Vikan


Vikan - 03.02.1972, Blaðsíða 24

Vikan - 03.02.1972, Blaðsíða 24
VIÐ ERUM EKKI AF VÍKINGAKYNI FYRIR EKKI NEITT Rætt við Pál Heiðar Jónsson Páll HeiSar. Þættir Páls Heiðars Jónssonar í hljóðvarpinu hafa vakið mikla athygli og eiga sívaxandi vin- sældum að fagna meðal hlustenda. Margir þekkja að vísu Pál Heiðar, bæði frá því að hann var einn víðförlasti starfsmaður sam- vinnuhreyfingarinnar og frá Lundúnum, en þar ojó hann og vann í nærri áratug sem skrif- stofustjóri hjá Flugfélagi íslands. Engu að síð- ur mun mörgum forvitni að kunna meiri skil á þessum vinsæla og uppvaxandi útvarps- manni, og af því tilefni sóttum við Pál heim á Framnesvegi 11, þar sem hann býr ásamt eiginkonu sinni Maríu Teresu, f. Gonsalves da Silva, sem er spænsk að ætt, og tveimur börn- um þeirra hjóna. — Sökum okkar landlæga ættfræðiáhuga ætla ég fyrst að biðja þig að segja eitthvað frá uppruna þínum og ætt, Páll, því að ég geri að sjálfsögðu ráð fyrir að þú sért fremur af ■KTTUM en beinlínis fólkki, svo höfðað sé til eins fjöruþátt- arins þíns í Timanum. Mikil ósköp. Ég er kom- inn af hinni víðkunnu Hörgs- landsætt, það er að segja í föð- urætt, og móðurættin er hin þekkta Þórisholtsætt. Þessar ættir held ég varla þurfi að kynna. Ættir þessar báðar eru austan úr Skaftafellssýslu, er ekki svo? Já, þær eru rammskaft- fellskar, báðar tvær. — Hörgslandsætt mundi þó ekki runnin frá Magnúsi á Hörgslandi, ákvæðaskáldi því er kvað niður heilan tyrknesk- an sjóræningjaflota úti fyrir söndunum, eða það minnir mig ég hafi heyrt Þórberg segja. Það er líklega ein alsérkenni- legasta sjóorrusta mannkyns- sögunnar. Mér er það til efs. Þessi Hörgslandsætt stofnaðist á sín- um tíma fyrir tilverknað og til- komu síra Jóns Steingrímsson- ar eldklerks, en hann var Skag- firðingur eins og þú veizt. Ég er kominn í beinan legg af hon- um i föðurætt. Það var mikið af prestum í þessari ætt; séra Páir i Þingmúla var einn af mínum forfeðrum. Og svo mað- ur komist nær nútímanum, þá býst ég við að margir Sunn- lendingar að minnsta kosti kannist við afa minn, sem var Páll Ólafsson, bóndi á Litlu- Heiði í Mýrdal. Hann var með- al annars mikill ferðamaður og ur uppalandi og gæðamaður. mér í barnsminni sem sérstak- Og móðurættin? Hana veit ég ekki eins mikið um, langt frameftir. — Móðurafi minn var Magnús Finnbogason, kenndur við Reynisdal i Reynishverfi. Hann var mikill og alvarlegur fram- sóknarmaður meðan hann var og hét og einn af forustumönn- um þess ágæta flokks í sýsl- unni. Hann fluttist síðar á æv- inni til Hafnarfjarðar og gerð- ist mikill áhugamaður um náttúrufræði, einkum og sér í lagi skaftfellska fýlinn, og rit- aði um hann merkar bók- menntir. Auk þess safnaði hann örnefnum og stundaði fræði- mennsku. Þá hef ég heyrt um langafa minn, Einar hreppstjóra í Þórisholti. Um hans frægð veit ég lítið nema að hann þótti harðdrægur maður frekar og illt að koma hreppsómögum inn i hans hrepp. Hann lokaði þá dyrum og skipaði 'svo fyrir að enginn skyldi opna. En kona hans var mildari og laumaði þeim þá inn bakdyramegin. Sjálfur reið hann um sveitir með pipuhatt. Auk þess var hann formaður að sjálfsögðu; sjóróðrar voru sóttir þarna undan Reynisdröngum. — Æviferillinn í stuttu máli? Hann hefst i Vík í Mýr- dal. Það er með afbrigðum fal- legt þorp, og eitt af sárfáum þorpum hér á landi, sem ég hef séð er hafa fríkkað með árun- um. Landgræðsla hefur verið þarna mikil og tekizt mjög vel, þannig að þar sem ég lék mér sem strákur á söndunum, rétt fyrir framan þorpsgötuna, þar eru nú als staðar uppgróin tún. Þetta er verzlunarþorp fyrst og fremst, og til skamms tíma bitust verzlanirnar þarna ekki einungis um viðskiptin, heldur líka að mér skilst um sálir íbú- anna. Það eru þarna nefpilega tvö kaupfélög, það er að segja KAUPFÉLAGIÐ, sem á aðild að SÍS og safnaði að sér fram- sóknarsálunum eins og gefur að skilja, og hitt kaupfélagið, sem er annað dæmið af tveim- ur um að hinir hafi stofnað kaupfélag til að koma sínum málum áfram. — Þú hefur auðvitað hleypt heimdraganum snemma, eins og gengur og gerist um unga og efnilega menn? — Ja, ég hleypti ekki heim- draganum, það voru foreldrar 24 VIKAN 5. TBL.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.