Vikan - 19.08.1971, Blaðsíða 4
P0STURINN
Svar til
Einnar hugsandi:
Ég skil vel að þú skulir vera
hreykin af því að vera hrein
mey ennþá. Það er erfitt að
segja til um hvort hann er hrif-
inn af þér, því strákar á þessum
aldri laðast mjög oft að stúlkum
á þinum aldri; finnst þær fersk-
ar og fallegar og af því getur
allt glápið stafað. En ef þú ert
viss um að þú elskir hann, þá
skaltu reyna að gefa þig meira
að honum og ef hann tekur vel
í það, er aldrei að vita hvernig
fer. En mundu samt að ræða
málið við hann í fullri hrein-
skilni áður en nokkuð er að-
hafzt; það er nær ótrúlegt hversu
mikils virði slíkar samræður geta
verið.
Brandari?
Elsku Póstur!
Ég hef lesið VIKUNA í fjölda
ára og Póstinn sérstaklega. Ég
vona að þetta lendi ekki í rusla-
körfunni. Þannig er mál með
vexti, að ég er að deyja úr ást.
Það er ekki aðeins ein, heldur
þrjár. Ég hitti þær á sveitaballi
og get ekki gert upp á milli
þeirra. Þess vegna hitti ég þær
til skiptis. Elsku Póstur, hvað á
ég að gera?
Leystu þetta vandamál fyrir mig
og enga útúrsnúninga.
Ólafur Magpússon, Búrfelli.
P.S. Hvað kostar til Afganistan,
aðra leið?
Það eru hæg heimatökin með að
veita þér upplýsingar um kostn-
að við för til Afganistan, því
einn blaðamanna VIKUNNAR er
einmitt nýkominn þaðan. Með
rútum og lestum ætti að vera
hægt að komast frá Kaupmanna-
höfn til Kabúl í Afganistan fyrir
um það bil 10.000 krónur ís-
lenzkar og segir viðkomandi
blaðamaður að í þessu sé inni-
falið fæði og gisfing — en fæp-
lega er það Hilton-matur. Eins
vill hann vara fólk við svona
ferðum og bendir á að austur
þar er mannslifið ekki jafn mik-
íls metið og hér á Fróni.
Þetta með stelpurnar: Átti það
að vera sniðugt?
Endurtekið efni
Elsku Pósturl
Við erum hér tvær 15 ára og er-
um að tala um hvað sé að vera
hrein mey. Er hægt að afmeyja
stelpu sem ekki er kynþroska?
Okkur var sagt að konur gætu
ekki orðið ófrískar á meðan þær
hefðu blæðingar. Er eitthvað til
( því? Að lokum langar okkur
að spyrja hvað fólk kallar að
„vera meðl'? Þarf maður að lifa
með einhverjum (strák) svo það
kallist að vera með?
Elsku Póstur, við vonum að við
fáum svar, því þú ert sá eini
sem við getum leitað til.
Tvær hreinar.
Með fullri virðingu fyrir for-
eldrum ykkar og fjölskyldum, þá
viijum við meina að það hljóti
að vera eitthvað bogið við það
að þið getið ekki fengið þessar
upplýsingar hjá þeim. En sjálf-
sagt sýnir þetta dæmi mjög vel
hversu fáfræði um þessi mál er
mikil og almenn — sérstaklega
meðal þeirra sem mest þurfa að
vita.
Annars erum við nýlega búnir
að svara bréfi um sama efni, en
við viljum gera okkar til að auka
þekkingu á þessum málum, svo
okkar en ánægjan að svara þess-
um spurningum líka.
Það er hægur vandi að afmeyja
stúlku sem ekki er kynþroska, en
eins og fyrri daginn mælum við
ekki með sliku. Allar stúlkur eru
fæddar með meyjarhaft (hym-
en) og það hverfur ekki — nema
í einstaka tilfelli, s. s. leikfimi
og öðru slíku — fyrr en það er
rofið, annað hvort við samfarir
eða þá af lækni.
Verði konur ófrískar á meðan
þær hafa blæðingar, er slíkt i
hæsta máta óvenjulegt, en þá er
það heldur ekki mjög algengt
að fólk hafi samfarir sé konan á
þessu mánaðarlega tímabili sínu.
,,Að vera með" getur þýtt að
lifa með, en það getur líka þýtt
að vera með á einu skólaballi,
haldast í hendur og kyssast á
bak við leikfimihúsið. Síðar meir
þýðir „að vera með" þetta sama
— og hitt líka.
4 VIKAN 33. TBL.