Vikan - 28.05.1970, Síða 7
Eldgos hefur jafnan þótt mikils-
háttar viðburður hér á landi,
enda gerist ekki slíkt á hverjum
degi. Það er því ekki nema von,
þótt eitthvað fari úr skorðum,
þegar slíkt ber að höndum öll-
um að óvörum. Hitt er rétt, að
ckki virðast menn gera sér næga
grein íyrir því nú á tímum hins
mikla öryggis, að eldgos eru
hættuleg fyrirbæri, og aldrei að
vita nema stórtjón hljótist af
þeim. Okkur finnst óvarkárni
vera hið eina, sem setja má út
á hegðun manna og fjölmiðla í
sambandi við Heklugosið nýja. í
einu blaðinu stóð til dæmis, að
nú væri „hátíð“ blaðainanna.
Svona skrif ná auðvitað engri
átt.
Aldrei heima
Kæri Póstur!
Ég hef skrifað þér einu sinni
áður og fékk þá svar, sem var
kannski ekki sem verst, en ég
gat hins vegar ekki hugsað mér
að fylgja þeirri ráðleggingu, sem
þú gafst mér. En nú er það mál
löngu úr sögunni. Það leystist af
sjálfu sér, svo að ég hefði ekki
þurft að hafa neinar áhyggjur
af því. En er þetta ekki alltaf
svona: Við gerum okkur stöðug-
ar áhyggjur, oft alveg að ástæðu-
lausu.
Og nú er ég enn komin með
áhyggjur út af persónulegu
einkamáli mínu. Ég er nýlega
gift og hef verið afar hamingju-
söm, en það er þó eitt sem varp-
ar skugga á hamingjuna og
veldur mér miklum áhyggjum.
Fyrstu vikur hjónabandsins var
maðurinn oftast nær heima á
kvöldin, þegar hann var kominn
heim úr vinnunni. En það hélzt
ekki Jengi. Nú eru þau kvöld
orðiri fá. sem hann er heima, og
honum dettur sjaldan í hug að
stinga upp á því. að við förum
saman út. Það er komið í ljós,
að hann á sér óteljandi áhuga-
mál, eða segir mér það að
minnsta kosti. Hann er farinn að
spila golf (það gerði hann ekki
áður en við giftum okkur), hann
er kominn í einhverja nefnd í
pólitísku félagi, og segir mér, að
það séu fundir í nefndinni oft
í viku og stundum standa þeir
langt fram á nótt (það er víst
vegna væntanlegra kosninga).
Ég geri mér ljóst, að það er ekk-
ert við það að athuga, þótt menn
taki þátt í félagslífi og eigi sér
ýmiss konar áhugamál í tóm-
stundum sínum. En það sem
veldur mér áhyggium er tillits-
levsi hans. Það er engu líkara
en það sé miklu meira en sjálf-
saet mál, að hann fari þetta og
hitt, sem hann segist „verða að
fara“ og „þurfa alveg endilega
að fara“ og „ekki geta komizt
hjá að fara“. Hann veit fullvel,
að ég sit heima og prjóna (við
eigum von á fyrsta barninu okk-
ar). Það þarf enginn að segja
mér, að hann „verði“ eða „þurfi“
að vera svona oft að heiman á
kvöldin. Hann langar einfald-
lega til þess og dettur ekki í hug
að taka tillit til mín, sem má
sitja heima og bíða eftir honum.
En það er nú svo, að þegar mað-
ur er látinn bíða kvöld eftir
kvöld, þá sljóvgast tilfinning-
arnar og manni fer að verða al-
veg sama hvort hann er heima
eða ekki. Ég óttast þetta tilfinn-
ingaleysi mitt, og er sannfærð
um, að hann á alla sök á því. Ef
hann væri oftar heima, þá
mundum við tengjast miklu
traustari böndum.
Jæja, Póstur minn!. Þú hefur
víst heyrt annað eins og þetta
áður, og ég vil biðja þig að ráða
mér nú heilt. Sérstaklega vil ég
fá að vita, hvort ég á að ræða
þetta mál við hann, en ég hef
enn ekki minnzt einu orði á það.
Eða á ég að láta mér þetta
lynda? Hvað gera aðrar konur?
Með þökk fyrir hjálpina.
S. S.
Þú ert bersýnilega orðin sár-
gröm í garð eiginmanns þíns, og
ef til vill hefur þú fulla ástæðu
til þess. Það er alltaf erfitt að
dæma, hversu oft mönnum á að
leyfast að fara út til að leggja
stund á það sem þeir hafa áhuga
á. En okkur finnst framkoma
mannsins þíns óvarkár í meira
lagi. Þið eruð jú nýgift og eigið
von á ykkar fyrsta barni. Þú
neyðist til að vekja máls á þessu
við hann og segja honum hrein-
skilnislega, að þér líki ekki,
hversu oft hann sé að heiman á
kvöldin. Vel getur hugsazt, að
hann hafi alls ekki hugsað út i
þetta og muni því bæta ráð sitt
þegar í stað.
Rithandarlestur
Kæri Póstur!
Mikið værir þá nú góður
(góð?), ef þú gætir sagt mér,
hvað Unnur Þorsteinsdóttir, sem
þú sagðir frá hér í vetur, tekur
fyrir að lesa úr skrift. Og hvort
hún sendir svör út á land.
Segðu mér: Ertu karlkyns eða
kvenkyns?
Hafðu svo þökk fyrir allt.
Virðingarfyllst,
Norðlendingur.
Fyrir nokkru kostaði 500 krón-
ur að lesa vcl og nákvæmlega úr
skriftarsýnishorni, en kannski
hefur það liækkað eitthvað síð-
an. Jú, hún sendir ábyggileea
hvert á land sem er. Pósturinn
er karlkyns og hefur alltaf verið
bað hvað sem síðar kann að
verða.
brún á
einni nóttu
með QT...
Q.T. gerir yður eðlilega sólbrún, meðan þér sofið.
Notið Q.T. inni sem úti, í regni sem sól og á 3 til 5 tímum
verðið þér eðlilega sólbrún.
Q.T. er framleitt af COPPERTONE.
Heildsölubirgðir: Heildverzl. Ýmir s.f., sími 1491 og
Haraldur Arnason heildv. h.f., Hamarshúsinu h.f., sími 15583.
VIÐARÞILJUR
i miklu úrvali.
*
Viðartegundir. eik, askur, álmur, beyki, lerki,
fura, valhnota, teak, mansonia,
caviana.
HARÐVIÐUR og þilplötur, ýmsar tegundir.
PLASTPLÖTUR, Thermopal, ýmsir litir.
*
Harðviðarsalan sf.
Þórsgötu 14, símar 11931 og 13670.