Vikan


Vikan - 11.06.1970, Blaðsíða 7

Vikan - 11.06.1970, Blaðsíða 7
varla er liægt að nefna það ann- að en borgarastyrjöld. f mann- skæðustu bardögóinum þá féllu tugir og jafnvel hundruð manna. Líka má segja að á siðaskipta- tímanum hafi um skeið ríkt styrjaldarástand milli kaþólskra Norðlendinga annars vegar og Dana og sunnlenzkra lútherstrú- armanna hins vegar. Skriftin er snyrtileg. We shall overcome Kæri Póstur! Getur þú sagt mér hvort ís- lenzkur texti hefur verið gerður við ameríska friðarsönginn, We shall overcome. Og ef svo er, gætirðu þá gert mér þann greiða að birta þann texta. En ef is- lenzkur texti er enginn til, myndirðu þá vilja birta fyrir mig þann enska? Með beztu þökkum fyrirfram. Einn söngelskur á Akureyri. Okkur er ekki kunnugt um neinn íslenzkan texta við þetta Iag. En sá enski er svona: We shall overcome : / : We shall overcome : / : some day. Deep in my heart I do beleve We shall overcome some day. We‘ll walk hand in hand : / : We walk hand in hand : / : some day. Deep in my heart... We shall live in peace : / : We shall live in peace : / : some day. Deep in my heart... Svar til „einnar sem er að verSa 17“ Eftir bréfi þínu að dæma er fjölskylda þín ekki upp á það bezta, að minnsta kosti er helzt að sjá að bróðir þinn sé hreinn hálfviti eða óþverri, nema hvort- tveggja sé. Fljótt á litið virðist okkur sem vel gæti komið til greina fyrir þig að leita til sál- fræðings eða ef til vill öllu frek- ar félagsráðgjafa. Hann er alltaf úti á kvöldin Elsku Póstur! Ég hef alltaf ætlað að skrifa þér og loksins kom ég því í verk. Nú segi ég þér frá vandamáli mínu. Ég er hrifin af strák sem er alltaf úti á kvöldin og fer oft í bíó, en ég fæ aldrei að vera úti á kvöldin og sjaldan eða aldrei í bíó. Ég er agalega hrifin af honum en ég veit ekki hvaða stelpu hann er með. Hann seg- ist ekki vera með neinni. Ég trúi honum ekki. Hvað á ég að gera? Á ég að halda áfram að reyna við hann eða hætta því? Hvað finnst þér? Ég vona að þú birtir þetta bréf fyrir mig. Ein í vanda. Hættu við hann, fyrir alla muni. Fyrst þú ert sannfærð um að hann sé með annarri og ljúgi þig fulla ofan í kaupið, er erfitt að sjá hvernig þú getur haldið áfram að „reyna við“ svoleiðis dela. Þessu vil ég ekki trúa Gjögri, 26/2 1970. Kæri Póstur! Mig langar til að biðja þig að leysa úr dálitlu deilumáli fyrir mig. Deiluefnið er uppáhalds- söngvarinn minn, hann Björgvin Halldórsson. Mér skildist á við- tölum við hann í sjónvarpi og hljóðvarpi, út af hinum alkunnu eiturlyfjamálum, að hann væri á móti notkun á þessum lyfjum. Er það ekki rétt hjá mér? Nú var mér aftur á móti sagt í dag (af stelpu sem segist þekkja hann) að hann sé sjálfur neytandi þessara fíknilyfja. Þessu vil ég nú ekki trúa fyrr en ég má til. Þess vegna bið ég þig nú, Póstur minn, að segja mér það rétta í þessu máli. Með fyrirfram þökk. Ein átján ára aðdáandi Bjögga. Á það má benda að neyzla fíkni- Iyfja er nú bönnuð með lögum hér á landi, og fólk nákunnugt Bjögga segist ekki vita til að hann láti þau í sig. Svar til „frúar á Akranesi“ Megrunarnudd hefur oft ver- ið reynt með góðum árangri gegn þessu sem þú nefnir; þú ættir að gera tilraun með það. Svar til einnar innlegra ástfanginnar Blessuð hafðu samband við drenginn, skrifaðu honum, hringdu í hann, láttu sameigin- legan kunningja bjóða ykkur i partí, svo eitthvað sé nefnt. — Hann er sjálfsagt eitthvað skot- inn í þér svo að það ætti að geta tekizt. Og gefðu feimninni langt nef; nú á timum á ekki að vera neitt tiltökumál að stúlkur fitji að fyrra bragði upp á kunnings- skap við pilta, sem þeim lízt vel á. A EVUKLÆÐUM EINUM I UDEN EN TRÆVL | Hin margumrædda og æsidjarfa metsölubóR á Norð- urlöndum, eftir norska rithöfundinn Jens Björneboe, er nú fáanleg I islenzkri þýðingu. Bókin, sem er bönnuð í heimalandi höfundar. lýsir flestum stigum kynlýfsreynslu ungrar stúlku i mörgum stórborgum meginlandsins á frjálslegri. opinskárri og teprulaus- ari hátt en tíðkast. og hefur nú þegar verið kvik- mynduð. Bókin verður aðeins seld til áskrifenda, á meðan hið takmarkaða upplag endist, og geta þeir sem óska að eignast hana. gerzt áskrifendur með því að útfylla greinilega meðfylgjandi pöntunarseðil og senda hann ásamt áskriftargjaldinu I ábyrgðarbréfi í Giro-reikn- ing númer 65 við Útvegsbanka Islands i Reykjavik og öllum útibúum hans. Ef bókin hefur ekki borizt yður innan þriggja vikna frá pöntun, þá látið vinsámlegast Giro-þjónustu Útvegs- bankans strax vita. ÚTGEFANDI -----------------------------------------------------------1 Gíró-reikningur númer 65 í Útvegsbanka Islands: Ég undirrit óska að gerast áskrifandi að bókinni I A EVUKLÆÐUM EINÚM. og sendi hér meö greiðsl- j una kr. 400.00. Bókin sendist mór burðargjaldsfrítt. ■ Nafn .................................................. | Heimili....... !___________________________________________________________! 24. tbi. VIKAN 7

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.