Vikan


Vikan - 25.06.1970, Blaðsíða 27

Vikan - 25.06.1970, Blaðsíða 27
bakafl- ir réidr Fínn kjötbakstur 750 gr kálfakiötshakk 250 gr svínahakk 3 msk. brauðmylsna 1 dl mjólk 1 egg 100 gr. skinka 1—2 tsk. salt 1/3 tsk. pipar V2—1 tsk. salvía eða rosmarin ca. 2 dl kalt vatn 2 eggjarauður 2 dl rjómi (rjómabland) 4 tómatar 100 gr rifinn ostur. Látið brauðmylsnuna blotna upp í mjólkinni. Kjötið sett saman við, skinkan fíntskorin, heila eggið og kryddið. Hrærið þessu vel saman. Bætið vatninu í. Þá eggjarauðurnar og að síðustu rjóminn. Farsið á að vera laust í sér. Sett í smurt form. Bakað í 225° heitum ofni í ca. V2 klst. Breiðið þá tómatsneiðar yfir og rifna ostinn og steikið áfram við 250° í ca. 20 mínútur til viðbótar. Hrátt grænmetissalat og steiktar kartöflur hæfa vel með þessum rétti. Púrrubakstur 1 stór púrra eða 2 minni 1—2 sneiðar flesk á mann. Púrran soðin í léttsöltu vatni og látið renna vel af þeim. Fleskið skorið í smábita og steikt. Búið til þykka hvíta sósu úr smjörlíki, hveiti og rjómablandi. Kryddið með salti og pipar. Rifnum osti bætt í áð síð- ustu. Gott er að hafa vel útilátið af ostinum. Tekið af hitanum og eggja- rauðu bætt í. Púrran sett í eldfast smurt form og sósunni hellt yfir. Látið bakast í ofninum í 10—15 mín- útur. Þá er fleskið sett utan með og látið aftur inn í ofninn dálitla stund. Brauð borið með. Ostasufflé 3 msk. smjör % tsk. salt 4 msk. hveiti 3 dl mjólk 3 egg 200 gr ostur 2 msk. rifinn ostur. Búið til uppbakaðan jafning úr smjöri, hveiti og mjólk. Eggjarauð- unum hrært útí einni og einni í einu, ásamt salti. Osturinn skorinn í litla bita og þeim blandað saman við. Hvíturnar stífþeyttar og þeim bland- að gætilega saman við. Sett í smurt eldfast form og 2 msk. af rifnum osti stráð yfir. Bakað í ca. 50 mín- útur við 200°. Berið fram brauð með ásamt grænmeti. 26. tbi. vikan 27

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.