Vikan


Vikan - 11.06.1970, Blaðsíða 48

Vikan - 11.06.1970, Blaðsíða 48
 I Ilis í 1)V0'0'ÍI1«1I heimtar trvoo'ino'ii Allir húsbyggjendur leggja í talsverða áhættu. Margir taka há lán og leggja eignir sínar aS veði. Þeim er því afar mikilvægt að óhöpp eða slys raski ekki fjárhagsafkomu þeirra. Brunatrygging fyrir hús í smíðum er mjög ódýr, tryggingartaki greiðir 1,5 af hverju þúsundi. Ábyrgðartrygging gegn óhöppum eða slysum á starfsliði er nauðsynleg hverjum húsbyggj- anda, því annars kann svo að fara að skaða- bótaskylda baki honum verulegt tjón. ALMENNAR TRYGGINGARS PÓSTHÚSSTRÆTI 9 SÍMI 17700 Ts 11 gg s • ■ hann var kosinn: „f minni for- setatíð skal í öllu Gúatemala verða álíka um að litast og í Zapaca!“ Geri Arana alvöru úr hótun- inni og reyni að réttlæta atferli sitt með morðinu á von Spreti, þá vonar FAR að Indíánum landsins, sem til þessa hafa hímt í vesöld sinni langt utan og neð- an við alla pólitík, verði að lok- um nóg boðið og að þeir muni þá gera málstað hinna vinstri- sinnuðu skæruliða að sínum. Hvíta höndin, sem er talin standa forsetanum nýja nær, hefur þegar brugðizt við á þann hátt að það ætti að glæða vonir FAR-manna, hafi þessi verið til- gangur þeirra með morðinu á von Spreti. Hinir hægrisinnuðu ofstækismenn námu á brott mann að nafni César Montene- gro Paniagua, sem var framá- maður í kommúnistaflokki landsins, sem annars er ósköp vesæll og þar á ofan bannaður, eins og fyrr er sagt. Lík Mon- tenegros fannst skömmu síðar og leyndi sér ekki að honum hafði verið misþyrmt rækilega undir andlátið. Á miða, sem festur hafði verið við líkið, stóð að þetta morð væri aðeins fyrsta blóðhefndin fyrir von Spreti. í Washington bað Nixon Brandt kanslara, sem þar var í opinberri heimsókn, að gera ekki mjög mikið veður út af morðinu á ambassadornum. „Þetta land gæti áður en varir orðið okkur annað Víetnam,“ sagði Bandaríkjaforsetinn, sem þykist víst hafa nóg á þeirri könnu fyrir. ☆ Jónas hættir Framhald af bls. 34. hljómsveitinni Toxic, sem þá óx jafnt og þétt í áliti og að vinsældum og þar var hann þar til óskabarnið, Flowers, varð til á árinu 1967. Atti Jónas stóran hlut í því að sú hljóm- sveit varð til og ekki sízt í því hvað sú hljómsveit varð. Seint árið eftir (1968) kom út plata með hljómsveitinni og til að segja sem minnst, hlaut hann slæma dóma fyrir söng sinn þar. Og það er staðreynd, að þá hafði Jónasi hrakað mjög sem söngvara og var það svo þegar hann hætti vorið 1969. I hans stað kom Björgvin Halldórsson og var hann í hljómsveitinni þegar hún hætti í fyrrasumar. Um sama leyti fór Jónas af stað með eigin hljóm- sveit og hafa þeir verið í stöðugri framför. Það sem nýjast er að frétta af vinsældum Jónasar er að kollegar mínir á Vísi og Tímanum, þeir Þór- arinn Jón Magnússon og Þorsteinn Eggertsson, hafa nýlega staðið fyrir vinsældakosningum og varð Jónas hlutskarpastur í bæði skiptin. En nú er Jónas sem sé hættur og er það tjón. Þeir félagar í Náttúru hafa þegar ráðið nýjan söngvara, og mun sú ráðstöfun vafalaust verða mörgum unarunarefni — þegar þar að kemur, í næsta blaði eða þarnæsta blaði. óvald. Rabbað um... Framhald af bls. 9. innar og hlaut sérstök verðlaun fyrir. Annað atvik öllu skemmti- legra hefur einnig nokkuð ver- ið í fréttum, en það var „inn- rás“ vestur-þýzkra fegurðardísa á hótel þau sem Perúmenn og Búlgarar bjuggu á, en þeir á- samt liðum Marokkómanna og Vestur-Þjóðverja skipa sem kunnugt er fjórða riðil keppn- innar. Hafði þessum liðum verið skipað að hvílast fyrir lokaátök- in og lágu leikmennirnir í mak- indum sínum í sólbaði þegar val- kyrjurnar geystust að þeim og gerðu sér dælt við þá. Komu þessir tilburðir stúlknanna leik- mönnunum öllum í uppnám, en til þess var leikurinn náttúr- lega gerður. Sáu fararstjórar lið- anna sér ekki annað fært en loka leikmennina inni í herbergjum sínum, þeim til sárra leiðinda. Ekki virðist þetta athæfi stúlkn- anna hafa borið tilætlaðan ár- angur, því þegar þessi lið mætt- ust í fyrsta leiknum í fiórða riðli sýndu baéði liðin mjög góðan leik og er það von manna að fleiri slíkir siáist í keppninni nú. Er það því kannski óskandi að hin- ar þýzku fegurðardísir haldi þessum leik áfram og heimsæki fleiri lið, ef það mætti verða knattspyrnuíþróttinni til góðs. 48 VIKAN 24- tb]-

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.