Vikan


Vikan - 03.02.1972, Blaðsíða 48

Vikan - 03.02.1972, Blaðsíða 48
 21. MARZ • 20. APRÍL Þú stendur í staS og tekur engum framför- um. Þú ert fremur leið- ur á starfinu og finnst flest ganga á móti. Þú verður í minniháttar gleðskap um miðja vik- una. Þú móðgar góðan vin. Flest kvöld vikunnar nýturðu þess að vera til. Þú hefur ný við- fangsefni sem þú unir þér mjög vel við. Þú nærð góðum árangri á vettvangi, þar sem reynsla þín er fremur lítil. Kenndu ekki öðr- um um mistökin. Það ríður á að þú sýnist í góðu jafnvægi og sért lítillátur, en gættu þess að ýkja ekki. Þú færð tækifæri sem þú getur notfært þér á ýmsa vegu. Heppnin verður með þér, en farðu samt varlega. KRABBA- MERKIB 22. JUNI - 23. JÚLÍ Þú ert önnum kafinn og verður að vanrækja ýmsar skyldur þínar. Fljótfæmislegar gerðir þínar verða til vand- ræða. Félagi þinn kem- ur ekki heiðarlega fram við þig. Leitaðu ráða hjá þér eldri persónum. LJONS- MERKIÐ 24. JÚLÍ — 24. ÁGÚST Þú hefur áhyggjur af nokkru, sem þú þorlr ekki að trúa neinum fyrir. Þú ferð í iangferð, en dvelur aldrei lengi um kyrrt á sama stað. Þú færð þaulsætinn gest, en hann er ekki leiðin- legur. MEYJAR- MERKIÐ 24.ÁGÚST — 23. SEPT. Kunningi þinn þarfnast aðstoðar þinnar um sinn og myndi samvinna ykkar hafa góð áhrif á báða. Leynd hvilir yfir athöfnum félaga þinna; blandaðu þér ekki í það. Mánudagskvöld verður óvenjulegt. VOGAR- MERKIÐ 24. SEPT. - 23. OKT. Þú ert þátttakandi I leik sem þér finnst spennandi í fyrstu, en þú verður fljótlega fyr- ir vonbrigðum með fé- laga þína. Þú hefst lítið að seinni hluta daganna, en þú lætur þér ekki leiðast. DREKA- MERKIÐ 24. OKT. 22. NÓV. Þú færð gest, sem léttir af þér nokkrum áhyggj- um. Sérkennileg atvik leiða af sér nokkra spennu. í heild verður vikan mjög jákvæð; notaðu frítímana fyrir eigin málefni. BOGMANNS- MERKIÐ 23. NÓV. 21. DES. Ymsar hugmyndir þínar eru nokkuð fjarstæðu- kenndar, en þær eru þó sumar þess virði að framkvæma þær; það gæti orðið góð skemmt- un. Vikan er vel fallin til mannfagnaða og fundarhalda. STEIN- GEITAR- MERKIÐ 22. DES. — 20. JAN. Reyndu eftir megni að temja þér skynsamlegrl vinnuaðferðir. Þú gætlr komið helmingi meiru I verk, ef þú sklpulegð- ir tímann betur. Reyndu að vera sem minnst upp á aðra kominn. Heilla- tala er fjórir. VATNSBERA- MERKIÐ LP, 21. JAN. 19. FEB. Þú hefur lagt of hart að þér undanfarið og því ekki vel upplagður. Fjármál þín eru I sæmi- legu lagi, en þú notfær- ir þér ekki alla mögu- leika, sem þú gætir auð- veldlega. Treystu á sjálfan þig. FISKA- MERKIÐ 20. FEB. — 20. MARZ Vikan verður ánægju- leg, sérstaklega fyrir fólk undir tvítugu. Þú kynnist nýjungum sem hertaka huga þinn. Kunningjahópurinn er breytilegur. Þú lætur af slæmum ávana. Leik- húsferð I vikulokin. 48 VIKAN 5.TBL.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.