Vikan - 28.05.1970, Side 3
22. tölublaö - 28. maí 1970 - 32. árgangur
VIKAN
„Dansinn er mér allt", segir Henný Hermanns,
sem kjörin var alþjóSleg fegurðardrottning
á heimssýningunni í Japan, eins og kunnugt er.
ViS birtum í þessu blaSi viStal viS
Henný og mikinn fjölda mynda af henni.
A8 auki er á forsíðunni falleg litmynd af
Henný Hermanns í Reykjavík, tekin í
blíðviðri þessa tíðindasama vors.
Hilmar Jónsson, bókavörSur i Keflavík,
hefur sent Vikunni sögukorn, sem nefnist „Þegar
Kisi kom aftur". Sagan er byggð á sönnum
atburði og er skemmtiieg lýsing á
litlu atviki úr daglega lífinu. Hilmar er kunnur
fyrir skorinorðar greinar og ritgerðir um
bókmenntir og þjóðfélagsmál.
Við höldum enn áfram að segja frá ævintýralegu
lífi rithöfundarins fræga, Jack London.
Siðast var greint frá hinni ótrúlegu hrakför
hans á óhappaskipinu „Snarken".
I næstu grein er Jack aftur kominn heim og hagur
hans réttist ögn, en aðeins um stundarsakir.
SKIPTIR EKKI MÁLI HVORT
SOFIÐ
ER HJÁ
EINUM
EÐA FLEIRI...
„ísland — landið, þar sem hinir látnu lifa".
Þetta er fyrirsögn á grein, sem birtist i næstu
Viku. Hún er tekin saman upp úr greinum i
sænsku blaði, er hafa að geyma frásögn
sænsks blaðamanns um andatrú á íslandi.
/V.eðal annars eru birt viðtöl við
Hafstein Björnsson og Láru Agústsdóttur
og minnzt á marga aðra kunna íslendinga.
Og frá andatrúnni liggur leiðin beint
til svartagaldurs, sem nú er aftur farið
að leggja stund á, sérstakiega i
Bandarikjunum. Þessi tiðindi koma vissulega
á óvart á sjálfri tuttugustu öld, þegar
vísindaleg þekking á að sitja i fyrirrúmi.
Þetta er forvitnileg grein og
óvenjuleg i hæsta máta.
I ÞESSARI VIKU
I NÆSTU VIKU
Uppreisnargirni unglinga er mjög
á dagskrá um þessar mundir, enda er hér við
alþjóðlegt og alvarlegt vandamál
að stríða. I næstu Viku segjum við frá
rauðu kveri — eins konar handbók
fyrir skólanemendur — sem gefið var
út i Noregi sl. vetur. Skoðanirnar i kverinu
þóttu svo skelfilegar, að þegar var gefið
út hvitt kver — til þess að reyna
að halda i gamla og góða siði.
FORSIÐAN Forsíðumyndin er af Henný Hermanns. Sjá fleiri myndir og viðtal
á bls. 10—15. (Ljósm. Sigurgeir Sigurjónsson).
f FULLRI ALVÖRU
LAMBASYNIR DAGBLAÐANNA
Mótmælaaðgerðir gegn hersetu á Islandi, stríði
i Indókina og fleiru i þvi sambandi hafa verið
ofarlega á baugi undanfarið, og hefur þessa að
sjálfsögðu verið getið að nokkru í fjölmiðlum,
eins og venja er þegar eitthvað gerist. En furðu
gegnir hversu illa dagblöðunum ber saman í frá-
sögnum sinum af aðgerðunum. Þegar skólanem-
ar heimsóttu menntamálaráðuneytið á dögunum
voru frásagnir blaðanna af því svo ósamhljóða,
að erfitt hefði verið fyrir ókunnuga að átta sig
á að þau væru öll að segja frá einum og sama
atburði. Stjórnarblöðin drógu greinilega taum
húsbændanna á staðnum og lögreglunnar og
vildu meina að lögreglumenn hefðu ekki farið
nema mjúkum höndum um unglingana og yfir-
leitt sýnt af sér mikila skapstillingu, þótt þeir
hefðu bæði verið bitnir og sparkaðir í staðinn.
Stjórnarandstöðublöðin kváðu lögregluna hins-
vegar hafa hnuðlað krakkana fullhranalega og
jafnvel slasað nokkra þeirra.
Ekki bar blöðunum betur saman um herstöðva-
gönguna 10. maí. Þannig var þeim ekki nokkur
leið að vera sammála um hversu margir hefðu
verið í göngunni, þegar hún lagði af stað af
Hvaleyrarholti. Eitt blaðið kvað göngumenn þá
hafa verið eitthvað á annað hundrað, annað sýndi
þá rausn að hækka töluna upp í tvö hundruð,
það þriðja kom henni upp i „á þriðja hundrað"
og það fjórða kvað á fjórða hundrað manns
hafa lagt af stað af holtinu, og mun það næst
sanni.
Á siðustu árum hefur því oft verið haldið fram
íslensku blöðunum til hróss að þau væru nú orð-
in regluleg fréttablöð í stað þess að vera hlut-
drægar málpipur stjórnmálafiokkanna, sem varla
birtu svo frétt að hún væri ekki skekkt og skæld
i það form, sem bezt var talið henta málstað
Flokksins. Greinilegt er að það hrós hefur verið
fullsnemma á ferðinni.
Um Gunnar Lambason er sagt, að „um allar
sagnir hallaði hann mjök til en ló frá víða", er
hann sagði frá Njálsbrennu. Ritstjórar íslenzkra
dagblaða virðast eindregið temja sér álíka sann-
leiksást, enda hafa þeir ekki til þessa þurft að
óttast að þeim væri jafn rausnarlega launaður
villandi fréttaflutningur og Gunnari við hirð
Orkneyjajarls.
dþ.
VIIVMn Útgefandl: HUmir hí. Ritstjóri: Gylfi
Gröndai. Blaðamenn: Dagur Þorleifsson, Matthildur
Edwald og Ómar Valdimarsson. Útlitsteikning: Hall-
dóra Halldórsdóttir. Auglýsingastjóri: SigriOur >or-
valdsdóttir. — Ritstjóm, auglýsingar, afgreiSsla og
dreifing: Skipholti 33. Símar 35320 - 35323. PósthóU
533. Verö í lausasölu kr. 50,00. ÁskriftarverO er 475
kr. fyrir 13 tölublöð ársfjórðungslega, 900 kr. fyrir
26 tölublöð misserislega. — ÁskriftargjaldlO grelOlst
fyrirfram. Gjaldd. eru: Nóv., febrúar, mai og ágúsl
22. tbi. VIKAN 3