Vikan


Vikan - 10.09.1970, Blaðsíða 4

Vikan - 10.09.1970, Blaðsíða 4
Á grannvitrum grœðir mangar- inn mest. SIÐAN SÍÐAST íslenzkur málsháttur Hver hreppir kórónuna? Það var skozka stúlkan Be- linda—Jane Anderson sem vann í fegurðarkeppninni. Hún fékk peninga, kórónu á höfuðið og þær sem töpuðu horfðu á hana öfund- araugum. Þetta var alveg eins og í hverri annarri fegurðarsam- keppni, að því undanskildu að keppendur voru aðeins 2—7 ára, enda voru það mæðgurnar sem voru taugaspenntar og otuðu dætrum sínum fram fyrir dómar- ana, sem áttu að velja fallegasta stúlkubarnið á Bretlandseyjum. Ekki er ráð nema í tíma sé tekið. Sonur John Wayne yfirgefur pabba Þeir feðgar eru víst ekki á einu máli .Patrick Wayne er orðinn þreyttur á að leika í kvikmynd- um með föður sínum, en það hef- ir hann gert átta sinnum. — Ég er orðinn leiður á að standa allt- af í skugga föður míns, segir pilt- urinn. Patrick hefir árangurs- laust reynt að fá hlutverk í kú- rekamyndum í Bandaríkjunum, það er að segja á eigin spýtur. Snobbaöurhundur Hundurinn á myndinni heitir Punainen og er finnskur að ætt- erni, en býr nú í Sovét. Medalí- urnar fékk hann flestar í Finn- landi, en eftir að Rússum tókst að klófesta hann fyrir töluvert magn af kavíar og vodka, hefur hann og fengið nokkrar medalí- ur austur þar. Allt er þetta fyrir einskæra útlitsfegurð kvikindis- ins. Nú er hann kominn til Róm og ætlar að reyna sig í Spaghetti- kúrekamyndum. Það getur verið að ítalir verði fegnir að geta sett nafnið Wayne í auglýsingar, þótt það sé ekki John Wayne. EKKI KAUPA MAT ÞEGAR ÞÚ ERT SVANGUR! — Forðist kjörbúðina eins og heitan eldinn þegar þér eruð svangur, ráðleggur þýskt tímarit lesendum sínum. Rannnsóknir í Þýskalandi hafa leitt í ljós, að svangir viðskiptavinir kaupa fjórðungi meira í matinn en saddir. Annað sem ber að vara sig á þegar keypt er í matinn er að snerta ekki við vörunni, því að önnur rannsókn hefur leitt í ljós að hafi viðskiptavinurinn einu sinni tekið vöruna í hönd sér, þá kaupir hann hana í fimmtíu til- fellum af hverjum hundrað, hvort sem hann þarf hennar við eða ekki. Verzlunarmenn hafa áttað sig á þessu, því að þeir hafa margir fyrir sið að stilla út þeim vörum, sem þeim er mest í mun að losna við, á sérstaklega áber- andi og tælandi hátt. Bezta ráðið við þessum hrekkj- um matvöruverzlananna kvað vera að gera nákvæman inn- kaupalista löngu fyrirfram, og halda sig við hann hvað sem í skerst. Og sem sagt: aldrei að fara til að kaupa í matinn nema borða sig vel saddan fyrst. Grátur er ófríðum konum til bjargar, en eyðileggur þœr fallegu. Oscar Wilde. 4 VIKAN 37- tw.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.