Vikan


Vikan - 11.06.1970, Side 40

Vikan - 11.06.1970, Side 40
helkama Kæli- og frystiskápar vekja mikla athygli vegna þess hvað þeir rúma mikið miðað við utanmál. Þrjár gerðir af kæliskápum fyrirliggjandi í sex nýtízku litum — gulir, rauðir, grænir, bláir, brúnir og hvítir. Fyrsta Flokks vara sem við mælum hiklaust með. Verð frá kr 15.975,00. ITT frystikistur fyrir allar stærðir heim- ila. Allur frágangur afar vandaður. Kisturnar eru á hjólum með læsingu og innbyggðu Ijósi. Sex stærðir fyr- irliggjandi — 160, 180, 270, 340, 410 og 530 lítra. Verð frá kr. 21.285,00 Þessa frægu þvottavél má helzt ekki nefna í auglýsingum, því að hver sendingin á fætur annarri hverfur á svipstundu. Síðasti flugvéla- farmur er uppseldur en næsta sending er með Skógafossi og verður til afgreiðslu um leið og verkfalli linnir. PFAFF saumavélar, Passap prjónavélar eru nú til á lager. Pfaff sníðaþjónustan er í fullum gangi á mánudögum og föstudögum frá kl. 2—6. PFAFF Skólavöröustíg 1-3, sími 13725. 40 VIKAN 24- tbl- STJÖRNUSPÁ*£k y Hrútsmerkið (21. marz — 20. apríl): Þú ert mjög duglegur heimafyrir og verður margt úr verki sem þig hefur langað til að koma i fram- kvæmd. Sökum forfalla vinar þíns breytast ýmis mál þér í óhag. Þú lendir í skemmtilegri veizlu. m Nautsmerkið (21. aprll — 21. ma(): Þú ert ósanngjarn í garð ákveðinnar persónu, þú ert of gjam á að láta hana vinna fyrir þig og setja allt á þinn eigin reikning. Aftur á móti nýtir þú þér ekki aðra starfskrafta, sem eru þér nærtækir. Tvlburamerkið (22. mal — 21. júnQ: Vegna þess hve störfum hlaðinn þú ert verðurðu að neita mörgum freistandi skemmtanatilboðum, eitt- hvað af þeim verðurðu þó að þiggja til þess að vera ekki talinn félagsskítur. Taktu föstudaginn rólega. Krabbamerkið (22. júnl — 23. júlí); Það er fremur þyngslalegt yfir umhverfi þínu eins og er en úr því rætist þó brátt með tilkomu vissrar persónu. Þú skalt ekki breyta neitt til um hagi þína að svo komnu máli. Heillalitur er blár. §*r Ljónsmerkið (24. iúll — 23. ágúst): Þú tekur mikið stökk heimafyrir við að koma ýms- um hlutum í lag og öðrum haganlega fyrir í kring- um þig. Þú gerir góða verzlun við kunningja þinn. Gerðu enga samninga sem þarf að undirskrifa strax. Meyjarmerkið (24. ágúst — 23. september); Þú verður fyrir svikum af hálfu eins félaga þíns sem koma þér illa. Gættu skapsmuna þinna og allra gerða, því allt á sfnar tvær hliðar eða fleiri. Þú eignast góðan vin er þú átt margt sameiginlegt með. Vogarmerkið (24. september — 23. október): Þú kynnist nýju fólki og nýjum viðhorfum sem hafa mjög þroskandi áhrif á þig. Auktu þekkingu þína á þeim sviðum sem þig hefur lengi langað til, og hugsaðu ekki mikið um fjármál. & Drekamerkið (24. október — 22. nóvember): Staðreyndir um ákveðna persónu sem þú hefur í þjónustu þinni verða til þess að þér fallast hendur í bili. Annaðhvort verðurðu að breyta um aðferðir eða losa þig við þessa ákveðnu manneskju strax. Ðogamannsmerkið (23. nóvember — 21. des.): Þú verður fyrir barðinu á óráðvendni ákveðinnar persónu sem þú hefur ekki gert þér nógu ljósa hug- mynd um. Gömul kona' færir þér smágjöf sem kem- ur sér mjög vel fyrir þig. Heillatala er þrír. Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar); Þú tekur þátt í smásvindli sem mistekst. Mál sem var efst á baugi fyrir nokkru verður nú tekið fyrir að nýju og til lykta leitt. Þú færð gott svar við vissri málaleitan þinni. Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúar): Góð þjálfun þín á vissu sviði færir þér drjúgan skilding á skömmum tíma. Þú færð að heyra orð- róm um sjálfan þig sem kemur mjög vel við þig. Á laugardagskvöld lendirðu í fjölmennum gleðskap. ísh> Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz): Innan fjölskyldunnar eru einhverjar breytingar í aðsigi sem verða öllum aðilum til mikillar ánægju. Gerðu þitt til að allt megi ganga sem bezt og fljót- ast fyrir sig. Vertu heima á fimmtudagskvöld.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.