Vikan - 25.06.1970, Side 45
Morð fyrir milljónir
Framhald af bls. 15.
Okkur voru boðnir flugmiðar
og peningar fyrir hótelgistingu,
en Trefor sagði að stofnun sú,
sem við tilheyrðum, hirti ekki
um slíka smámuni. Áður en ég
vissi hvaðan á mig stóð veðrið
var ég lagður af stað til Araba-
landanna ásamt Trefor.
Á þessu stigi málsins hugsaði
ég lítið um minn gyðinglega
uppruna, þar eð ég var ekki al-
inn upp við Gyðingatrú. Ég er
aldrei viss um hvort ég eigi að
telja mig Gyðing eða ekki. En
síðar miklaðist þetta vandamái
fyrir mér.
Trefor fjölyrti mjög um allar
þær milljónir punda sem við
myndum fá fyrir störf okkar. —
En verði okkur á mistök, verður
það okkar bani! bætti hann við.
Fleiri voru með í þessu þótt
þeir ættu ekki að fara til Kaíró
og Amman. En þeir töluðu mik-
ið sín á milli um peninga á sviss-
neskum bankareikningi.
Stemningin var eins og í
James Bond-sögu um það leyti
sem við lögðum af stað. Einn
félaganna útvegaði bindisnælu,
FjarlægiS
naglaböndin
á auðveldan hátt
* Fljótvirkl
* Hreinlegt
* Engarsprungur
ú Sársaukalaust
Hinn sjálffyllti Cutipen gefur mýkj-
andi lanolín blandaðan snyrtilög, einn
dropa í einu sem mýkir og eyðir
óprýðandi naglaböndum. Cutipen er
eins og fallegur óþrjótandi sjálfblek-
tingur sérstaklega gerður til snyrting-
ar. Hinn sérstæði oddur hans snyrtir
og lagfærir naglaböndin svo að negl-
ur yðar njóti sín. Engra pinna eða
bómullar er þörf. Cutipen er algjör-
lega þéttur svo að geyma má hann í
handtösku. Cutipen fæst í ölluni
snyrtivöruverzlunum. Handbærar á-
fyllingar.
CwtipC^v
Fyrir stökkar neglur biðjið um Nutri-
nail, vítamínsblandaðan naglaáburð
sem seldur er í pennum jafn hand-
hægum í notkun oð Cutipen.
UMBOÐSMAÐUR:
J. Ó. MÖLLER & C O.
KIRKJUHVOLI, REYKJAVÍK
sem í rauninni var míkrófónn,
og senditæki.
Ég vildi ekki ipyrða
og ræna
Við fengum líka með okkur
segulbandstæki og stuttbylgju-
útvarpstæki sem leit út eins og
sígarettupakki. Hlustunartæki
fengum við einnig. Ég setti á
mig þessa bindisnælu, en Tre-
for ákvað að lokum að við skyld-
um ekki taka þetta drasl með
okkur.
Við flugum fyrst til Amman,
skítugrar og ruglingslegrar borg-
ar sem byggð er á hólum. Flug-
völlurinn var ósköp kotalegur í
samanburði við Lundúnaflug-
völl. Við stilltum okkur upp í
biðröðina fyrir framan vega-
bréfaskoðunina, en þegar að
henni kom vorum við meðhöndl-
aðir eins og fínt fólk. Vega-
bréfaskoðarinn tók okkur út úr
röðinni og fór með okkur sér-
staka leið. Þar komu til móts
við okkur tveir menn, sem ég
held að hafi verið hermenn. Þeir
voru gráir fyrir járnum og í
felueinkennisbúningum. Síðar
frétti ég að þeir væru skærulið-
IGNIS
KÆLISKÁPAR
m/djúpfrysti
MiiLJiUlW
V E R Ð
Lítr. Staðgr. Afborg
225 kr. 21.200 22.600,—
275 kr. 23.172 24.612,—
330 kr. 33.020 34.943,—
400 kr. 37.325 39.435,—
Afþýðing óþörf,
Sjálfstilling á rakastígi,
m/rennihillum,
Einnig fáanlegir í teak lit',
AÐALUMBOÐ
RAFIÐJAN
VESTURGÖTU 11 REYKJAVÍK SlM119294
ar.
Þeir fóru með okkur í bíl til
Fíladelfíu-hótels, þar sem við
hlutum mjög alúðlegar viðtök-
ur. En vopnuðu mennirnir viku
ekki frá okkur. Hvað ertu eig-
inlega kominn út í? spurði ég
sjálfan mig.
Það lá við að ég kenndi í
brjósti um Arabana, sem komu
mér fyrir sjónir sem hálfgerðir
apar. En ekki vildi ég fara að
myrða og ræna fyrir þá. Ég
vildi ekki heldur láta drepa mig.
Þegar að því var komið að við
yfirgæfum Arabalöndin vissi ég
enn betur um lífshættuna, sem
við vorum í. Á ráðstefnum okk-
ar höfðu Arabarnir sagt margt
af framtíðaráætlunum sínum og
starfsaðferðum. Ég efaði ekki að
þeir væru vísir til að drepa mig
til að hindra að sá fróðleikur
næði öðrum eyrum en til var
ætlazt. Engu að síður var ég
ákveðinn í að tilkynna brezku
lögreglunni þetta þegar í stað til
að koma í veg fyrir morðin, sem
fyrirhuguð voru.
Ég er ekki hræddur við dauð-
ann, en líkt og allir aðrir vil ég
helzt lifa eins lengi og mögulegt
er. Jafnskjótt og ég gerði lög-
reglunni viðvart, kæmist ég á
dauðalistann hiá Aröbunum, það
vissi ég. Scotland Yard var á
sama máli.
í endurminningunni virðist
það nú óraunverulegt að ég
skuli hafa setið ráðstefnur, þar
sem morð og mannrán voru
skipulögð. Það virðist óraun-
verulegt að ég skyldi í venju-
legu hótelherbergi læra að búa
til sprengju, sem ætlað var að
eyðileggja farþegaflugvél fulla
af fólki. Einnig það að við Tre-
for flugum til Englands með allt
sem þurfti til sprengjunnar.
NÝTT FRÁ RAFHA
NÝ ELDAVÉL GERÐ HE6624. 4 hellur, þar af 1 með stiglausri
stillingu og 2 hraðsuðuhellur, stór ofn, 56 lítra, yfir- og undirhiti
fyrir steikingu og bökun, Ijós í ofni. Fæst með eða án glóðar-
steikar elements (grill). — Heimkeyrsla og Rafha ábyrgð.
VIÐ ÖÐINSTORG - SlMI 10322
26. tbi. VIKAN 45