Vikan


Vikan - 21.05.1970, Side 31

Vikan - 21.05.1970, Side 31
O Fyrst verður hann að læra að tala .... O Hann verður að æfa sig eins og barn. Fyrst æfir hann sig á sérhljóð- um .... O Svo reynir hann að setja orðin saman, — gera sig skiljanlegan... O Daglega bætir hann við skiljan- legum setningum .... © Á þessari mynd er Jiirgen með Berbel konu sinni og syninum Dirk, sem er tveggja ára. Feðgarnir læra oft það sama.... © Jiirgen þarf ekki eingöngu að læra að tala, hann verður líka að læra að skrifa. Gunther Fojuth er iðinn við að kenna honum. Bárbel hlustar með athygli á þá .. .. O Með hjálp Fojuths lærir JUrgen eittlivað daglega. Kennarinn æfir með honum hvert orð, og er mjög ánægð- ur með árangurinn .... Vestur-þýzki fimleikameistarinn Jiirgen Bischof slasaSizt í keppni. Eftir venjulega skurðaðgerð var hann meðvitundarlaus í margar vikur. Þegar hann rankaði við sér, var hann að miklu leyti máttlaus og mállaus. Það er hinni duglegu, ungu konu hans að þakka, að Jiirgen Bischof er að ná sér. Hann verður að læra að lesa og skrifa á ný. En þau hjónin eru nú orðin vongóð um að hann geti náð fullri heilsu............... Berbel Bischof er lagleg kona, 25 ára gömul, gift og tveggja barna móðir. Hún reynir að brosa, þótt hún liafi sannarlega meiri ástæðu til að gráta. Eiginmaður lienn- ar, sem hún elskar heitt, varð fvrir skelfilegum örlögum. Maðurinn hennar, Júrgen Bischof, sem er nú 28 ára, tók í sina tið mjög gott stúd- entspróf, fór í framhaldsnám og var nýbúinn að fá góða stöðu. Hann var líka frægur fimleikamaður. Nú verður hann að ganga í einkatima til að læra að skrifa. En Berbel Bischof er dug- leg og bjartsýn. Hún reynir að brosa og vera glöð, því að hún veit að það gleður mann- inn hennar. Það örvar hann líka til að halda áfram \dð endurhæfingu sína. örlagaríkur dagur. Fram að 15. marz 1969 hrosti lifið við Bischof-fjöl- skyldunni. Þau voru öll heil- hrigð og glöð. Júrgen sjálfur var mjög hamingjusamur, á lieimili sínu, við vinnuna og i íþróttunum, sem voru hon- um svo liugleiknar. Fimleik- ar voru honum næstum ástríða. Þennan örlagaríka dag, 15. marz, var mikið íþróttamót i Múnchen. Júrgen stóð sig með afbrigðum vel og fagn- aðarlátum ætlaði aldrei að linna. En i síðasta heljar- stökkinu skeði óhappið. Við upphlaupið féll Júrgen sam- an. Hann vissi strax að há- sinin hafði slitnað. Hann liafði ekki svo miklar áhyggj- ur af þvi, hann vissi að auð- velt var að gera við það með skurðaðgerð. Tveim dögum siðar gekk hann undir aðgerðina. En þá skeði það sem varð lionum örlagarikt. Blóðþrýstingur Júrgens var ekki i lagi, en læknunum láðist að athuga það. Hann var svæfður, eins og venja er til, en hann vakn- aði ekki eftir svæfinguna, sem lamaði hringrás blóðs- ins. Fyrsta orðið. Hann var algerlega með- vitundarlaus í fjórar vikur. Næstu vikurnar var hann í því ástandi, sem læknar köll- uðu veika meðvitund. Stund- um opnaði liann augun og þekkti konuna sína, en hún var yfir honum dag og nótt. En liann gat ekki gert henni skiljanlegt að hann þekkti liana. Júrgen gat ekki talað og hann gat ekki heldur lireyft sig eðlilega. Það liðu margar vikur, ]>ar til Júrgen gat gert konu sinni skiljanlegt að hann þekkti hana. Hann gat klórað á blað að hann vildi láta Helmut Herpe, vin sinn, hjálpa sér. Júrgen hafði þekkt íþrótta- og sjúkraþjálfarann i fjögur ár, og liann hafði áður hjálp- að honum, þegar blóðrásin angraði liann. í trássi við alla spádóma. Nú hefur Herpe unnið með Júrgen Bischof i marga mán- uði. Þeir vinna sex klukku- tíma á dag að endurhæfing- unni. Það er nú skeð, sem lælcnarnir héldu að væri ómögulegt: Júrgen Biscliof liefur farið mikið fram. Hann er smátt og smátt að lifna við. Hann lærði að ganga, eins og smábarn, lærði að grípa bolta og kasta bolta. Hann lærir líka að tala. Fyrst gat hann sagt eitt orð, svo fimm, svo tíu. Nú er hann kominn það langt, að það er vel hægt að skilja hann. Talkennari lians, Gúnt- her Fojuth, segir: — Það er furðulegt hve ört honum fer fram, mig Framhald á næstu síðu. 21. tbi. VIKAN 31

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.