Vikan


Vikan - 30.09.1971, Blaðsíða 13

Vikan - 30.09.1971, Blaðsíða 13
Nick Velvet var afsprengi Greenwich-hverfisins í New York, á tímum þegar hinir ítalsk-amerísku íbúar vörðust enn ágangi hins frjálslega lista- fólks. Hann hafði stytt nafn sitt úr hinu upphaflega nafni, sem hljómaði eins og viss osta- tegund, og farið burt í styrj- aldirnar með heilmörgum öðr- um uppgjafa menntaskólanem- endum. Eftir því sem árin liðu, hafði ævistarf hans einhvern veginn farið að fá á sig fast form, og núna — þegar hann var farinn að nálgast fertugsaldurinn — var hann viðurkenndur sér- fræðingur. Nú hringdu þeir til hans, og tóku sér ferð á hendur til að hitta hann, af því að við viss störf átti hann engan sinn líka í veröldinni. Nick Velvet var þjófur. Af sérstakri tegund. Hann stal aldrei peningum sem slíkum, og stal aldrei fyrir sjálfan sig .Heldur stal hann fyrir aðra, og tók að sér þau verkefni, sem voru of stór eða of hættuleg eða of óvenjuleg fyrir aðra þjófa. Hann hafði stolið úr söfnum, frá fjrrirtækj- um, frá ríkisstjórnum. Hann hafði stolið myndastyttu af rómverska guðinum Merkúr af þaki pósthúss eins, og glugga með lituðu gleri úr safni með miðaldalist. Einu sinn hafði hann jafnvel stolið heilu knatt- leiksliði, að meðtöldum fram- kvæmdastjóra, vögnum og út- búnaði. Ekki var hægt að segja, að honum líkaði starfið, eða að hann hefði haft áform um að leggja það fyrir sig. En þegajr það bauðst, hafði hann ekki verið því mótfallinn. Launin voru ríkuleg, og hann starfaqi aðeins fjórum eða fimm sinnum á ári, og ekki lengur en viku eða svo í hvert sinn. Hann sá sig talsvert um í heiminum, og hann hitti nokkra mjög merki- lega menn. Harry Smith var ekki einn af hinum merkilegustu. Hann stóð í skugganum við gosbrunninn og leit út ná- kvæmlega eins og þorpari á banntímanum, sem er að bíða eftir bátnum frá Kanada. Nick geðjaðist ekki að útliti hans, og þegar hann sagðist heita Smith, geðjaðist Nick heldur ekki að nafni hans. „Maður nokkur í Chicago mælti með yður, Velvet," sagði Smith og klippti sundur orðin eins og rafmagnsritvél. „Það getur passað. Hvað vilj- ið þér?“ „Verðum við að tala saman hérria? Ég hef hótelherbergi.“ Nick Velvet brosti. „í hótel- herbergjum er of auðvelt að snuðra. Mér geðjast ekki að segulbandsupptökum af við- skiptasamningum mínum.“ Harry Smith yppti öxlum. „Það er bölvað, nú á dögum geta þeir snuðrað um mann hvar sem er. Þeir gætu verið að beina einu af þessum lang- drægu tækjum að okkur einmitt núna.“ „Þess vegna er það, að við stöndum hjá gosbrunninum. .Hann dugar alveg til þess að fela samtöl. Nú skuluð þér snúa yður að efninu." Harrý Smith steig inn í ljós- geisla, sem kom frá lampa, földum í tré yfir höfðum þeirra. Hann var stór maður, með sömu líkamsbyggingu og lítill górillu- api, og báðar kinnar hans voru bólugrafnar. „Við viljum, að Framhald á bls. 43. i 39. TBL. VIKAN 13

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.