Vikan - 30.09.1971, Side 5
Detti mér allar
dauðar...
Kæri Póstur!
Takk fyrir allt gamalt og gott.
Við ætlum að spyrja þig um
hljómsveit sem ekki er víst að
þú hafir heyrt nefnda. Hún heit-
ir FORhÚÐ og er frá Höfn í
Hornafirði. Þeir spiluðu í Atla-
vík um Verzlunarmannahelgina,
þar sem við vorum. Söngvarinn
heitir Magnús, en nú koma
spurningarnar:
Hvar á hann heima og hvað er
hann gamall? Er hann trúlofað-
ur eða giftur? Gætir þú ekki
birt mynd af hljómsveitinni?
Við vonum að þú látir bréfið
ekki f ruslakörfuna áður en þú
ert búinn að svara því.
Tvær úr Reykjavfk.
Forhúðl Allan andskotann heita
hljómsveitir! Hvað kemur næst?
Penis? Við höfum aldrei heyrt
á þessa hljómsveit minnzt, en
þætti vænt um að fá upplýsing-
ar frá einhverjum lesanda.
„Farðu til andsk ...“
Kæri Póstur!
Ég hef aldrei skrifað þér áður
og ætla ég því að gera það nú.
Ég er 14 ára og geng með gler-
augu. Þannig er mál með vexti
að ég hef aldrei verið með
strák. Ég er ekki Ijót. Mér finnst
það svo leiðinlegt að enginn
strákur skuli sýna mér áhuga.
Ég þrái svo heitt að vera með
strák. Ég á heima í sveit, hálf-
gerðu þorpi. Ég er alltaf kölluð
„litla stæl" þar. Ég fór í Húsa-
fell um Verzlunarmannahelgina
og ég var ekki með neinum
strák. Hvernig stendur á þessu?
Svo finnst mér alveg 100% ef
strákur talar við mig en það er
mjög sjaldan. Ég var hrifin af
strák í fyrra og hann tálaði einu
sinni við mig. Þá sagði ég hon-
um að ég væri hrifin af honum
og hann sagði: „Farðu til and-
skotans" og sfðan hefur hann
forðazt mig. Ég er hávaxin og
grönn með grænblá augu og
með sítt, dökkt hár niður f mitti.
Ég bið þig elsku Póstur minn
að láta þetta ekki í ruslakörf-
Hvert á maður að skrifa ef mað-
ur ætlar að senda lag í Óskalaga-
þætti sjúklinga?
Kærar kveðjur.
Indíána-Edda.
Óskalagaþáttur sjúklinga er að-
eins ætlaður þeim er liggja á
sjúkrahúsum, það er að segja:
Aðeins eru teknar kveðjur frá
slíku fólki — og þá skrifar það
Ríkisútvarpinu.
Varðandi vandamál þitt er lítið
hægt að ráðleggja þér að svo
komnu máli. Þú ert nú ekki
nema 14 ára gömul, svo ekki
held ég að ástæða sé fyrir þig
að örvænta en afstaða stráksins
er á vissan hátt skiljanleg; strák-
ar á þessum aldri eru yfirleitt
ekki hrifnir af að stúlkur sýni
svona blátt áfram framkomu og
frumkvæði. Hitt er svo annað
mál, að hann var hinn argasti
ruddi. Þú ættir að hringja í okk-
ur og ræða málið við okkur . . .
Fóstruskólinn
Kæri Póstur!
Við erum hérna tvær fáfróðar
yngismeyjar á Norðurlandi. Okk-
ur vantar svo mikið upplýsingar
um undirbúning undir Fóstru-
skólann og fleira í sambandi við
hann og því töldum við gott ráð
að skrifa þér og spyrja.
1. Hvað er námið langt?
2. Hvaða próf þarf að hafa?
3. Með hvað miklum fyrirvara
þarf að sækja um skólavist?
4. Hvað lærir maður í skólan-
um?
5. Þarf maður að hafa unnið á
barnaheimili einhvern sérstakan
tfma?
Með fyrirfram þökk.
BK & ÁS.
Við vorum með grein um Fóstru-
skólann í 46. tbl. 1970 og þar
er allt um hann, en síminn þar
er 21688 og skólastjórinn, frú
Valborg Sigurðardóttir, segir
ykkur vafalaust allt um hann.
UPO ELDAVÉLAR
UPO KÆLISKÁPAR
UPO ELDSÚSVIFTUR
UPO OLÍUOFNAR
Einkaumboð:
H. G. GUÐJÖNSSON & CO.
Stigahlíð 45—47. Suðurveri. Sími 37637.
SKÓLARITVÉL
Fimm gerðir skólaritvéla
fyrirliggjandi á lager.
Verö frá kr. 4.916,00
Sisli c7. cSofíitsen 14
VESTURGÖTU 45 SÍMAR: 12747 -16617
39. TBL. VIKAN 5
una.