Vikan - 11.06.1970, Blaðsíða 45
Flugu getið þér drepið
en VOLKSWACEN ekki
Margir hafa reynt
. . . en ekki tekist
HVERSVECNA?
Vegna þess að VOLKSWAGEN er ekkert
tízkufyrirbæri . . . Árviss reynsla og tækni-
þróun, án útlitsbreytinga hefir gert hann
aö öruggri fjárfestingu og þeim bíl . . . sem
jafnvel ai'i og amma þekkja, pabbinn vill
eignast, mamma vill keyra og börnin kalla
ekki bíl, heldur
. . . VOLKSWACEN . . .
Kynnið yður verð varahluta-
og viðgerðaþjónustu.
VOLKSWACEN er einmitt
framleiddur fyrir yður
HEKLA hf.
Laugavegi 170—172 — Sími 21240.
af Mario Sandoval Alarcon, sem
á fleiri og stærri lóðir en flestir
landar hans. Svo er það NOA
(Nueva Organización Anticom-
unista), sem ofstækisfullir hægri-
menn úr hópi uppgjafaliðsfor-
ingja mynduðu.
Hvíta höndin gerði árið 1966
árás á háskólann í Gúatemala-
borg, rændi skrám yfir stúdenta
og hóf síðan ofsóknir á hendur
þeim, að því er bezt varð séð
með góðfúslegu samþykki og
jafnvel aðstoð hersins. Stúdent-
um var rænt og þeir látnir sæta
pyndingum; sumir voru myrtir
og líkum þeirra kastað í sjó.
Systir skæruliðaforingjans Yons
Sosa var meðal þeirra, er hlaut
þau örlög. Mano blanco rændi
meira að segja erkibiskupnum í
Gúatemalaborg, Monsignore Ma-
rio Casariego, og hélt honum
föngnum í fjóra daga í marz
1968. Erkibiskupinn hafði hvað
eftir annað g;lgnrýnt opinberlega
hið félagslega misrétti í land-
inu. Svo háttsettan mann í þjón-
ustu Vatíkansins þorðu aftur-
haldsböðlarnir þó ekki að myrða,
og var honum sleppt ómeiddum
að þessum fjórum dögum liðn-
um.
HANN LAGÐI SKAMMBYSSU
Á BORÐIÐ OG SAGÐI:
ÉG ER FORSETINN
Þessi barátta milli hægri og
vinstri í lýðveldi þessu, sem er
lítið eitt víðlendara en ísland
og lifir einkum á kaffi og ban-
önum, hófst í stjórnartíð Jacobos
Arbenz Guzmáns forseta (1951—
‘54). Ýmislegt var sérkennilegt
við forseta þennan, til dæmis að
hann var hinn fyrsti af forset-
um landsins sem kosinn var á
nokkurn veginn lýðræðislegan
hátt. Þar að auki var hann sviss-
neskur í föðurætt og umbóta-
glaður sósíalisti, sem vildi rokka
eitthvað við veldi og sérrétt-
indum þeirra tvö þúsund fjöl-
skyldna, sem áttu flest það nýti-
legt í landinu er ekki var komið
í klær bandarísku auðhringanna.
Hann vildi gera eitthvað raun-
hæft til að bæta kjör hins arð-
rænda, kúgaða og ómenntaða
fjölda — enn þann dag í dag er
meira en helmingur allra Gúate-
malabúa óiæs og óskrifandi. Þess
háttar athæfi átti sér alls engin
fordæmi í sögu landsins. Gúate-
malamenn voru vanastir forset-
um, sem urðu sér úti um alræð-
isvald með hverju tiltæku ráði
og notuðu embættistímann til
þess eins að auðga sjálfa sig.
Sem dæmi má nefna valdatöku
Estrada Cabrera 1899. Fyrir-
rennari hans hafði verið myrt-
ur, og sem ríkisstjórnin sat á
fundi og ræddi tillögur um eftir-
mann, kom Cabrera inn, miðaði
skammbyssu á ráðherrana og
sagði: „Herrar mínir, ég er for-
setinn.“ Þess má geta að Cabrera
er fyrirmynd Nóbelshöfundarins
Asturiasar að forsetanum í
skáldsögunni Forseti lýðveldis-
ins, sem þýdd hefur verið á ís-
lenzku.
„STEYPIÐ ARBENZ, HANN ER
KOMMÚNISTI"
Arbenz sagði auðvaldinu stríð
á hendur og boðaði landsmönn-
um félagslegt réttlæti, nokkuð
sem flestir þeirra heyrðu þá
nefnt í fyrsta skipti. Stórjarða-
eigendurnir, sem aðeins voru
tvö prósent landsmanna en réðu
yfir rúmlega sjötíu prósentum
ræktanlegs lands, voru hins veg-
ar ekki reiðubúnir að gefa for-
réttindi sín eftir átakalaust.
Þannig hófst hið þjóðfélagslega
borgarastríð í Gúatemala, land-
inu þar sem meðalkaup land-
búnaðarverkamanns er um tutt-
ugu krónur á dag og fimmta
hvert barn deyr áður en það
hefur náð fjögurra ára aldri.
í fyrstu lotu hafði Arbenz bet-
ur. Hann keyrði löggjöf um víð-
tækar umbætur í landbúnaðar-
málum gegnum þingið, þrátt
fyrir sterka andstöðu. Fyrri
hluta árs 1954 gerði stjórnin
upptæka samtals sex hundruð
þúsund hektara lands í einka-
eign og skipti því ásamt þrjú
hundruð og áttatíu þúsund hekt-
örum lands í ríkiseign milli
hundrað tuttugu og fimm þús-
und bænda. Bandaríski auð-
hringurinn United Fruit Com-
pany, sem með ýmiss konar
bolabrögðum hafði þá gert sig
svo að segja allsráðandi í at-
vinnulífi landsins, missti við
þetta um níutíu og fimm þús-
und hektara af bananaplantekr-
um sínum.
Bandaríkjamenn réðu yfir tí-
unda hluta ræktaðs lands í Gú-
atemala og höfðu fjárfest sem
svaraði tíu til tólf milljónum ís-
lenzkra króna í jarðeignum í
landinu. Þeir áttu járnbrautir
Gúatemala eins og þær lögðu
sig. Kaffið, aðalútflutningsvara
landsins, sem Gúatemalamönn-
um er álíka mikilvægt og fisk-
urinn íslendingum, var flutt út
í bandarískum skipum og obb-
inn af gróðanum lenti í klóm
nýnefnds bandarísks auðhrings.
Forustumenn hringsins, sem hef-
ur aðalaðsetur í Boston, ruku í
írafári til Washington og sögðu
valdamönnum landsins að Ar-
benz væri vondur kommúnisti
og ætti að meðhöndlast sem slík-
ur.
Hjálparóp þeirra mætti ekki
daufum eyrum. Utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna var þá
John Foster Dulles, sem ekki var
einungis mikill óvinur kommún-
ista, heldur og fyrrverandi
starfsmaður auðhringsins og átti
þar enn hlutabréf. Hann var
fljótur að lýsa því yfir að Gú-
atemala væri „kommúnískt
hættusvæði".
ÓSKIN UM RAUNVERULEGT
SJÁLFSTÆÐI VAR GL.UPUR
í júní 1954 marséraði svo
leiguher, sem United Fruit og
aðrir bandarískir aðilar höfðu
hóað saman, inn í Gúatemala
undir forustu útlægs stjórnmála-
manns þarlends, ofursta er hét
Carlos Castillo Armas. Lagt var
upp frá bækistöðvum, er ná-
grannaríkið Hondúras hafði lagt
til. Uppreisnarmenn báru banda-
rísk vopn og höfðu hlotið þjálf-
un sína hjá CIA. Liðið hafði sér
til fulltingis hvítmálaðar og
óeinkenndar flugvélar af Thun-
derbolt-gerð, er bandarískir
flugmenn stýrðu. Árásir þeirra
áttu drýgsta þáttinn í að brjóta
niður baráttuþrek stjórnarher-
sveitanna. Arbenz forseti lýsti
yfir: „Glæpur okkar er umbæt-
ur í landbúnaðarmálum, sem
koma illa við félagsskap í hönd-
um heimsveldissinna, eða nánar
tiltekið að við viljum sjálfir ráða
atvinnulífi lands okkar.“ Hann
sagði af sér og fór til Mexíkó í
útlegð.
Castillo Armas, sem Colum-
bia-háskólinn í New York hafði
gert heiðursdoktor, varð eftir-
maður hans í forsetastóli. Hann
lét verða sitt fyrsta verk þar að
fá stórjarðaeigendum aftur það
sem af þeim hafði verið tekið,
þar á meðal United Fruit.
Armas sat að völdum þrjú ár
og var síðan myrtur. Næstur
varð forseti maður að nafni Ydí-
goras Fuentes; alls hefur Gúate-
24. tw. VIKAN 45