Vikan


Vikan - 03.02.1972, Blaðsíða 37

Vikan - 03.02.1972, Blaðsíða 37
Hrósinu vísaði vinur minn frá sér eins og bezt hann gat, en tilboðinu tók hann strax, þó að kostir þess væru aðeins bráða- birgðakostir. Þegar komizt hafði verið að niðurstöðu um þetta, fór lögreglustjórinn strax að segja frá sínum eigin skoðunum og skaut inn hér og þar löngum skýringum á þeirri vitneskju, sem aflað hafði verið; en sú vitneskja hafði ekki áður borizt okkur. Hann talaði mikið og vafalaust af lærdómi; en ég vogaði mér að skjóta að einni og einni hugmynd, meðan nótt- in leið hægt og syfjulega. Dupin sat kyrr í sínum venjulega hæg- indastóli með lotningarfullri eftirtekt. Hann var með gler- augun hans til að sannfærasl um, að hann svaf hljóðlega, en þrátt fyrir það vært, þessar sjö eða átta blýþungu klukku- stundir, sem liðu, þangað til lögreglustjórinn fór burt. Um morguninn náði ég i á lögreglustöðinni ítarlega skýrslu um alla þá vitneskju, sem aflað hafði verið, og á hinum ýmsu dagblaðaskrifstofum fékk ég eintak af sérhverju blaði, sem í hafði verið birt einhver ákveð- in vitneskja um þetta dapur- lega mál frá byrjun þess og til loka. Ef öllu því er sleppt, sem var óvéfengjanlega afsannað, voru þessar upplýsingar; María Roget fór að heiman frá móður sinni, sem bjó í Rue Pavée St. Andrée, um klukkan niu að morgni sunnudagsins tuttugasta og annars júní 18—. Um leið og hún fór út, lét hún mann að nafni Jacques St. Eu- stache, og engan annan en hann vita, að hún ætlaði að vera þennan dag hjá frænku sinni, sem bjó í Rue des Dromes. Rue des Dromes er stutt og mjó, en fjölfarin aðalgata, sem er ekki langt frá bökkum árinnar, og svo sem tvær mílur, í beina línu frá matsölustað frú Roget. St. Eustache var hinn viðurkenndi biðill Maríu og bjó og borðaði á matsölunni. Hann átti að sækja unnustu sína um dag- setur og fylgja henni heim. En siðari hluta dagsins kom mikil rigning, og þar sem hann gerði ráð fyrir, að hún mundi verða hjá frænku sinni um nóttina (eins og hún hafði gert áður við svipaðar aðstæður), taldi hann ekki nauðsynlegt að halda lof- orð sitt. Þegar leið á kvöldið, heyrðist frú Roget ( sem var lasburða gamalmenni, sjötug að aldri) vera að tala um, „að hún ipundi aldrei sjá Maríu framar“; en varla var tekið eftir þe§sum orðum þá um kvöldið. Á mánudag var gengið úr skugga um það, að stúlkan hafði ekki komið í Rue des Dromes: og þegar dagurinn leið, án þess að af henni fréttist, var hafin hægfara leit á nokkrum stöðum í borginni og umhverfi hennar. Þó var það ekki fyrr en á fjórða degi frá hvarfi hennar, að eitt- hvað fullnægjandi kæmi i ljós viðvikjandi stúlkunni. Þennan dag (sem var miðvikudagurinn tuttugasti og fimmti júní) var maður að nafni Beauvais, sem hafði, ásamt vini sínum, verið að spyrjast fyrir um Maríu i nánd við Barriere du Roule, á bakka Signu gegnt Rue Pavée St. Andrée, látinn vita um það, að lík hefði rétt i þessu verið dregið til lands af nokkrum fiskimönnum, sem hefðu fundið það fljótandi í ánni. Þegar Be- auvais sá likið, gat hann eftir nokkurt hik þekkt, að það var af stúlkunni í ilmvatnaverzlun- inni. Vinur hans var fljótari að bera- kennsl á það. Andlitið var atað dökku blóði. en sumt af því hafði komið úr munninum. Engin froða sást. eins og kemur fram ef menn aðeins drukkna. Engin lita- breyting hafði orðið á frumu- vefjunum. Á hálsinum var mar og fingraför. Handleggirn- ir voru beygðir yfir brjóstið og voru stífir. Hægri höndin var kreppt, en vinstri höndin var hálfopin. Á vinstri úlniið voru tvö hringlaga fleiður, sem virt- ust vera eftir kaðla, eða eftir kaðal, sem undinn hafði verið um úlnliðinn oftar en einu sinni. Hluti af hægri úlnlið var líka mjög núinn, og það var allt bakið líka, en einkum þó við herðablöðin. Þegar fiskimenn- irnir drógu líkið að landi, höfðu þeir fest i það kaðal, en það hafði ekki haft nein áhrif á fleiðrin. Holdið á hálsinum var mjög bólgið. Engir skurðir voru sýnilegir, né heldur mar, sem hefði getað verið eftir högg. Snúrubútur reyndist vera bund- inn svo fast um hálsinn, að hann sást ekki; hann var alveg hulinn í holdinu, og var festur með hnút, sem var rétt undir vinstra eyra. Þetta eitt hefði nægt til að valda dauða. Lækn- isskýrslan hélt óhikað fram hinni dyggðugu skapgerð hinn- ar látnu. Þar var sagt, að henni hefði verið sýnt grimmilegt of- beldi. Líkið var í þess konar ástandi, þegar það fannst, að engum erfiðleikum hefði getað verið bundið fyrir vini stúlk- unnar að bera kennsl á það. Kjóllinn var mikið rifinn og þvældur. Stykki hafði verið rif- ið laust. en þó ekki alveg af, af yfirhöfninni upp á við, og var það um það bil fet á breidd og náði frá neðra faldi og upp að mitti. Það var undið þrisvar ut- a-n um mittið og fest með eins konar hnút á bakinu. Undir- kjóllinn undir pilsinu var úr fínu bómullarefni, og af honum hafði verið rifið alveg af stykki, sem var átján þumlunga breitt — og hafði það verið rifið jafnt og með mikilli vandvirkni. Það reyndist vera vafið lauslega um háls stúlkunnar, og var fest með hörðum hnút. Yfir þetta bómullardúksstykki og snúruna voru festir borðar úr húfu, og var húfan viðfest. Hnúturinn, sem borðarnir úr húfunni voru hnýttir með, var ekki hnútur eins og konur nota, heldur ein- hverskonar sjómannahnútur. Eftir að menn höfðu séð, af hverjum líkið var, var ekki,' eins og venja er, farið með það í líkhúsið (þar sem þetta forms- atriði var óþarft), heldur jarð- að í skyndi ekki langt frá. þeim atað, þar sem komið hafði y»r- ið með það að landi. Fyrir at- beina Beauvais var vandlega þagað um málið, eftir því sem hægt var; og nqkkrjr dagar liðu, aður en nokkuð fór að bera á tilfinningum almennings vegna málsins. Þó tók vikublað eitt málið upp að nýju nokkru síð- ar; líkið var grafið upp og frek- ari rannsókn sett í gang; en ekkert var leitt í ljós umfram það, sem þegar hefur verið skýrt frá. En nú voru fötin sýnd móður og vinum hinnar látnu, og reyndust þau vera hin sömu og stúlkan hafði verið í, þegar hún fór að heiman. Meðan þessu fór fram, óx til- finningaaldan með hverri klukkustund, sem leið. Nokkrir einstaklingar voru handteknir og látnir lausir aftur. Einkum beindist grunurinn að St. Eu- stache; og honum mistókst í fyrstu að gefa skiljanlega skýrslu um verustaði sína á sunnudeginum, þegar María fór að heiman. Skömmu síðar gaf hann þó hr. G— skriflega, eið- festa yfirlýsingu, þar sem gerð var fullnægjandi grein fyrir sérhverri klukkustund sunnu- dagsins. Þegar timinn leið og ekkert var leitt í ljós, komusl á kreik ótalmargar sögusagnir, og blaðamenn lögðu sig fram um að koma með tilgátur. Af þeim vakti sú tilgáta mesta at- hygli, að María Roget væri enn á lífi — að líkiö, sem fundizt 5. TBL. VIKAN 37

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.