Vikan


Vikan - 03.02.1972, Blaðsíða 44

Vikan - 03.02.1972, Blaðsíða 44
Sir Redvers Buller, og ég hvatti hann til að kveða yður til liðs við sig, svo ég vona að því verði komið í kring. Ég öfunda yður af því að fá að vera með svo góðri herdeild, óska yður svo alls góðs og að þér komið heill til baka. Yðar einlægur, Albert Edward. Prinsinn af Wales hefir lík- lega vonað að þetta yrði til að koma í veg fyrir hjónaband og að aðskilnaðurinn myndi verða til þess að þau gleymdu hvort öðru. En sú varð ekki raunin. í þann stutta tíma, sem Ge- orge dvaldi í London, neitaði hún öllum heimboðum, til að geta verið sem flestar stundir með honum. Hún neitaði jafnvel einu glæsilegasta heimboði árs- ins, árlegu helgarboði frá Wolf- erton lávarði, sem þau hjónin héldu til heiðurs prinsinum af Wales. Áður höfðu þau Jennie og George verið ákaflega varkár og yfirleitt ekki látið sjá sig saman á mannamótum, en nú brá öðru vísi við. Þau sáust alls- staðar saman og Jennie fór með George í búðir, til að kaupa fatnað og annað til ferðarinn- ar og það var sagt frá því háðs- lega í slúðurdálki að þau hefðu sézt saman í leikhúsi þar sem verið var að sýna Elixir o/ Youth. Herdeild hans fór frá Sout- hampton á litlu skipi, sem hét „Nubia“. Um þetta leyti heimsótti frú A.A. Blow Jennie. Hún var gift framkvæmdastjóra eins auðug- asta námafélags Suður-Afríku. Frú Blow hafði fengið hugmynd sem hún sagðist ekki geta fram- kvæmt, nema Jennie tæki það að sér. Hugmyndin var sú að senda amerískt spítalaskip, til að hjúkra særðum hermönnum í Suður-Afríku. í fyrstu var Jennie hikandi. Hún ræddi þetta við vin sinn, Sir William Garstin, sem hvatti hana til að koma þessu í fram- kvæmd. „Trúðu mér,“ sagði hann, „þetta skapar þér sess í sögunni, auk þess að það er mjög aðkallandi að auka hjúkr- unarstörf við vígstöðvarnar." ,Á þeirri stundu ákvað ég að gera þetta,“ sagði Jennie. Og hún beið ekki boðanna. Það voru haldnir hljómleikar og allskonar skemmtanir og ágóðinn látinn renna til hjálp- arstarfseminnar. Mörg fyrirtæki gáfu hjúkrunarvörur og hjálp- argögn og ávísanir streymdu inn, allt frá nokkrum shilling- um upp í þúsundir punda. Jennie vildi fá amerískt skip og hún sendi skeyti til frænda síns, Theodors Roosevelt (sem þá var fylkisstjóri í New York) og bað hann um aðstoð, en hann sá engin ráð til úrlausnar. Þá var það amerískur auðkýfingur, Bernard Nadel Baker, sem kom til hjálpar. Baker hafði stofnað Atlantic Transport Company í Baltimore og hann bauð brezku stjórninni eitt af skipum félags- ins til afnota meðan á stríðinu stæði. Þetta var höfðinglegt til- boð, ekki sízt vegna þess að Baker bauðst til að kosta rekst- ur skipsins. Þetta svaraði til 20 þúsund dollara á mánuði. í New York Times var sagt frá þessu: „Sá möguleiki að Lady Randolph Churchill fari sjálf með ameríska spítalaskip- inu „Maine“ til Suður-Afríku, hefir vakið mikla athygli hér. Frúin sagði í dag: „Það hefir komið til mála að ég fari með skipinu, en það er undir ýmsu komið hvort af því getur orðið, það hefir ekki endanlega verið ákveðið“. Það var að lokum ákveðið að hún færi með. Jennie sagði: „Maine“ á að vera að verulegu leyti skip amerískra kvenna, við viljum sýna að amerískar konur geta tekið til höndum. Ég fer ekki með „Maine“ vegna þess að sonur minn er á víg- völlunum, því að hann verður í margra mílna fjarlægð, held- ur vegna þess að ég vil sýna að ég kann að meta rausnarlega aðstoð og vil sjá til þess sjálf, þar sem ég er í stjórn hjálpar- starfseminnar, að allt sé gert til að þessi aðstoð verði að sem beztum notum.“ En eitt blaðanna sagði: „ARir .hér í London hafa áhuga á því hvað Lady Randolph tekur sér fyrir hendur, þegar hún kemur til Suður-Afríku. Það er ljóst að aðalástæðan fyrir för henn- ar er að elta herra George West...“ Ollum undirbúningi var lok- ið og „Maine“ gat lagt af stað. Clara systir hennar hafði verið veik, en hún kom samt til að kveðja hana, ásamt tveim son- um sínum. Jack var þar líka og hann hafði hugsað sér að vera um borð hjá móður sinni, þang- að til skipið legði úr höfn, en hann varð sjóveikur af velt- ingnum og fór þessvegna frá borði með frænku sinni. Jennie var döpur og niður- dregin, þótt allir á bryggjunni væru ofsakátir, hrópuðu og veifuðu. Hún var nýbúin að fá símskeyti: „SœrSur, líklega sendur heim. Láttu mömmu vita, George. í bréfi, sem barst henni of seint, bað hann hana að fresta för sinni, þangað til hann kæmi, annars gætu þau misst hvort af öðru og „það yrði alltof hræði- legt“. Þegar ,,Maine“ mjakaðist frá hafnarbakkanum, var þokan svo dimm að ekki sást handa- skil. Jennie stóð á þilfarinu og hlustaði á fagnaðarlætin og drungalegt hljóð þokulúðranna hefir örugglega ekki losað hana við dapurleikann. Jennie sá Winston, þegar hún var í Suður-Afríku. Hún sá líka eyðileggmgu og hörmungar stríðsins og tók sjálf þátt í hjúkrun hinna sjúku. George skrifaði henni, meðan hann var að ná sér eftir veikindin og sagði henni að ennþá reyndi fjölskylda hans að fá hann ofan af þeim ásetningi að kvœnast henni og kvœnast heldur rtkum erfingja. Það voru liðnir fjórir mánuð- ir og einn dagur frá því ,,Maine“ fór frá Englandi. Þá hafði Jenn- ie verið döpur í bragði. Nú stóð hún á þilfarinu, geislandi af gleði; um hvítan stráhatt henn- ar var bundið blátt band með fánum Bandaríkjanna og Bret- lands. Hún var í blárri dragt og bar merki ,,Maine“ á vinstri barmi og Rauða kross prjón í hálsbindi sínu. Vinir hennar söfnuðust í kringum hana, dáðust að því hve hraustleg hún var og sögðu að hún liti út fyrir að vera fimmtán árum yngri en hún var. Einhver rétti henni stóran blómvönd. Og þá sá hún George. CornwaUis-West ofursti hafði komizt yfir símskeyti, sem Le- onie systir Jennie hafði sent George, til að láta hann vita hvenær von væri á skipinu og hann ásakaði hana fyrir að að- stoða þau við þessa ,,vitleysu“ og að uppörva Jennie í því sem hann kallaði „brjálæðiskennda ást sem hún ber til sonar míns“. En Jennie var ekki haldin neinu ástaræði; hún elskaði Ge- orge. En hún hafði breytzt nokkuð á undanförnum mán- uðum og hún var ekki lengur viss um hvað hún vildi. Hún var orðin fjörutíu og sex ára, en hún bar sig svo vel að engum, sem ekki vissi betur, gat dottið það í hug. Hún hafði fylgzt með heimsmálunum af aðdáanlegri glöggskyggni og öfundarmenn hennar ásökuðu hana um að vera „karlmannleg í hugsun“. Hvernig hefði hún -------------------------------------KLIPPIÐ HÉR - Röntunarseðill Vinsamlegast sendið mér sniðið, sem ég krossa framan við, í þv( númeri, sem ég tilgreini. Greiðsla fylgir með í ávísun/póstávísun/frfmerkjum (strikið yfir það sem ekki á við). Nr. 45 (9113) Stærðin á að vera nr. ..... Nr. 46 (8478) Stærðin á að vera nr. . Vik«m - SimplíGity -------------------------------------KLIPPIÐ HÉR - Nafn Heimili 44 VIKAN 5. TBL.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.