Vikan - 21.05.1970, Qupperneq 4
Svo kólnar hjartað frá samvizk-
unni sem kroppurinn þornar af
elli.
íslenzkur málsháttur.
# fólk í fréttunum
f nærri því heilan áratug var Ahmed Ben
Salah gulldrengurinn í stjórnmálum í
Túnis. Hann var ungur og ákveðinn og
vann aldrei minna en 16 tíma á dag sem
innanríkisráðherra — en það hafði í för
með sér að hann varð að vinna sem við-
skipta- iðnaðar- landbúnaðar- áætlunar-
fjármála- og menntamálaráðherra. Og
Ben Salah hafði mikil völd, því hann var
persónulegur vinur forsetans, Habibs
Bourguiba. En nú hefur gulldrengurinn
verið rekinn úr öllum sínum fínu em-
bættum og í marz síðastliðnum var hann
handtekinn og ákærður fyrir landráð, glæpur sem hægt er að dæma
hann til dauða fyrir. Almenningur í Túnis tók því ekki illa. — Það
ætti að henda Ben Salah út á götu, sagði bóndi nokkur, — og hann
yrði ekki skotinn. Hann yrði étinn!
Samstarfsmenn Ben Salah’s í stjórninni halda því fram að hann
sé spiiltur og valdagráðugur svikari, sem hafi aldrei hugsað um ann-
að en að skara eld að eigin köku, en raunverulega ástæðan fyrir
skyndilegum óvinsældum hans er sú að allt frá upphafi hefur Ben
Salah verið látinn fylgja úr hlaði óvinsælum frumvörpum -— og
yfirleitt átti hann frumkvæðið að þeim sjálfur. Öll misheppnuðust
þau og það svo illilega að ástandið í landinu versnaði æ meir; stjórn-
kerfið, sem byggt er á einum flokki, riðaði til falls og Bourguiba
sá sér ekki annað fært en að fara svona með vin sinn til að halda
sjálfur velli. — Myndin sýnir þá félaga, Ben Salah og Bourguiba
káta og hressa árið 1962.
„Hin alvarlega hætta sem ég lagði mig í
við að komast frá borði, ætti að gefa
nokkra hugmynd um hversu mjög mér
er alvara...“ Svo segir í yfirlýsingu 25
ára gamallrar, rússneskrar stúlku, sem
beðið hefur um hæli í Bandaríkjunum,
sem pólitískur flóttamaður. Sagan hófst
þegar Daina Palena, þerna um borð í
rússneskum togara tók inn stóran skammt
af svefnpillum þegar skip hennar var statt
130 mílur austur af New York. Skipið
sendi þegar neyðarkall og bandaríska
landgæzlan kom á staðinn. Stúlkan var
flutt með þyrlu til lands og þar var henni bjargað úr lífshættu. Þeg-
ar hún hafði náð sér gaf hún þessa yfirlýsingu og hefur ákveðið að
standa við hana, þrátt fyrir það að sovézkir embættismenn hafi gert
allt sem í þeirra valdi hefur staðið til að fá hana til að snúa heim
aítur. Einn þeirra sagði henni að móðir hennar myndi verða mjög
miður sín, en Daine hefur ekki trú á að það hafi verið hótun.
Því hefur verið haldið fram að hann eigi svo mikið sem 100 milljónir
dollara og því hefur líka verið haldið fram að hann eigi ekki meira
en 500.000 doliara. Vinir og kunningjar vilja samt halda því fram
að Miehael J. Brody, yngri, hafi gefið meira en 500.000 dollara síðan
hann ákvað, í janúar, að gefa alla peningana sína. Hver sem sann-
leikurinn er, þá er ekki hægt að segja að heppnin hafi elt þennan
21 árs gamla milljónaerfingja undanfarið. Vanfær kona hans hvarf
frá heimili þeirra í Scarsdale, New York, á meðan Brody hélt ókeyp-
is hljómleika í Californíu — en hann hefur gert eitthvað af því að
syngja og spila rokktónlist. Stuttu síðar birtist hann á flugvelli í
San Francisco og kvaðst vera Messías og hélt því fram að honum
hefði verið rænt og gefin örvandi lyf.
iSSSIi
STUTT
OG
LAG-
GOTT
Spánskur vínframleiðandi
ákvað að flytjast búferlum
til Afríku. Áður en hann
fœ.ri úr landi, vildi liann
selja upp allar vínbirgðir
sínar. Vínið var bœði gott
og ódýrt, en hann átti slíkt
magn af því, að enda þótt
verðið lœkkaði með hverj-
um deginum, gekk svo að
segja ekkert á birgðirnar.
Loksins fór að ganga eitt-
hvað á þœr, þegar honum
datt í hug að selja vínið
þannig, að menn máttu
drekka eins og þeir gátu
gegn ákveðinni borgun.
Brjóstgóður slátrari
Slátrarinn Geoff Hadgett hefir
slátrað þúsundum kinda. En
þrátt fyrir þetta ógeðfellda starf,
þykir honum yfirleitt vænt um
allar skepnur. Og nýlega fékk
hann tækifæri til að bjarga lífi
óborins lambs, og þá hikaði hann
ekki.
Hann vann í sláturhúsi í Great
Harwood. Hann sá að ein af án-
um, sem átti að slátra, var komin
að burði. Hann deyfði ána, áður
en hann aflífaði hana og náði
lambinu lifandi.
— Ég náði slíminu úr nösum
lambsins og blés lofti í munninn
á því og það lifnaði vel við, segir
Geoff. Svo vafði hann peysu utan
um það og flýtti sér með það
heim til sín, þar sem það lifir
góðu lífi. Hann ætlar svo að
koma þvi fyrir á býli vinar síns.
4 VIKAN
21. tbl.