Vikan - 25.06.1970, Síða 28
— Ég vil ekki hafa ólyktina
af bílum á minni ey, segir ma-
dame Sibyl Hathaway, sem líka
er kölluð „The Dame“. Hún er
ennþá spræk og ákveðin, þrátt
fyrir háan aldur, og er einráð á
Sark.
Nýlega hótaði hún að láta af
völdum og fá stjórnendum eyj-
arinnar Guernsey yfirráð yfir
Sark. En á síðustu stundu var
hægt að fá hana ofan af því.
Gamla konan hefur mestu
andstyggð á bílum og þess vegna
hefur hún bannað akstur þeirra,
það eru aðeins tvær undantekn-
ingar, tveir þríhjólavagnar, sem
ætlaðir eru lömuðu fólki. Annan
notar hún sjálf.
Sark er lítil eyja. Frá nyrzta
oddanum, „Bec du Nes Point“ til
suðuroddans, „Moie de Port Go-
rey“, eru aðeins 5,6 kílómetrar,
og þar sem hún er breiðust, er
hún aðeins 2,4 kílómetrar. Sark
er því aðeins lítil doppa á kort-
inu. í heimsstyrjöldinni síðari
var eyjan hersetin af nasistum.
Þeir höfðu hugsað sér að nota
eyjarnar í sundinu sem stökk-
bretti við innrás í Bretland. En
þar sem ekkert varð af innrás,
þá settu þeir setulið á eyjarn-
ar, til að koma í veg fyrir að
Englendingar notuðu þær í
væntanlegri innrás í „Festung
Europa“. En Hitler og hershöfð-
ingjar hans misreiknuðu sig,
innrásarliðið fór í kringum eyj-
arnar og beint til Normandí.
Sibyl Hathaway, sem var jafn
ákveðin þá og nú, en hún var
sextug á stríðsárunum, lét ekk-
ert á sig fá, en sat sem fastast
á setri sínu. Þegar henni var
sagt að Þjóðverjarnir væru
komnir og hún var spurð hvort
hún ætlaði ekki niður að höfn-
inni. til að taka á móti þýzku
liðsforingjunum, þá sagði hún
stutta’’alega:
— Ef þeir eiga eitthvert er-
indi við mig, þá geta þeir kom-
„Xhe Dame“ á Sark er 85 ára, en enn-
þá spræk og ákveSin. Hún ræSur
lögum og lofum á Sark, sem er eitt
af síSustu virkjum lénsskipulagsins í
Evrópu. Eiísabet I. Bretadrottning gaf
Hclier de Cateret eyjuna með gjafa-
hréfi frá árinu 1565. Amma Sibyl
Hathaway keypti hana svo fyrir sex
þúsund pund árið 1852. Og enn þann
dag í dag verða eyjaskeggjar að greiða
„tíund“.
28 VJKAN 26-tbl-
:;|Í;ÍpS
I
illl
.
.
■ :
.
Ef eyjaskeggjar þurfa að fara um hina fögru eyju, þá verða
þeir að láta sér nægja reiðhjól.
Setur „The Dame“ á Sark er byggt yfir rústirnar af gömlu
klaustri. Þetta er reisulegasta húsið á eynni, og garðurinn,
sem er bæði stór og fallegur, er til sýnis fyrir ferðamenn. Það
koma um það bil 50.000 ferðamenn til Sark á hverju sumri.