Vikan - 10.09.1970, Síða 42
FRÁ RAFHA
BORÐHELLA MEÐ 4 HELLUM, þar af 1 með stiglausri stillingu og
2 hraðsuðuhellur. — Heimkeyrsla og Rafha ábyrgð.
56 LÍTRA OFN MEÐ LJÓSI, yfir og undirhita stýrt með hitastilli. Sérstakt glóðarsteikar element (grill).
Klukka með Timer. Heimkeyrsla og Rafha ábyrgð.
VIÐ OÐINSTORG - SlMI 10322
að hagkvæm kaup gætum við
gert í NSrbogade, þar væri mik-
ið vöruval. En þegar þangað kom
urðum við þó í talsverðum
vanda staddir og það kannske
ekki sízt vegna þess, hve margra
kosta var völ. En nú eins og fyrr
í þessu velheppnaða ferðalagi,
höfðum við lánið með okkur.
Þarna hittum við íslenzka konu,
sem dvalið hafði í Danmörku í
40 ár. Hún var öllum hnútum
kunnug og einnig mjög smekk-
vís. Leiðbeindi hún okkur með
öll innkaup vel og viturlega og
bauð okkur að því búnu heim
til kaffidrykkju. Kona þessi
hafði gifzt ytra dönskum manni,
sem Olaf hét.
Eftir að hafa setið þarna í
góðu yfirlæti snerum við aftur
heim á hótelið þar sem við
bjuggum.
Öll var þessi ferð okkur hin
ánægjulegasta. En einstök fannst
okkur þó fyrst og fremst gest-
risni og alúð þess fólks, sem við
útlendir menn öllum ókunnugir
nutum.
Þegar heim kom keyptum við
nokkur íslenzk loðskinn og send
um þessu ágæta fólki sem ofur-
lítinn þakklætisvott. En skinn
eru sú vara, sem nýtur mikilla
vinsælda erlendis.
Hinni íslenzku konu átti ég
síðar kost á að greiða dálítið
fyrir. Hún var þá á ferð hér
heima. Þ. M.
Við vorum hræddari...
Framhald af bls. 15
elsisvist. í Vestur-Þýzkalandi
gerðu þeir ráð fyrir að sleppa
með vægari refsingu.
í von um að skapa sér framtíð
í „hinu gullna vestri“ létu þessi
átta ungmenni sig hafa það að
grípa til ráðs, sem alls staðar er
talið glæpsamlegt: flugvélarráns.
En í Vestur-Þýzkalandi hafa
flóttamenn frá ríkjum kommún-
ista löngum verið vel séðir, svo
að flóttafólkið vonaði að sá
vestur-þýzki dómstóll, sem um
mál þeirra fjallaði, myndi sjá í
gegnum fingur við þau.
Pörin fjögur voru frá smá-
þorpi að nafni Ostrov rétt hjá
Karlovy Vary, sem er í Súdeta-
héruðunum og hét til skamms
tíma Karlsbad. Þau höfðu þekkzt
frá bernsku og unnið í sömu
glerverksmiðjunni. Þeim þótti
kaupið lágt miðað við verðlag;
þau urðu enn að búa heima hjá
foreldrum sínum og höfðu enga
von um að fá eigið herbergi,
hvað þá eigin íbúð.
Svo að þau fór að langa vest-
ur í auðvaldsheiminn. En landa-
mærin höfðu verið lokuð frá
sovézku innrásinni 1968. Og að
skríða í gegnum gaddavír í
myrkri og þoku með fjórar kon-
ur og smábarn virtist ómögulegt.
Það var ekki um annað að velja
en loftleiðina.
Karlmennirnir skipulögðu að-
gerðirnar. Upprunalega var fyr-
irhugað að fljúga á föstudaginn
tuttugasta og níunda maí. Þau
voru búin að kaupa miðana, en
þegar til kom var svartaþoka í
Karlovy Vary og fluginu var
frestað. Flóttafólkið ók í öngum
sínum heim; þau þorðu ekki að
reyna að fá miðana endurgreidda
af ótta við að allt kæmist þá
upp. Miðarnir féllu því úr gildi.
Til að afla sér nýrra miða seldu
þau allt, sem þau gátu losað sig
við: úr, skartgripi, útvarpstæki
og bifhjól. Og áttunda júní kom-
ust þau loksins á loft.
Flugvélin stefndi nú á Núrn-
berg, og Jiri, Rudolf og Jaro-
slav stóðu vörð yfir flugmönn-
unum frammi í stjórnklefa. Far-
þegarnir voru nú farnir að jafna
sig eftir hræðsluna, sem hafði
gripið þá fyrst þegar þeir sáu
skammbyssurnar. Sumir voru
ekkert vondir út í flugvélarræn-
ingjana. Maður nokkur sagði við
Mariu: „Hefði ég vitað þetta,
hefði ég tekið fjölskylduna með.
Því miður get ég ekki notað
þetta tækifæri."
Stanislava sagði svo frá síðar:
„Hinir farþegarnir voru allir
ákaflega alúðlegir við okkur.
Það leið ekki á löngu áður en
okkur hvarf allur ótti. Við höfð-
um óttazt að til illinda kæmi við
áhöfnina, en menn okkar höfðu
lofað okkur að skjóta ekki, hvað
sem í skærist. Við vildum alls
ekki særa eða drepa neinn. Ef
flugmennirnir hefðu neitað að
gera eins og við báðum, værum
við nú fangar fyrir austan.“
Eftir tæprar klukkustundar
flug lenti flugvélin á flugvellin-
um við Nurnberg. Vestur-þýzka
lögreglan tók þá karlmennina
fjóra og Veru í sína vörzlu, af
því að að þau voru vopnuð. Þau
verða að svara til saka fyrir
rétti. Maria, Eva og Stanislava
fengu hins vegar að að fara
frjálsar ferða sinna.
Flóttafólkið hefur allt beðið
um hæli sem pólitískir flótta-
menn og gerir sér miklar vonir
um framtíðina. „Fyrst ætlum við
að græða dálítið af peningum og
kaupa okkur svo litlar íbúðir,"
sagði Maria.
☆
42 YIKAN 37- »i.