Vikan


Vikan - 25.06.1970, Qupperneq 46

Vikan - 25.06.1970, Qupperneq 46
Sprengjan átti að eyðileggja stóra, ísraelska Boeing-flugvél. Hundrað farþegar hennar hefðu farizt ef við hefðum framkvæmt skipun skæruliðaforingjans Óm- ars. í hótelherberginu í Amman sýndi hann okkur nákvæmlega hvernig við ættum að tilreiða sprengjuna og setja hana á sinn stað. Sprengjan var lítil fyrir- ferðar, úr grænu deigi og með hvellhettu og úrverki, þannig að hægt var að ákveða sprengitím- ann nákvæmlega. Fúlmennskan 1 afstöðu Ómars var enn óhugnanlegri fyrir þá sök að hann lét sig ekki hið minnsta skipta þótt farþegarnir hundrað létu lífið saklausir. — Eyðilegging flugvélarinnar ásamt farþegum og áhöfn átti aðeins að vera til að sýna og sanna að við værum skæruliðunum hlið- hollir. Fyrst eftir það yrðu okk- ur fengin mikilvægari verkefni. — Það verður að vera Boeing 707 frá ísraelska El-Al flugfé- laginu. Því það gæti auðvitað hugsazt að þið væruð ísraelskir njósnarar, sem hefðuð það verk- efni að laumast inn í raðir okk- ar, sagði Ómar. •—■ El-Al á nokkrar gamlar Karavellur, hélt hann áfram. — En ísraelsmönnunum væri rétt sama þótt einhver þeirra væri sprengd, ef þeir gætu í staðinn komið sínum mönnum inn í innsta hring hjá okkur. Þess vegna treystum við ykkur ekki nema þið sprengið Boeing. Hann sýndi okkur síðan hvar við ættum að koma sprengjunni fyrir. Það átti að festa hana und- ir annan vænginn, nálægt út- blástursopi. Hún varð að springa upp, inn í vænginn. Til að festa sprengjuna þurfti ekki annað en sterkt teip. — Þið verðið að taka stykk- in með ykkur til Lundúna og setja sprengjuna saman þar, sagði Ómar. Trefor spurði hvort við gætum ekki í staðinn feng- ið sprengjuhlutana hjá einhverj- um trúnaðarmanni Araba í Lundúnum. Það gæti sem sé hugsazt að tollverðirnir fyndu sprengjuna í farangri okkar. — Fulltrúa okkar í Lundún- um hittið þið þegar þið hafið sprengt Boeing-vélina, sagði Ómar. — Þá og ekki fyrr. Þang- að til getið þið aðeins náð sam- bandi við okkur í Jórdaníu eða Egyptalandi. Skömmu síðar sátum við mikla ráðstefnu með fjölda skæruliða í sama herbergi á Fíladelfíu-hóteli. Einn viðstaddra skæruliða sagði að í Lundúnum væru tvö samkunduhús Gyðinga. Þau ætti að sprengja í loft upp. Kannski var það hið gyðing- lega ætterni föður míns, sem gerði það að verkum að þetta varð mér ofmikið. Sg þaut upp af stólnum og sagði: — Þetta er einum of mikið, Trefor! Nú fer ég beint heim! 46 VIKAN 26- tbl- Verkir, þreyta í baki ? DOSI beltin hata eytt þrautum margra. ReyniS þau. EMEDIAH.F LAUFÁSVEGI 12 - Síml 16510 Á næsta andartaki stóð einn skæruliðinn upp, dró upp skammbyssu og gekk til mín. Ég hélt að hann myndi skjóta mig þar á staðnum. Ég hörfaði undan. — Það er allt í lagi með hann, sagði Trefor í flýti við Ómar. — Hann er bara dálítið spenntur. Hann fór síðan með mig út í horn og sagði að ég skyldi ekki hegða mér eins og bölvað fífl. Ég gæti eyðilagt þetta allt sam- an. — Ég geri ekkert af þessu, sagði ég. — Þú skiptir um skoðun þeg- ar þú færð peninginn, sagði hann. Ég hugsaði sem svo að ég yrði að halda mér í skefjum smátíma í viðbót. En ég hafði ekki leng- ur áhuga á peningunum, þótt um milljónir punda væri að ræða. Það hljómar kannski undar- lega að Arabarnir skyldu ekki taka reiðikast mitt alvarlegar. En þeir voru mjög áfram um að fá okkur Trefor í þjónustu sína. Arabískir skemmdarverkamenn eiga erfitt um vik í Evrópu, þar eð þeir eru auðþekktir frá Evrópumönnum. Eftir fundinn sagði ég Trefor að ég væri ekki lengur með í þessu. Hann varð öskureiður og við slógumst. En hann tók það ekki heldur mjög alvarlega; hélt bara að ég væri svona slæmur á taugum. En ég vissi hvað ég ætlaði að gera. Jafnskjótt og til Englands kom gerði ég lögreglunni við- vart. Hún var tortryggin fyrst, en trúði mér um síðir og gerði Scotland Yard viðvart. Trefor Williams var handtekinn aðeins nokkrum klukkutimum áður en fyrirhugað hafði verið að við limdum sprengjuna neðan í Bo- eing-flugvélina. Rétturinn dæmdi hann í tíu ára fangelsi. Eins og vitað er, hefur upp- ljóstrun min ekki hrætt aðra frá að sprengja ísraelskar flugvélar. Átökin milli ísraels og Araba halda áfram með sömu fyrirlitn- ingunni fyrir mannslífum og ég hef sjálfur heyrt dæmi til. Þótt svo að ég hafi verið í lífshættu frá því að ég gerði lög- reglunni viðvart, þá sé ég ekki eftir því. En hræddur verð ég unz ég hef fundið einhvern nýj- an stað til að búa á, stað þar sem ég er vel falinn. Eða þangað til Arabarnir fá hefnd sína fyrir að ég kom upp um fyrirætlanir þeirra.... ☆ Lán í óláni Framhald af bls. 13. Nú skyldi enginn halda, að George væri skemmtilegri yfir horðum en eiginmenn eru yfirleitt. Langt frá því. Hann var allur í póstinum og morgunblöðunum þá stundina. Það var með öðr- um orðum ekki til þess að njóta skemmtilegra morgun- viðræðna, að Marjorie lagði það á sig að fara snemma á fætur til þess að borða með honum. Tilgangurinn átti sér dýpri rætur, svo djúpar, að Marjorie, sem alls ekki hafði rannsakað sjálfa sig itarlega, gat ekki gert sér grein fyrir því sjálf. En afjeiðing þess var sú, að Marjorie las blöðin nokk- urn veginn reglulega. Ilvað átti hún annað að gera með- an George var niðursokkinn í sitt blað? Hún var ekki lengi að lesa hréfin sín. Auðvitað var það yfir morgunverðinum, sem Mar- jorie uppgötvaði, að stór- hætta vofði yfir henni. Hún las í hlaði, að itaíska björgunarfélagið „Bixio“ væri að húa út leiðangur til þess að bjarga „Carniola“ af hotni Neapelflóans. Þarna var til milljónafjórðungs punda að vinna, og þegar vetrarstormarnir væru liðn- ir Iijá væru góðar horfur á, að björgunin mundi takast. Þess var getið til fróðleiks, að gullið lægi neðst í klefan- um, sem póstsekkirnir væru í. Björgunarmennirnir til- kynntu siðar, að köfurunum Iiefði tekizt að komast inn i póstklefann og náð þaðan nokkrum póstpokum. Lik- lega væri hægt að ná öllum póstinum á fáeinum dögum, og af þvi að áritanirnar væru læsilegar á því sem komið var upp, mundu bréfin verða send til réttra viðtakenda. Marjorie kæfði niðri i sér angistarvein og bögglaði blaðinu saman. Andlit henn- ar varð náhvitt. George setti frá sér kaffi- bollann svo hart að small í. — Hvað er að þér, elskan mín? spurði hann og spx-att á fætur. — Ekki neitt, sagði Mar- jorie óðamála. — Ekki neitt. Ætlarðu ekki að drekka út úr hollanum þínum? Jæja, ertu húinn. Æ, þú verður að flýta þér, annars vei'ðurðu of seinn. Flýttu þér nú! -— Vertu sæll og blessaður! o—o Þegar George var kominn út úr húsinu og upp í bifreið- ina senx beið hans fyrir xxt- an, reyndi Marjorie af fremsta megni að vinna hug á lii’æðslunni, sem hafði giápið hana, og lita skyn- samlega á málið. Hún vildi fyrir engan mun, að George fengi bréfið sæla, en hún gat ekki fundið neitt ráð til þess að afstýra því. Hún mundi sér til mikillar gremjxx, að hún hafði áritað hréfið á skrifstofxxna en ekki heim. Þess vegna var henni ómögu- legt að komast yfir hréfið og eyðileggja það áður en það bærist lxonum í hendur. Mar- joi-ie þekkti Higgins, skrif- stofumanninn hjá George, alltof vel til þess að láta sér detta i liug að hægt væri að fá hann til þess að afhenda henni bréf, senx áritað væri lil Georges Brand. Hún vildi fyrir eixgan mun, að George læsi bréfið. Þegar húxx ski-ifaði það á gistihús- inu í Kairo hafði hún sann- arlega ekki gefið sér tima til að yfirvega oi’ð síix. Enn hljómuðu fyi’ir eyrum henn- ar setningar úr þessu ólukkxi bréfi. Kvöldið sem liún skrif- aði þær, hafði henni fund- izt þær orð í tíma tölxið. En nú fann hún hversu órélt- nxæt þessi orð voru. George mundi taka þau sér mjög nærri. Og setjum svo, að liann nxissti alla ást til henn- ar eftir að hann hefði lesið hréfið. Það fór skelfingar- hrollur xmi hana. Æ, hún vildi gera hvað sem vera skyldi, til þess að nxissa ekki ástir Georges.

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.