróunarkenningum“
hans og fregnin barst svo
fljótt út, að MacMillan sá sig
tilneyddan að biðja Jack um
leyfi til að birta höfundar-
nafnið með annarri útgáfunni.
Bessie, sem gjarnan vildi
komast upp í sveit með börn-
in um sumarið, leigði sér kofa
í Glen Ellen í Mánadalnum
skammt frá sumarhúsi frú
Ninette Eames. Jack vildi
ekki yfirgefa bátinn sinn, tíl
þess að geta haldið áfram með
„Úlf Larsen“ af fullum krafti
og varð því eftir í Piedmont.
Kvöld eitt seint í mánuðin-
um, þegar hann var að aka
í vagni með kunningjunum,
valt vagninn ofan í skurð og
Jack meiddi sig illa á fæti.
Charmian Kitredge stundaði
hann í legunni af stakri ná-
kvæmni og umhyggju. Undir
eins og Jack gat stigið í fótinn
fór hann til Glen Ellen til
konu sinnar. Charmian Kittr-
edge fór einnig að heimsækja
frænku sína, frú Eames.
Það var ánægjulegt og ó-
brotið líf þarna í sumarhús-
unum. Leigjendurnir mat-
reiddu allir í sameiginlegu
eldhúsi á fljótsbakkanum og
borðuðu við löng óhefluð tré-
borð. Jack lét hlaða smástíflu
í ána og þar var hann svi
seinnl hluta dagsins að leika
sér við börnin og kenna þeim
að synda. A morgnana kom
hann sér fyrir einhversstaðar
á skuggasælum, rólegum stað
og skrifar þar sín venjulegu
1000 orð, með sléttan eikar-
kubb sem skrifborð. Kvöld
eitt seint í júlí safnaðist allur
leigjendahópurinn saman —
börnin líka til þess að hlusta
á hann lesa upp fyrir helm-
inginn af „Úlf Larsen“. Hann
las upp úr handritinu, með
Ijós til beggja handa, en fólk-
lá allt í kring um hann og
hlustaði.
Það var farið að lýsa af
degi yfir Sonomafjallinu, þeg-
ar hann var búinn. Þeir sem
hlustuðu á Jack London lesa
„Úlf Larsen“ þessa júlínótt,
og enn eru á lífi, minnast þess
sem eins af áhrifamestu
stundum æfi sinnar.
En skömmu seinna skeði sá
atburður, sem gjörbreytti öllu
lífi fjölskyldunnar. Það er
kannski bezt að láta Bessie
segja frá því með eigin orðum.
„Dag nokkurn, seint í júlí,
sátum við Jack eftir við
morgunverðarborðið og töl-
uðum saman. Hann vildi
gjarnan komast burt frá Oak-
land um stundarsakir, af því
að hann hafði ekki nóg næði.
Hann sagðist vera að hugsa
um að kaupa sér búgarð í hin-
um óbyggða hluta Suður-
Californíu og spurði, hvort
mér væri nokkuð á móti skapi
að flytja þangað. Ég kvað nei
við, ef aðeins væru nóg þæg-
indi vegna barnanna. Jack
lofaði að sjá fyrir því, og við
ákváðum að flvtja um haust-
ið.
Um tvöleytið fór ég heim
í kofann með börnin til að
svæfa þau. Ungfrú Kittredge
hafði beðið eftir Jack og ég
sá þau ganga saman yfir að
stóru hengirúmi, sem var við
hliðina á húsi frú Eames, í
áköfum samræðum, en ég
skeytti því ekki frekar. Eg
svæfði börnin og fór að laga
til í kofanum.
Klukkan sex kom Jack
gangandi heirn að kofanum
og sagði: „Bessie, ég ætla að
fara frá þér.“ Ég skildi ekki
við hvað hann átti og spurði:
„Áttu við, að þú ætlir aftur
til Piedmont?“ „Nei,“ sagði
Jack, „ég fer frá þér — við
46 VTKAN 14. tbi.