Vikan - 30.09.1971, Side 40
eru allir skíthræddir. Hann
veit að hann fær peninga út úr
okkur eða hverju sem það nú
er, og þeir eru náttúrlega ekki
ánægðir með það. Þeir vilja að
við séum litlir strákbjálfar sem
vita ekkert um viðskipti og láta
sér nægja krónu hér og þar.
Hann kemur aftur á móti inn
fyrir pundin (£), það sem við
eigum skilið og þess vegna eru
þeir hræddir við hann. Það er
gott að hann kom, vegna þess
að annars hefðum við sennilega
lent í því sama og margar aðr-
ar hljómsveitir og verið dregn-
ir í skítinn án þess að vita
af því. Vissulega var farið illa
með okkur, en hefði Allen ekki
'komið til sögunnar hefðum við
farið ver, því að við erum hálf-
gerðir kjánar, við treystum
fólki. Við komumst í kynni við
allskonar misjafna karaktera
og okkur er eiginlega pakkað
saman.
— Hverja áttu viö?
— Þú veizt það jafn vel og
ég. Ég vil engin læti og þess
vegna vil ég ekki nefna nein
nöfn, en allir vita við hverja ég
á.
— Er það satt, að fyrir mörg-
um árum, þegar þið voruð enn-
þá hjá Epstein, hafi Klein sagt:
„Einhverntíma ætla ég líka að
hafa Bítlana“?
— Svo segir hann, já. Hann
vissi það þá. Hann er voldugur
maður. Hann veit hvað hann
vill og mér er nákvæmlega
sama hvað aðrir segja, hann er
sanngjarn. Ég trúi því einarð-
lega að hann sé sanngjarn, ekki
aðeins gagnvart okkun, heldur
öllum, hann er jú með fleiri en
bara okkur. Mundu, að við er-
um stærstir vegna þess að við
heitum þessum nöfnum og
vegna þess að við erum Bítl-
arnir. En hann er bara ekki
maður sem gefur skít í fólk.
Hann fer yfirleitt heiðarlega
að því sem hann gerir. Hann
lætur ekkert fara með sig, en
hann er heiðarlegur.
— Rolling Stones hafa yfir-
gefið hann.
— Já, Stones hafa farið Trrá
honum. Þú verður aftur á móti
að spyrja Mick hvers vegna.
Mick fannst hann ekki standa
sig nógu vel eða eitthvað svo-
leiðis. Ef til vill hafði hann
ekki nægan tíma fyrir þá, þar
sem svo mikið var að gera í
sambandi við okkur.
(Hér sakar ekki að skjóta því
inn í, að Rolling Stones ásamt
föður Brian Jones hafa nýlega
höfðað mál á hendur Klein og
krefja hann um tugi milljóna
króna í skaðabætur fyrir ýmis
svik sem þeir segja hann hafa
stundað gegn þeim).
— Hvað hefði skeð ef Brian
hefði ekki dáið? Vœruð þið
ennþá saman?
— Já, það held ég. Við eydd-
um sífellt meiri tíma í stúdíó-
unum — frá Brian — vegna
þess að hann gat ekki skipu-
lagt hljómleikaferðir og slíkt.
Hann hefði samt verið með
okkur áfram, en við vorum
engu að síður sífellt að draga
okkur í stúdíóin þar sem hann
gat ekki komið nærri, svo ég
veit ekki vel hvernig þetta
hefði farið. Hann er dauður.
Það er ekki hægt að segja neitt
um það.
—• Heldur þú, að ef hann
hefði ekki dáið, væruð þið enn-
þá saman? Eða allavega að þið
hefðuð eklci hœtt svo snemma.
— Nei, ég get ekki með
nokkru móti svarað þessu. Það
er ekki hægt. Það er eins og að
segja: „Hvað hefðir þú gert ef
þú hefðir ekki verið einn Bítl-
anna? Hvað myndir þú vera að
gera núna?“ Ég bara veit það
ekki. Kannski væri ég að vinna
í verksmiðju eða þá að spila í
pub einhversstaðar. Ég hef ekki
hugmynd um það, svo spurn-
ingin er óraunhæf.
— Hvað fannst þér um LP-
plötu Johns (Þá er kom út í
fyrra)?
— Nokkur laganna eru hreint
ótrúleg. Það er aðeins eitt að
þeirri plötu: Hún er svo per-
sónuleg. Þess vegna held ég að
hún hafi ekki gengið eins vel
og ella. Það sem hann var að
segja var mjög persónulegt.
Enginn gat haft það eftir:
margir gátu ekki einu sinni
sungið með, vegna þess að fólki
fannst það ekki hafa rétt til að
taka hans tilfinningar og gera
þær að sínum.
—1 Ertu sammála því að plat-
an hafi verið dálítið masókist-
ísk? (Maskóismi er það kallað,
þegar fólk nýtur þess að vera
kvalið).
— Ja, hann stóð eiginlega á
krossgötum þegar þetta var
gert. Hann var búinn að ganga
í gegnum „frumöskrið“ (Prim-
al Scream) og allt það, og hann
var að koma aftur og segja frá
því sem hann hafði fengið í
gegnum. Það eru engin poppý
lög á plötunni. „Working Class
Hero“ finnst mér samt eitt
bezta lag sem hann — og
reyndar hver sem er — hefur
samið. Og svo fara þessir hel-
vítis fávitar hjá BBC að gera
rellu út af orðinu „fuck“! Það
finnst mér voðalegt. Eg meina,
maður getur setið með fólki
sem bölvar alveg ægilega og
manni finnst það allt í lagi,
vegna þess að þetta eru orð sem
fólk notar til að tjá sig. Þannig
var það á plötunni. Maður get-
ur látið það liggja á milli hluta.
Það var ekki þar til að auka
áhrifin, heldur var það mikil-
vægur hlutur í sjálfu hugtak-
inu eða hugmyndinni eða hvað
þú vilt kalla það.
— En hvað um )yAllt Things
Must Pass“?
— George er stórkostlegur.
Það eru mörg góð lög á þeim
plötum og mikil vinna. Maður
hefur þel fyrir öllu sem er á
þeim. Hann borgaði sínar skuld-
ir á plötunni. Ég spila „jamm-
ið“ ekki mjög mikið, vegna
þess að hitt er svo miklu betra.
„Jam“ er yfirleitt aðeins
skemmtilegt fyrir músikanta.
Fólk hlustar á það og veit ekki
alveg hvað er að ske, þetta er
bara „jam“ og í rauninni ekk-
ert út úr þvi að fá.
— Kén Scott (sá sem tók upp
plötuna) sagði mér að „jamm-
ið“ hefði átt að fylgja með ó-
keypis en hefði verið stöðvað
vegna einhverra örðugleika
varðandi söluskattinn.
— Það var ókeypis. Fólk
borgaði bara fýrir tvær plötur
og umbúðirnar. Apple borgaði
hverja einustu plötu sem gefin
var út í Bretlandi — aðeins
lítinn hluta af því að vísu, en
við borguðum. Við borguðtun
hluta af hverri einustu plötu,
vegna þess að við höfðum trú á
plötunni og ef EMI ætlar að
fara að vera með einhvern
kjaft, til helvítis með þá, við
tökum 80% í stað 100%. Þannig
er það hjá Apple. Við gefum
heilmikið. Það er alltaf verið
að kalla okkur hunda, en hvers
vegna er Mary (Hopkin) þá
ekki farin? Hún gæti farið hve-
nær sem henni sýndist og við
myndum ekki halda henni,
heldur rífa samninginn hennar.
Það er hugmjmdin á bak við
Apple. James Taylor ákvað einn
daginn að hætta og nú er hann
hjá öðru fyrirtæki. Við eigum
plötu með honum sem við gef-
um út í hvert skipti sem hann
kemur til Bretlands. Við vorum
lengi með hann á samning og
svo þegar hann vildi hætta, þá
rifum við samninginn hans. Við
erum hættir að skríða fyrir
fólki. Ef það er ekki ánægt, þá
getur það farið. Ef maður fer
í veizlu og leiðist, þá á maður
að fara, og þannig á Apple að
vera.
— Hvað verður um Apple?
40 VIKAN 39. TBL.