Vikan - 28.05.1970, Page 8
Oft verður lítið af því höggi, sem
hátt er reitt.
íslenzkur málsháttur.
# fólk í fréttunum
Margir höfðu gaman af að sjá Gary Grant,
sem nú er orðinn gráhærður öldungur,
þegar hann kom fram við afhendingu
Óscarsverðlauna í ár. Sjónvarpið sýndi
eins og kunnugt er mynd af afhending-
unni, sem var hin bezta skemmtun á að
horfa. í þessari mynd voru meðal annars
sýnd nokkur atriði úr myndum Gary
Grants og þá sérstaklega ástarsenurnar,
en fáir kvikmyndaleikarar hafa notið
slíkrar kvenhylli sem Gary Grant. Fyrir
nokkrum árum féll hann í þá freistni eins
og margar filmstjörnur að skrifa ævi-
minningar sínar. Auðvitað hafði hann frá ýmsu merkilegu að segja,
einkum fyrrverandi eiginkonum sínum, Virginu Cherill, Barböru
Hutton og Betsy Drake. Bók sína byrjaði Gary Grant á þessa leið:
Nú er ég reiðubúinn til að segja kynbræðrum mínum þetta:
Konur kjósa miklu fremur þá menn, sem verða ástfangnir af þeim,
án þess að skilja þær, en þá, sem skilja þær, án þess að verða
Frank Sinatra drekkur whisky upp á
hvern einasta dag og getur alls ekki verið
án þess. Skömmu eftir forsetakosningarn-
ar í Bandaríkjunum 1960, bauð John F.
Kennedy honum í siglingu á lystisnekkju
sinni. Þegar Sinatra kom um borð í
snekkjuna eftir 50 mílna ferðalag, var
hann eðlilega orðinn mjög þyrstur.
En þar tók ekki betra við. Kennedy
forseti var heldur lítill vínmaður og átti
ekkert whisky um borð. Sinatra var í öng-
um sínum og leitaði til hinna farþeganna,
en því miður átti enginn whisky.
Frank Sinatra fór því skrælþurr í kverkunum í land og við það
tækifæri sagði hann:
— Eitt hef ég lært um þessa djöfullegu helgi. Ég fer aldrei fram-
ar að heiman, án þess að hafa með mér bar á hjólum.
Það hefur verið heldur hljótt um Lyndon
B. Johnson, síðan hann hvarf úr Hvíta
húsinu, eins og títt er um forseta, þegar
þeir hafa látið af embætti. Þó hefur LBJ
ekki með öllu horfið úr sviðsljósinu. Hann
flutti til dæmis nú síðast ræðu á demó-
krataþingi, þar sem hann studdi eindregið
stefnu Nixons í Kambodiu. Og nokkru áð-
ur náði blaðaljósmyndari þessari mynd af
honum. Hún birtist í mörgum blöðum
vestra og var prjónaður með henni alls
konar texti. Eins og sjá má er engu lík-
ara en Johnson sé að reyna að fylgjast
með fízkunni í útliti. Hann er með hár niður á herðar og gríðar-
stóran trefil um hálsinn. En hvað sem útlitinu líður, þá hafa skoð-
anir Johnsons sýnilega ekkert breytzt.
Úlfurinn er
bezti vinur hans
Amman Valentine Nikiticha
Minakova er með öllu áhyggju-
laus, þegar barnabarnið hennar,
Vadik, ráfar um í stóra skógin-
um, sem umlykur heimili þeirra,
sem er lítið timburhús i Síberíu.
Hún veit, að hann er undir góðri
vernd, því að úlfurinn Dingo
fylgir honum ei.ns og skuggi.
Einu sinni var Dingo villtur
úlfur, sem sást dag nokkurn leika
sér við hund ömmunnar, sem
heitir Verny. Það fór bersýni-
lega vel á með Dingo og Verny,
en þó var úlfurinn fjarska mann-
fælinn og styggur. Smátt og
smátt gerðist hann þó djarfari, og
e'tt sinn tókst ömmu að hand-
sama hann. Á nokkrum mánuð-
um tókst henni að vinna sér
trúnað úlfsins og temia hann, og
alltaf var Vadik litli með þeim.
Loks rann sá dagur upp, að hún
gat falið drenginn umsiá úlfsins,
og síðan hafa þeir verið óaðskili-
anlegir vinir.
HveitibrauSsdagar eftir 57 ára þrældóm
— Nú er tími til kominn að
við förum í brúðkaupsferðina,
Signe. Nú höfum við loksins ráð
á því og það er ekki seinna
vænna.
STUTT
OG
LAG-
GOTT
Heimilið er sá staður, sem
maðurinn leitar til, þegar
hann er orðinn leiður á að
vera vingjarnlegur við
fólk ....
Það var Hugo Karlsson, 82 ára
gamall fyrrverandi skógarhöggs-
maður í Svíþjóð, sem sagði þetta
við konu sína, sem er tveimur
árum yngri en hann.
Hugo og Signe eru foreldrar
15 barna. Þau eiga nú 45 barna-
börn og 20 barnabarnabörn. Allt
lífið hafa þau fórnað sér fyrir
börnin, og þegar þau giftu sig
fyrir 57 árum voru þau svo fá-
tæk, að þau áttu naumast til
hnífs og skeiðar.
En loksins nú hefur hagur
þeirra vænkast, og þess vegna
ætla þau að fara í brúðkaups-
ferðina, sem aldrei gat orðið af á
sínum tíma, og njóta hveiti-
brauðsdaganna í ellinni.
8 VIKAN
22. tbl.