Vikan - 28.05.1970, Qupperneq 19
UMSJÓN: DRÖFN H. FARESTVEIT,
HUSMÆÐRAKENNARI
Rækjusalat með
ávöxtum
2 bananar
V2 bolli mandarínur
1 appelsína
1 pera
1 epli
hnetukjarnar
rækjur
Bananarnir skornir í sneiðar. Epl-
ið og peran skorið í smáteninga.
Magn af hnetukjörnum og rækjum
eins mikið og þér viljið. Öllu bland-
að saman. Sem sósu á þetta salat
notum við mayonese blandað með
þeyttum rjóma og bragðbætt með
appelsínusafa og sítrónusafa. Hellið
dálitlu af sósunni yfir salatið en
berið síðan það sem eftir er með í
skál. Gott er að bera fram ristað
brauð og blaðsalat með þessu salati.
Hversdagssalat
1 salathöfuð
3 tómatar
V2 ágúrka
6 soðnar kartöflur
2 harðsoðin egg
dill, hvítlaukur
sósa:
3 msk. matarolía
1 msk. edik
V2 tsk. sinnep
V2 tsk. sykur
salt, pipar
Salatið þvegið vel og skorið í
strimla. Skerið tómatana, agúrkuna
og kartöflurnar í sneiðar eða bita og
eggin í báta. Salatskálina er gott að
núa að innan með hvítlauk. Klippið
dill og stráið yfir. Sósunni blandað
saman og henni hellt yfir salatið rétt
áðúr en það er borið fram.
Tómatsalat
Tómatar snaiddir niður og stráð á
þá lauksalti eða sellerisalti.
Eða: hrista saman franska sósu
og hella yfir og klippa síðan grænt
yfir.
Eða: blanda saman við niður-
sneiddum laukhringjum eða púrru-
hrirgjum og hella franskri sósu yfir.
Eða: þunnar appelsínusneiðar og
saxaður laukur blandað saman við
tómathringina og hella síðan súr-
mjólkurmayonese yfir.
Gulrótaeplasalat
2 epli
3 gulrætur
hvítkál
sítróna, appelsínur
Gulræturnar rifnar fínt, eplið rifið
gróft og hvítkálið. Appelsínan og
sítrónan er skorið í bita og borið
með. Með þessu salati er engin sósa
borin þar eð appelsínurnar og sítrón-
an gefa safann.
Sólskinssalat
2 grapealdin
3—4 gulrætur
sósa:
2 hl. olía
1 hl. sítrónusafi
salt, sykur, hvítur pipar.
Skerið grapealdinið ( helminga,
holið það út, og skerið aldinkjötið í
smáa bita. Gulræturnar rifnar á rif-
járni og þeim síðan blandað saman
við grapealdinbitana. Sósan hrist
saman og henni hellt yfir. Sem til-
breytni við framreiðslu á þessu salati
má klippa grænt yfir eða þá nota
dökk vínber.
22. tbt. VIKAN 19