Vikan - 11.06.1970, Qupperneq 26
Athygli heimsins beindist fyrir skömmu að Miö-Ameríkuríkinu
Gúatemala er vestur-þýzki sendiherrann þar, von Spreti greifi, var
myrtur. Þetta er land örsnauðra og ólæsra kotbænda. Auðæfi
landsins eru í höndum nokkur hundruð manna. Bandarískir auðhringar
og leyniþjónustumenn ákveða stefnuna í stjórnmálunum
innanlands. Gegn þessum aðilum berjast vinstrisinnaðir skæruliðar,
en stjórnin hefur aftur á móti á sínum vegum glæpahringi,
svo sem „Hvítu höndina". Von Spreti greifi lenti í skotlínunni milli
þessara aðila tveggja ....
REiFnmoRDincinRniR
í GuniEmmn
Bandarískur liðsforingi úr hersveitum þeim er
þekktastar eru undir nafninu Green Berets á götu f
Gúatemalaborg. Hann er einn þeirra bandarísku
herforingja sem þjálfa gúatemalska herinn til bar-
áttu gegn skæruliðum FAR,
César Montes, foringi FAR, hinnar vinstrisinn-
uðu skæruliðahreyfingar, sem berst gegn núverandi
stjórnarvöldum og áhrifum Bandaríkjanna á Gúate-
mala.
Að öllum líkindum situr morðingi von Spretis greifa nú
á skólabekk eða í fyrirlestrarsal og pælir í latínu eða lög-
fræði. Því að níu af hverjum tíu stríðsmanna Uppreisnar-
hersins (Fuerzas Armadas Rebeldes, skammstafað FAR) eru
skólanemar í Gúatemalaborg. Aðeins sjálfur foringinn og
nokkrir hans nánustu manna eru „atvinnu“-skæruliðar;
hafa hlotið fræðslu á Kúbu. Skæruliðahreyfingin heyr bar-
áttu sína án alls stuðnings að utan, þar eð hún er' fyrir
löngu komin upp á kant við Castro, Moskvu, Peking og
meira að segja kommúnistaflokk Gúatemala, sem er auð-
vitað bannaður.
Liðstyrkur FAR er talinn vera um fjögurhundruð manns.
Nýliða afla þeir sér oft með nokkuð fruntalegu móti. Dæmi:
í menntaskóla nokkrum fara nemendur í skrúðgöngu í her-
stíl, eins og siður er í landinu. Þeir bera um öxl eftirlíkingar
af byssum, úr tré, Tveir ungir'menn standa utan við skóla-
garðinn og horfa á. Að göngunni lokinni spyrja þeir skóla-
drengina, hvort þeir vilji ekki prófa að skjóta af raunveru-
legum byssum. Þrír piltar játa þessu og er þeim þá ekið á
stað, þar sem skotið er í mark.
Þegar þeir hafa skotið lyst sína, er þeim aftur ekið til
borgarinnar. Á leið yfir krossgötur nokkrar skrúfar annar
boðsmannanna niður glugga og skýtur af skammbyssu á
umferðarlögregluþjón. Síðan segir hann við skólanemana:
,,Nú eruð þið meðsekir. Ef þið gerið ekki eins og ykkur er
sagt, komum við upp um ykkur.“
Fáum dögum síðar er haft samband við einn piltanna.
Hann á að mæta á ákveðnum stað og taka að sér sendi-
boðastörf. Þegar þangað kemur, er honum fenginn pakki,
sem hann á að fara með í ákveðið hús. Pakkinn er opnaður
fyrir augum piltsins, og í honum eru handsprengjur. Skæru-
liðarnir segja: ,,f annað sinn ertu orðinn meðsekur. Þú ert
á valdi okkar,“ segir yfirmaður FAR-liðanna.
Síðan er nýliðanum fengin skammbyssa og handsprengja
og honum kennt að fara með hvorttveggja. Að lokum er
honum fengið fyrsta meiriháttar verkefnið af hálfu sam-
takanna: Hann á að myrða mann.
SK.HRULIÐARNIR HAFA LITLA ALÞÝÐUHYLLI
En unglingurinn vill ekki mann deyða og ber vandræðin
nú undir föður sinn, sem er háttsettur embættismaður hjá
stjórninni. Faðirinn ber málið aftur undir bandaríska vini
sína. Þeir senda piltinn til Bandaríkjanna, svo að skærulið-
arnir nái ekki til hans. Faðirinn gerir lögreglunni síðan
viðvart.
Henni varð ekki mikið ágengt. Þótt FAR hafi til þessa
mistekizt að ná nokkru fjöldafylgi, er það vel skipulagt og
hólfað niður í sellur, sem í mesta lagi samanstanda af sex
mönnum. Og samtökin hafa til þessa séð mætavel við lög-
reglunni.
FAR var stofnað 1962. Þá höfðu nokkrir meðlimir ann-
Greifafrú von Spreti (til vinstri) eftir a8 henni höfðu verið sagðar i
fréttirnar af morði manns hennar. Hjá henni sitja Fuentes Mohr,
utanríkisráðherra Gúatemala, og kona hans.