Vikan - 11.06.1970, Qupperneq 34
Þau merku tíðindi hafa nú gerzt
að Jónas R. Jónsson, hinn geysivin-
sæli söngvari hljómsveitarinnar Nátt-
úru, hefur ákveðið að hætta öllu
standi í poppinu. Kemur ákvörðun
Jónasar til framkvæmda í ágúst,
næstkomandi, og er ástæðan sú að
honum hefur verið falin verzlunar-
stjórn í einni „flottari" herrafata-
verzlana höfuðborgarinnar.
Það er ekki nokkur vafi á þvi að
þessi ákvörðun Jónasar á eftir að
vekja óánægju og athygli — en það
er nú einu sinni hann sem ræður.
Undanfarna mánuði hefur Náttúru
vaxið mjög ásmegin og hafa þeir fé-
lagar, og sérlega Jónas, orðið vin-
sælli með degi hverjum, svo þessi
ákvörðun kemur á hinum ólíkleg-
asta tíma. Þegar þessar línur eru rit-
aðar, er Jónas erlendis svo ég gat
ekki lagt málið fyrir hann sjálfan, en
engu að síður stendur það til um
leið og hægt er.
Það var fyrst árið 1964 að hann
hóf að syngja opniberlega og þá
með hljómsveit sem kallaði sig 5
pens, og vöktu þeir félagar óspart
athygli fyr'ir skemmtilega framkomu
og góðan söng og leik. Fljótlega
efitr það var Jónasi boðin staða í
Framhald á bls. 48.
Pósthólfíð
Kæri þáttur!
Við þökkum þér allt gam-
alt og gott. Ég og vinkona
mín skrifum þér i þeirri von
að fá svar við spurningunni:
Hver af strákunum í Roof
Tops sagði í laginu „Sjúkur
draumur um lasið fólk“, er
var á plötu þeirra sem kom
út í fyrra: „Síðan kom ör-
stutt lilé og allir fengu sér
te“?
Svo langar okkur líka til
að vita hvenær Ari er fædd-
ur og hvar liann á lieima.
Hvernig er skriftin?
Tvær sem gætu dáið
fyrir þá.
Staðreyndin er sú, að það
var enginn þeirra félaga sem
sagði þessa fleygu setningu,
heldur var hún klippt út af
segulbandsspólu sem félagi
þeirra einn átti, og því er
vandlega haldið leyndu hver
sá maður var.
Ari er fæddur 8. maí 1950,
og á heima á Laugarásvegi
13. Skriftin er þokkaleg, vel
læsileg og ber aldurinn með
sér.
Kæri þáttur!
Um daginn sögðu vinkon-
ur mínar mér að rokkkóng-
urinn frægi, Elvis Veron
Presley, væri að skilja við
konuna sína, hana Priciilu.
Guð minn góður, er það ekld
bara bölvuð vitleysa?
Viltu vera svo vænn að
birta eina nvja mynd af hon-
um Elvis Veron, og skrifa
eitthvað um liann?
Guðný Bergdís
Lúðvígsdóttir,
Hjaltabakka 6, Rvik.
Það er rétt, að þessi orðróm-
ur var á sveimi ekki alls fyr-
ir löngu, en nú hefur hann
verið kveðinn niður, enda
ósennilegt að nokkuð hafi
verið til í honum. Og fljót-
lega færðu mynd af honum
Elvis Veron þínum............
34 VIKAN 24 tbl