Vikan - 25.06.1970, Blaðsíða 29
Allur akstur bannaður og kona
stjórnar. Litla eyjan Sark,
fyrir utan Normandístrendur
er reglulegur forngripur.
Lénsskipuiagið ríkir þar ennþá,
og það er eins og tíminn
bafi staðið kyrr í aldaraðir. Hinir
500 íbúar eyjarinnar verða
ennþá að greiða tíund
kvendrottnara eyjarinnar, Sibyl
Hathaway, sem er orðin 85
ára gömul, og hún stjórnar
eftir gamalli hefð ...
ið hingað, ég tek aðeins á móti
í dagstofu minni.
• Þessa afstöðu tók hún til setu-
liðsins allt stríðið. Hún var jafn
ákveðin gagnvart Þjóðverjum og
hún hafði ætíð verið gagnvart
Englendingum. Hún er nefnilega
á þeirri skoðun að Sark heyri
alls ekki undir brezku krúnuna.
Vilhjálmur bastarður var frá
Normandi, og Sark heyrði því til.
Vilhjálmur sigraði Englendinga í
hinni frægu orrustu við Hastings
árið 1066 og lagði undir sig land-
ið. En það stóð ekki lengi.
ENGIR SKATTAR
Eyjarnar í sundinu hafa mikil
hlunnindi, samanborið við önn-
ur samveldislönd Breta. Eyja-
skeggjar greiða ekki skatt. Og
eyjarnar hafa sjálfstjórn. Samt
hafa , eyjaskeggjar sömu hlunn-
indi og aðrir þegnar Bretaveld-
is. Á eyjunum eru töluð tvö
tungumál, bæði enska og
franska.
Á Sark eru 18 stórbýli. Þegar
Sibyl Hathaway hótaði að segja
af sér, yfirlýsti einn af stór-
bændunum að þá myndi hann
lýsa sína jörð fríríki. En af því
varð þó ekki.
„The Dame“ bauð þá Guern-
sey að taka að sér stjórnina á
Sark. Hún viðurkennir að aldur-
inn sé að færast yfir hana, en
lét sig hafa það að halda áfram
sinni stjórn, þótt hún sé orðin
85 ára gömul.
Sark er eiginlega skipt í tvo
hluta, Litla Sark og Stóra Sark,
sem er tengt saman af eiði, þar
sem öldur Atlantshafsins gnauða
stöðugt á klettunum.
Við lítið sund á vesturströnd-
inni er staður, sem kallaður er
Brechou; þar var einu sinni að-
setur danskra víkinga. Víking-
arnir komu ótrúlega víða við.
Sark er mjög óaðgengileg til
lendingar. Klettótt ströndin og
hættuleg blindsker hafa orðið
mörgu skipinu að grandi, enda
höfðu eyjaskeggjar oft töluverð-
ar tekjur af strandgóssi. Áður
voru tvær smáhafnir á eynni, en
nú er komin ágætis höfn í La
Maseline Harbour. Það var her-
toginn af Edinborg sem vígði
hana árið 1949. Eyjaskeggjar
gort.a af því að höfnin hafi kost-
að 52 þúsund pund. Þá upphæð
fengu þeir með því að skatt-
leggja áfengi.
Þessi klettaey er dásamlegur
staður, og á Bretlandi þykir það
eftirsóknarvert að upplifa vor-
daga á Sark. Haustið getur líka
verið skemmtilegt. Það er að-
eins um háveturinn, þegar vetr-
arstormarnir æða, að ekki er eft-
irsóknarvert að vera þar.
Nú er lífið farið að taka ýms-
um breytingum á Sark. „The
Dame“ hefur orðið að beygja sig
fyrir nýja tímanum, það er jafn-
vel komið kvikmyndahús á stað-
inn. Tekjur af ferðamönnum eru
heldur ekki til að fúlsa við, þar
frekar en annars staðar.
Þetta er annað af tveim vélfarartækjum á eynni. Stórbóndinn
Carré á það, en hitt á sú gamla sjálf.
Áður höfðu eyjaskeggjar töluverðar tekjur af strandgóssi, en
í góðu veðri eru strendurnar friðsælar.
Hestvagnar eru þau farartæki sem ferðamönnum er boðið upp
á. Hér bíða nokkrir ökumenn eftir ferðamönnum.
26. tbi. VIICAN 29