Vikan


Vikan - 11.06.1970, Blaðsíða 36

Vikan - 11.06.1970, Blaðsíða 36
Vel varið hús fagnar vori.... Eyðingaröfl sjávar og se/tu ná lengra en til skipa á hafi úti. Þau ná /angt inn i /anc/. Hygginn húseigandi ver þvi þök og tréverk með HEMPELS skipamá/ningu Hún er þrautreynd við erfiðustu aðstæður hér/endis. Hygginn húseigandi notar Hempe/s Framleiðandi á íslandi: Slippfélagið íReykjavíkhf Málningarverksmiðjan Dugguvogi — Símar 33433 og 33414 Logar... Framhald af bls. 35. geta æft upp nægilega gott „pró- gramm“ til að koma með „suð- ur“. — En platan sem einu sinni var svo mikið talað um, hvernig gengur með hana? — Það gengur ekki neitt, því það var aldrei neitt ákveðið með þá plötu. Við höfum að vísu leitt talið að henni öðru hvoru, en aldrei ákveðið neitt, og að auki erum við hálfhræddir við það. — Já, bættri Henrý við, — það er alltaf eitthvað í okkur sem heldur aftur af okkur. Það sem við þurfum er gott stuð í afturendann sem myndi hvetja okkur áfram, en heldur þykir mér ólíklegt að það komi héðan frá Vestmannaeyjum. f Reykja- vík er þetta allt öðruvísi; þar eru heilu klíkurnar með hljóm- sveitunum, sem hvetja þær á- fram af fullum krafti, en hér er ekkert um það. Fólk kemur jú á dansleikina hjá okkur og segir sem svo: „Já, þetta er allt í lagi,“ en svo skeður ekkert meira. Ég tel það ráðlegt að í sumar æfðu Logar af kappi og kæmu svo til Reykjavíkur í haust, tækju upp plötu, jafnvel sjónvarpsþátt og héldu nokkra dansleiki. Annað eins hefur svo sem heyrst í útvarpi, sjónvarpi og á dansleikjum. Aðfararnótt annars dags hvíta- sunnu, var haldinn dansleikur í Samkomuihúsinu í Vestmanna- eyjum, þar sem Logar léku fyr- 36 VIKAN 24- tw- ir dansi. Troðfullt var og allir virtust skemmta sér hið bezta, enda hljómsveitin góð dans- hljómsveit, og ekki er hægt að kvarta yfir því að þeir hafi hátt. Helgi Hermannsson hafði komið til Eyja sama kvöld og mest- um hluta dansleiksins eyddi hann á sviðinu með lögum, söng, lék á munnhörpu og skemmti sér engu síður en gestir húss- ins. Tvísöngur þeirra bræðra var góður og það er greinilegt að Helgi á miklum vinsældum að fagna meðal Eyjaskeggja, rétt eins og Logar. Ég er ekki í nokkrum vafa um að það sama væri hægt að segja um Loga hér í Reykjavík - - og auðvitað víðar - - gæfu þeir hið minnsta tilefni til þess. ó. vald. Dagblöðin á veggnum og sjónvarp í dós Framhald af bls. 20. á sjónvarpskvikmyndum. Þá er hægt að kaupa sjónvarps- myndir, með tónbandi, bæði skemmti- og fræðslumyndir. Með því að setja aukatæki á sjónvarpið, er hægt að setja myndahylki í samband við sjónvarpsskerminn, og þá getur sjónvarpseigandinn ráðið ]>ví hvað hann horfir á, rétt eins og að spila hljóm- plötu á grammófón. Japanska fyrirtækið „Sony“ liefur hafið fram- leiðslu á sjónvarpsmyndum í hylkjum. Þau vega tæplega hálft kíló og kosta um það bil 2000,00 krónur, en verða fljótlega miklu ódýrari, og jafnvel verður fljótlega hægt að fá sjónvarpsmyndir leigð- ar fyrir lítið verð. Aukatæk- ið, sem „Sony“ framleiðir, verður nokkuð dýrt i byrj- un, liklega kringum 25 þiis- und krónur. Fyrirtæki i Evrópu, eins og Philips og Grundig, munu innan skamms hefja sarns konar framleiðslu eftir sama kerfi og Japanir. Fleiri fyrirtæki liafa hafið framleiðslu á s j ónvar psk vik myndum, en þetta japanska virðist vera einfaldast. Eitt er það sem vekur nrilda athj^gli í Osaka og það er baðvélin. Fyrir utan að ]ivo og þurrka líkamann, gefur hún líka stuttbylgjur og nudd. Það eru sem sagt lítil takmörk fyrir þeim nýj- ungum, sem eru á næsta leiti.... *

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.