Vikan


Vikan - 25.06.1970, Blaðsíða 13

Vikan - 25.06.1970, Blaðsíða 13
ið eftir viku, og undir eins og liún vœri viss um að hann fengi það, væri hún laus allra mála. Það var óljós lil- finning um heiðarleika — eða var það tilfinning af öðru tagi — sem krafðist þess, að hún yrði að vera George trú þar til þá. Henni þótti vænt um það eftir á að liyggja, að hún liafði talið sór trú um, að þessi viku frestur væri nauð- synlegur því að áður en vik- an var liðin, varð hún vör við ýmsa þá eiginleika í fari eftirmanns sir Georges, sem breyttu álili liennar á lion- um. Hún skildi sjálf villu sína. Hún hafði rofið tryggð við George, sem var bezli eiginmaður í heimi, og livað liafði hún fengið í staðinn? Ekkert alls ekkert! Hún hugsaði þó minna um sjálfa sig í ]>essu sambandi heldur en um George. Hún hafði sagt margt það i bréf- inu, sem liún alls ekki meinti og sem hlaut að særa liann. Hún vildi hafa gefið hvað mikið sem væri til þess að fá bréfið aftur en nú náði bún ekki til þess framar. Það var á leið til Englands, og ekkert gal stöðvað það. Hún grél liðlanga nóttiná á hótelherberginu sínu í Kairo — liún, sem liafði haldið að tár og krinolinur liefðu gengið úr tízku um sama leyti! o—o Morguninn eftir breyttist allt viðhorfið, eins og töfrar liefðu verið að verki. Mar- jorie sat uppi í rúmi sínu og var að blaða í „Egyptan Ga- zette“ frekar af rælni en fréttalöngun. En allt í einu tók liún viðbragð og starði á blaðið. „Carniola“ hafði sokkið i Neapelflóa. Ekkert mann- tjón Iiafði orðið. Snarráðum sldpstjóranum hafði tekizt að koma l)æði farþegum og skipshöfn ofan í bátana, án ])ess að uppnám yrði um borð, en „Carniola“ hafði sogað kvartmilljón punda i ómyntuðu gulli og allan póst- inn frá Egyptalandi með sér ofan i hafdjúpið. Marjorie lét sig engu skipta um gullið og heldur ekki um manns- lífin, sem bjargazt höfðu. — Það var aðeins eitt, sem henni fannst skipta máli: Pósturinn hafði allur týnzt. Hún sat eins og steingerv- ingur í nokkrar sekúndur og hugsaði ákaft. Jú, bréfið til Georges hlaut að hafa verið með „Carniola“. Það var ekki nokkur minnsti vafi á því. Marjorie var bráðlát kona, — ef til vill alltof bráðlát eins og sjá má af því sem ])egar hefur verið sagt. Hún þurfti ekki nema eina mín- útu til þess að afráða hvað gera skyldi. Hún hringdi i þjónustustúlkuna, bað um upplýsingar um livenær næsta sldp færi til Englands, lét færa sér reikninginn og skipaði stúlku sinni að taka saman plöggin og sendá í snatri simskeyti til George til þess að tilkynna lionum, að hennar væri von heim með fvrstu ferð. Þótt Marjorie hefði nú verið heima í fjóra mánuði, hafði návistin við George ekki misst neitt af töfrum sínum ennþá. Hún fór enn snemma á fætur til þess að geta snætt morgunverð með honum. Það mátti telja á fingrum sér þau fáu skipti, sem hún lét hann snæða morgunverðinn einan. Framhald á bls. 43. 26. tw. vikan 13

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.