Vikan


Vikan - 03.02.1972, Blaðsíða 32

Vikan - 03.02.1972, Blaðsíða 32
— Ósköp er þetta falskt hjá j. eim, en þeir kunna líklega ekki betur greyin! myndsegulbandinu. Vélin hef- ur ekki numið neitt af því sem fram fór, sú tilraun varð til- gangslaus. En frú Gilmark hefur gefið furðulega réttar skýrslur um sögu hallarinnar. Og hún vissi ekkert um hana fyrirfram, það er alveg öruggt. Margt af því sem hún sagði hefur aldrei ver- ið skráð, en lifað í sögum, sem hafa gengið mann frá manni um aldaraðir. Thorild Lind- gren, magister er bæði undrandi og slegin óhug. — Að öllum líkindum verð- ur maður að skilja eftir opnar dyr fyrir því sem maður ekki skilur, segir hann. — Allt sem frú Gilmark hefur sagt, passar við þær staðreyndir sem við þekkjum. En hvernig á að fá samband við náttgengilinn og fá hann til að hætta við að trufla svefnró íbúanna með þessu þunga fótataki? Hann má ganga um eins og hann vill, en ég verð reiður þegar hann vek- ur mig. ☆ WALLENSTEIN ... Framhald af bls. 15. reyna að teyma hina þýzku frændur sína með sér í stríð sín á Niðurlöndum og á Ítalíu. Til þess að tryggja einingu inn- an Þýzkalands sjálfs þurfti fyrst og fremst að jafna erj- urnar milli mótmælenda og ka- þólikka, sem voru þá enn hat- ursfyllri og blóðugri en hlið- stæð átök í írlandi um þessar mundir. Það gerði Wallenstein sér ljóst, og hann réð til þess að báðir trúarflokkar fengju jafnan rétt í ríkinu. Trúarof- stæki var ekki hægt að bregða honum um, og raunar var hermt að hann væri trúlaus með öllu. En nú var Ferdínand keisari, sem þeir. frændur flestir, sann- trúuð kaþólsk smásál, og hann gat ómögulega hugsað sér að þola mótmælendur meðal þegna sinna. Tilraunir hans til að út- rýma mótmælendatrú úr rík- inu drifu mótmælendur fljót- lega til örþrifaráða. Ofan á allt annað var Ferdínand ættræk- inn, og vildi því ekki skiljast frá frænda sínum Spánarkon- ungi, sem var enn geggjaðri í sínu kaþólska ofstæki en sjálf- ur hann. Keisarinn, sem þó var af göfugustu höfðingjaætt þýzkrar þjóðar, var minni Þjóð- verji en Tékkinn Wallenstein. Auk þess mátti Wallenstein standa í erjum við aðra þýzka háaðalsmenn og kjörfursta, þeirra helztan þann er yfir Bæjaralandi ríkti, sem öfurid- uðu og hötuðu hann af öllu hjarta og óttuðust hann jafn- framt, þar eð hann með her sínum hafði nú ráð þeirra allra í hendi sér. Þeir gáfu ekkert fyrir friðarvilja hans og fengu keisarann til að svipta hann herstjórn. Nú hefði kannski mátt ætla að maður, sem hafði náð slík- um völdum í eigin hendur sem Wallenstein, hefði risið til geig- vænlegrar andstöðu, en hann yppti aðeins öxlum og sagði: „Við skulum sjá hve lengi þið getið án mín verið.“ Her hans leystist upp. Sama ár, 1630, gekk Gústaf Adólf Svíakonung- ur með fríðu liði á land í Pommern, og þýzkir mótmæl- endur heilsuðu honum sem frelsara. Tveimur árum síðar var nær allt Þýzkaland á valdi hinna ósigrandi Svía, sem komnir voru allt suður að Dóná. Hvernig stóð á því að maður, sem var orðinn nærfellt ein- valdur, lét af völdunum af slíku kæruleysi, og hvernig gat svo skapandi stjórnmálamaður lát- ið verk sitt ganga í súginn við- námslaust? Var hann þá eftir allt saman ævintýramaður, sem aðeins lék sér með hæfileik- ana og varð leiður á skjótunn- um vinningi? Eða var hann enn í hug og hjarta fyrst og fremst Tékki, haldinn efasemdum um það hvers vegna hann ætti að vera að stritast við að vera Þjóðverji? Golo Mann hefur á þessu aðrar skýringar. Ein er sú að þessi mikli her- maður var í rauninni ekki her- skár. Hann var enginn Napó- leon. Hann lagði því aðeins til orrustu að ekki yrði hjá því komizt. Hann vildi halda stór- an og öflugan her til þess að hræða andstæðinga og óróa- seggi til hlýðni, en helzt vildi hann komast hjá að beita vopn- unum. Hann var alhliða rök- hyggjumaður fremur en her- stjórnandi. Hann var allur fyr- ir að byggja upp og skapa — einnig heri, þegar ekki varð hjá því komizt. En öllu betur líkaði honum að byggja borg- ir, leggja vegi, koma á fót námurekstri, járnsmiðjum, höllum, skrúðgörðum. Hann skynjaði sig fyrst og fremst sem listamann, og jafnvel í her- búðunum lifði hann í „gullinni einangrun", umkringdur þjón- um og hvers kyns þægindum. Hann hafði sjúklegt ofnæmi fyrir hávaða — hvar sem hann tók sér náttstað lét hann drepa alla hunda, ketti og hana nær- lendis, og eitt sinn kvað hann í bræðikasti hafa látið hengja þjón einn, sem vakið hafði hann með því að gera hávaða óvilj- andi. Hroki hans tók engu tali. Hann tók metnaðargirnd hans langt fram, svo og dugnaði hans og valdafýsn. Hann taldi það langt neðan virðingar sinnar að berjast fyrir hagsmunum sínum. Hann taldi sig réttbor- inn til valda sökum yfirburða greindar og innsýni (sem hann hafði að vísu til að bera); hann gat með engu móti hlýtt ráð- um annarra, gefið eftir, komið til móts við, smjaðrað, þjónað. Maðurinn, sem árum saman hafði ráðið flestum ráðum fyr- ir keisarann, sást ekki í Vín eftir 1627. Hann vildi ekki fara til hirðarinnar. Ef einhver þurfti á honum að halda, varð sá hinn sami að leita til hans. Og ef enginn þurfti að leita til hans, var enginn því fegnari en hann. Sjálfur þarfnaðist hann einskis, og veikindi og þreyta efldu þennan hroka með aldrinum. Wallenstein var af mesta æskualdri, er hann kom fram á leiksvið sögunnar. Hann var fjörutíu og eins árs, er hann í fyrra skiptið tókst herstjórn á hendur. Og hann lifði ekki mjög heilsusamlega, þótt svo að hann væri svo hreinlátur að með undrum var talið á þeirri tíð. Hann baðaði sig dag- lega og alltaf í vatni blönduðu ilmefnum. En hann var átvagl hið mesta og vínsvelgur, svaf langtum of lítið og eftir fer- tugt þjáðist hann stöðugt af gigt, síðar einnig af krankleika í lifur og nýrum. Þegar fyrir fimmtugt var hann útslitinn, stjórnaði hersveitum sín- um af sjúkrabeði, leið vítis- kvalir ef hann þurfti að sitja hest og lét bera sig á stóli gegn- um herbúðirnar. Veikindin skírðu hugsun hans, en löm- uðu viljastyrkinn. Þetta átti sinn þátt í því kæruleysi, sem kom fram í fúsleika hans til að láta af hervöldum. 1632, þegar stríðið virtist gertapað fyrir keisarann, lét hann nauðugur undan þrá- beiðni hans að taka aftur við herstjórn. En hann gerði það með þeim afarkostum, að litlu munaði að hann yrði einvaldur í ríkinu. Undraskjótt tókst hon- um að koma á fót hundrað þús- und manna her, sem var öllu meiri liðstyrkur en hann hafði haft yfir að ráða í fyrra skipt- ið. Áður en lauk hafði sá liðs- afli vaxið upp í hundrað og fimmtíu þúsund. Að lokum óttuðust hann allir og enginn treysti honum. Keisaranum til vonbrigða forðaðist Wallenstein úrslita- orrustuna við hina stórhættu- legu Svía. Það var af hreinu slysi að honum lenti saman við þá við Lútzen 1632. Gústaf Ad- ólf féll þar að vísu, en Svíar fóru engu að síður með sigur af hólmi. Eftir það hætti Wall- enstein að mestu að berjast. Þess í stað efldi hann her sinn sem mest hann mátti og reyndi að komast að samningum við sem flesta. Hann lét sem vind um eyru þjóta óskir keisarans um að hefja sókn, reka Svía úr Bæjaralandi og hjálpa Spán- verjum við að vinna Rínarhér- uðin. Hann vissi að héðan af voru allir möguleikar um hern- aðarsigur gengnir keisaranum úr greipum. Takmark Wallensteins var hið sama og áður: að sameina Þýzkaland og losa það við er- lenda innrásarheri, sem leituð- ust við að lima það sundur. Þessu takmarki yrði héðan af aðeins náð með samningum. — Þýzkum mótmælendum varð að veita trúfrelsi, Svíum varð að múta til að fara úr landi, með því að láta þeim eftir einhver landsvæði, ef ekki dygði ann- að, Spánverjum varð að bægja frá öllum áhrifum í landinu, jafnvel þótt það þýddi að þeir 32 VIKAN 5.TBL.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.