Vikan


Vikan - 25.06.1970, Side 23

Vikan - 25.06.1970, Side 23
Það er ekki ólíklegt að það hafi verið á síðasta snúning að John Wayne fékk Oscars- verðlaunin í ár, því að hann er nú orðinn nokkuð fullorðinn. EKKI SEINNA VÆNNA Liz Taylor ljómaði eins og risademanturinn hennar, þótt hún kannske hafi verið vonsvik- in yfir )>ví að eiginmaður hennar var ekki einn af þeim útvöldu. Það er óneitanlega glæsilegur hópur, sem er samankomin ár hve/ t við Oscarsverðlaunaafhendinguna. Risademantur Liz Taylor glitr- aði, en trúlegt er að hún hafi samt verið nokkuð vonsvikin, yfir því að eiginmaður hennar, Richa/d Burton, skyldi ekki verða fyr- ir valinu, því hann hafði verið tilnefndur. En Liz lét ekki á neinu bera, hún á sjálf eina styttuna. John Wayne gat auðvitað ekki tára bundizt, þegar hann tók við verðlaununum af Barbra Streisand, sem afhenti honum þau, og var hún töluvert hlýlegar klædd, en þegar hún sjálf veitti ve/ð- laununum móttöku í fyrra. Nú er því haldið fram að svo geti farið að þetta verði í síðasta sinn, sem Hollywood veitir þessi verðlaun, en ekki er það víst, við sjáum hvað setur. ... John Wayne gat ckki tára bundizt. Pilar Wayne óskar manni sínum til hamingju og kyss- ir burt tárin.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.