Vikan


Vikan - 11.06.1970, Blaðsíða 17

Vikan - 11.06.1970, Blaðsíða 17
Þær rifu í hárið hvor á annarri og börðust í iogandi bræði. Þær féllu í gólfið og veltust fram og aftur... SMÁSAGA EFTIR BRANKO COPIC Fréttin breiddist út eins og eldur í sinu um þorpið: Amma er orðin veik. Hin gamla og einmana amma liggur fyrir dauðanum. Kyrr og sólríkur vordagur rennur upp. Þú gengur eftir skuggsælum vegi umvafinn grænum heimi nýs laufs; þú heyrir í spörvunum; þú minnist hinnar veiku ömmu og finnur til gleði yfir þvi. — Guð fyrirgefi þér — að þessi gamli og málugi kvenvargur er nú að svngja sitt síðasta, á meðan þú — guð veri lof- aður — ert iiraustur og glaður og held- ur til vinnu þinnar. Og á morgun kaup- ir J)ú þér nýjan hatt og hefur engar áhyggjur af lifinu. Umliverfis húsið hennar ömmu voru nú nánir og fjarskyldir ættingjar farn- ir að safnast saman. Þeir héldu áfram að safnast saman umhverfis húsið eins og hrafnar og hrægammar yfir gil, sem bóndi liefur kastað sjálfdauðu svíni i. Húsið hennar ömmu stendur á hæð- ardragi og er umvafið gömlum og þurr- um kirsuberjatrjám með rifnum berki og afbrotnum greinum. Amma á nú ekld annað land en það sem liúsið henn- ar stendur á, liitt befur liún selt fvrir löngu. En amma á peninga á banka, — live mikið, það veit hins vegar enginn. Og amma á húsgögn og heimilistæki. Kommóðurnar hennar ömmu eru full- ar af teppum, lini og serkjum, sem allt liggur gleymt og grafið og lyktar af margra ára ryki og skit. Amma á engin „eftirlætisbörn“. Hennar eigin börn eru látin fyrir löngu, dóu ])egar í barnæsku, og maðurinn hennar hljóp frá lienni og dó einhvers staðar i veröldinni. Af nánustu ættingj um á bún aðeins bræðra- og systrabörn eftir og óteljandi afkomendur þeirra, heilan hóp af berfættum og liálfnökt- um rollingum, sem erfitt gat verið að þekkja i sundur. Af öllum þessum ættingjum hafði annna alltaf tekið einhvern sérstakan að sér. Eitt árið bafði þessi verið henn- ar yndi og eftirlæti; hitt árið hafði það vcrið einliver annar. Hin duttlungafulla annna gat skyndilega skipt um skoðun og rekið „eftirlætið“ sitt frá sér og kvartað sáran j7fir því, að ])að bafi stol- ið öllu steini léttara úr húsinu liennar. Þá var röðin komin að þeim næsta, sem vann kappsamlega að því að sverla fyr- irrennara sinn eins og hann mögulega gat og fyrir bragðið var annna gamla uppfull með lygi, baktali og níði af ein- liverju tagi. Svona net fléttast oft, þeg- ar peningar og erfðagóss er annars veg- ar — árangur af striti annarra. — Kæra amma. þú mátt ekki yfir- gefa okkur, hvíslaði systurdóttirin Maria yfir henni með grátstafinn í kverkunum um leið og hún hlustaði með athygli á þungan andardrátt gömlu konunnar. Hún virtist ekki eiga langt eftir. Hún liggur í svitakófi, snýr höfðinu og umlar eitthvað. — Amma, kæra anima, hvar eru lyklarnir að kistlunum þinum? Ég ætla að láta þig fara í eitthvað breint — ef . . . æ . . . nei.... Guð gefi.... Amma, kæra amma, volar frænka hennar. Hvar eru lyklarnir, amma? Kisturnar hennar ömmu eru fullar af fötum, og hendurnar hennar Maríu eru þegar farnar að skjálfa, og hún fær kökk í hálsinn, þegar hún hugsar um öll þau auðæfi. Hægt og rólega opnast dyrnar með eilitlu ískri og inn um dyra- gættina gægist andlit Stefaníu. Hún lík- ist mest þjófi. — Æ, nei, æ, nei, hvað er nú að okk- ar kæru ömmu! Þú sem liefur verið mér sem bezta móðir. Kæra amma, stattu á fætur, liér kemur hún Stefanía þin. María færir sig nauðug örlítið til lilið- ar frá gömlu konunni og segir með uppgerðarsvip: Sjáðu, hérna er hún Stefanía. Og ég sit bara hér og bíð eftir að einhver komi. Hefurðu elcki lalað við hina, systir? — Og ])ú ert hérna, María, segir Stefanía og hnyklar brúnirnar reiði- lega. Þegar fyrir hádegi var stofan orðin full af kvenfólki. Einnig voru þarna nokkur böi*n, sem mæðurnar liöfðu lekið með sér, til þess, að „elsku amma fengi nú að sjá þau einu sinni enn.“ — Amma, sjáðu litla barnið þitt, amma. Ó, mig auma! Ég skammast min fyrir barnið. Það er berfætt og nákið eins og sígauni. — Hvers vegna er draugurinn hún Latinka komin? Það þætti mér gaman að vita, hvíslaði María að þeim sem næsl henni stóðu. — Hún er komin, tæfan sú arna, í von um að fá eitthvað verðmætt með sér heim. Ykkur er óhætt að hafa mig fyrir því. En nei: Ég skal svo sannar- lega sem ég heiti María sjá um, að ekk- ert komist í hendurnar á henni. Gamli gigtveiki bróðirinn hann Mi- liailo sat boginn á rúminu og fitlaði ástúðlega við fallegt teppi, sem amma gamla liafði ofan á sér. í hlöðunni þar sem hann svaf á nóttunni var kalt, sér- staklega í morgunsárið. Þá hnipraði maður sig saman og gróf sig dýpra nið- ur i lieyið. Svona þungt ullarteppi mundi koma sér vel fyrir hann. Og þegar annnan lirykki upp af, ætlaði hann að krækja sér í teppið. Hugsunin um, að ef til vill mundu aðrir klófesta það, gerði honum gramt í geði og gerði það að verkum, að liann áleit alla f jand- menn sina og hann var reiðubúinn til að slást af öllum kröftum og fórna blóði sínu fyrir „eign“ sína. Fingur annarrar handar lians fitluðu við kögr- ið á teppinu, en hin höndin hríðskalf. — Annna, væri ekki gott að fá sér kaffidropa, hóf Jeka máls. Annnan þagði og andaði þungt og erfiðlega. Það var allt litlit fvrir, að liinztu stundir hennar væru að liða. Komdu, komdu, Jeka, við skulum laga kaffi eða eitthvað svoleiðis, sagði Stefanía æst. — Biddu, sjáðu, hérna er kanna . . . nei, stanzaðu, við skulum heldur taka ])essa körinu. Hún er stærri. Þú veizt Framhald á bls. 41 24.tbi. VIKAN 17

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.