Vikan


Vikan - 03.02.1972, Blaðsíða 8

Vikan - 03.02.1972, Blaðsíða 8
DAUÐINN SKRIFAR Á RITTÉL SMÁSAGA EFTIR W. FRANCIS Við hliöina á skrifborðinu var ritvélarborð og stóð þar ritvél af venjulegri stærð og gerð, en í vélinni var gul pappírsörk. Ekkert hafði verið ritað á hana ... — Jæja, hvað haldið þér? spurði Harris, þegar læknirinn var búinn að rannsaka líkið og hafði rétt úr sér. Líkið lá í skrifborðsstólnum. — Það er víst ekkert leynd- ardómsfullt við þetta, var svar- ið. — Hann hefur látizt fyrir 3—5 klukkustundum. Kúlu hef- ur verið skotið gegnum hægra gagnaugað og ég geri ráð fyrir, að hann hafi ekki verið örv- hentur. — Einmitt það, sagði Harris annars hugar, en svo leit hann rannsakandi augum á líkið, og síðan í kringum sig í herberg- inu. Þar var sófi, tveir hæg- indastólar, útvarpsgrammófónn, vínskápur, skrifborð og skrif- borðsstóllinn, sem líkið lá í. Öll húsgögnin voru úr ljósum viði. Við hliðina á skrifborðinu var ritvélarborð og stóð þar ritvél af venjulegri stærð og gerð, en í vélinni var gul pappírsörk. Ekkert hafði verið ritað á hana. Sams konar pappírsarkir voru á skrifborðinu, en skrifað hafði . verið á þær allar. Harris leit á arkirnar, en snerti þær ekki. — Þá er mínu hlutverki víst lokið, sagði læknirinn og sýndi á sér fararsnið. Ég skal biðja lögregluþjónana að fara með líkið, — ef þér hafið lokið at- hugunum yðar. — Já, við erum búnir að fá nauðsynlegar upplýsingar, sagði Harris, og ef til vill dálítið meira, e/ þetta hefur þá verið sjálfsmorð. — Já. ég geri ráð fyrir, að svo sé, og þar sem klukkan er farin að ganga þrjú, þá legg ég til, að þér farið heim í háttinn og .. Oeinkennisklæddur lögreglu- maður birtist í dyrunum og læknirinn þagnaði. Lögreglumaðurinn heilsaði lækninum fyrst, en sneri sér svo til Harris og mælti: — Ég er kominn með ekkj- una og vin hennar inn í her- bergið hér við hliðina á, — þar getur þú rætt við þau. En hef- urðu komizt að einhverri niður- stöðu? — Læknirinn reynir að full- vissa mig um, að þetta sé sjálfs- morð. — Ég hef alls ekkert reynt til þess, mótmælti læknirinn. Hins vegar ráðlagði ég yður að fara heim að sofa. Góða nótt! Harris andvarpaði, er lækn- irinn hafði lokað dyrunum á eftir sér. — Að mínu viti hefur hann rétt fyrir sér, Dom. Allar ytri aðstæður benda til þess og þess vegna getum við lagt upp laup- ana. — En eigum við að gera það' Harris benti á líkið. — Þessi maður var rithöí- undur, og þetta, sem liggur þarna á borðinu — þessar vél- rituðu arkir — er smásaga. — Hvað kemur það málinu við? spurði Dom. Harris andvarpaði. — Sögunni er ekki lokið og þar er ekkert, sem gefur til kynna, hvernig endirinn muni verða. — Ég skil þig alls ekki, sagði Dom. — Nei, það gerir þú ekki, en þessari sögu er ekki lokið. Nú skulum við fara fram og tala við ekkjuna. Á leiðinni inn í stofuna mættu þeir mönnunum, sem voru komnir til þess að sækja líkið. Ekkjan leit upp, er þeir komu inn í stofuna. — Mér þykir leitt, að þurfa að ónáða yður, sagði Harris. Klukkan er orðin margt og þér hljótið að vera mjög þreyttar, en ef þér aðeins viljið segja mér allt, sem þér vitið, þá skal þetta ekki taka langan tíma. Hún var hávaxin og á að gizka 35 ára að aldri. Hún kom dálítið kuldalega fyrir, ekki fög- ur en dálítið sérkennileg. Hún var grannvaxin og klædd smekklegum kvöldkjól. Engin merki sáust þess, að hún hefði giátið, en svo virtist sem hún væri dálítið spennt. Hún gaut hornauga til mannsins, sem hjá henni var í stofunni, áður en hún sagði nokkuð. Hann var yngri og hærri en hún, — með dökkt liðað hár og laglegt andlit. Hann stóð og hallaði sér upp að arninum og reykti ákaflega. Hann leit á frúna, en síðan á Harris. — Já, við Carl fórum á veit- ingahús seinni hluta dags í gær. Hingað komum við aftur um hálffimm leytið og Carl kom inn með mér og fékk sér glas. Lewis, maðurinn minn var þá að vinna og ég vildi ekki trufla hann. Carl og ég . . . -—• Sáuð þér manninn yðar? — Nei, en ég heyrði, að hann var að vélrita. Ég ónáðaði hann aldrei við vinnu sína. Ég vissi, að hann hafði heyrt okkur koma og hann myndi hafa kom- ið inn til okkar, ef hann hefði langað í glas. Carl stóð við í um það bil klukkustund, en þá fór hann heim til þess að skipta um föt fyrir kvöldverð, en ég fór niður til þess að snyrta mig. Þegar ég kom niður, var mað- urinn minn ennþá að vinna. Ég hringdi á bíl.. . — Ætluðuð þér þá ekki út að borða með manninum yðar? — Nei, Carl hafði boðið mér til kvöldverðar. Lewis vildi ekki koma með. — Jæja, og hvað svo? spurði Harris. — Ég fór í leigubíl til þess að Carl þyrfti ekki að koma hingað og sækja mig. Veitingahúsið er í Fyrstu Götu, og þar snæddum við. Eftir máltíðina fór ég heim til þess að athuga hvort hann vildi eyða kvöldinu með okkur, en þar sem hann anzaði ekki, er ég barði á dyrnar hjá honum, gerði ég ráð fyrir, að hann væri farinn út. Við komum heim klukkan hálftvö og Carl kom inn með mér og ætlaði að drekka með mér eitt glas. Þá var ljós í vinnustofu mannsins míns — það sá ég í geenum rif- una á hurðinni. Þess vegna barði ég að dyrum, en enginn svaraði, og opnaði ég þá dyrn- ar. Ég gekk inn fyrir. — Já, þá hringdi Carl á lögregluna. Harris leit á manninn. — Kemur þetta heim við það, sem þér hafið að segja? spurði hann. — Jú. — Við erum að reyna að finna út hvernig hann lézt, sagði Harris. Heyrðuð þið bæði, að hann var að vinna, er þið kom- uð heim um hálffimm leytið. Frú Catman kinkaði kolli. — Hvenær kom bíllinn að sækja yður? — Klukkuna vantaði fimm- tán mínútur í sjö. — Og enginn anzaði, er þér komuð heim að loknum kvöld- verði, er það ekki rétt? 8 VIKAN 5. TBL.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.