Vikan


Vikan - 03.02.1972, Blaðsíða 45

Vikan - 03.02.1972, Blaðsíða 45
1 CREME íFRAICHE Coctailsósa ö^sinnepssósa Cocktailsósa: ^2 dl af tómatsósu í dós af sjrÖum rjóma. Sinnepssósa: 2 msk af sinnepi í dós af sjrðum rjóma. Gott með fiski, pylsum, hamborgurum, steiktu kjöti, kjúklingum, kryddsíld, humar, rœkju o.fl. MJÓLKURSAMSALAN I REYKJAVÍK annars náð því að verða svona valdamikil? Fyrst á sviði stjórn- mála, síðan sem blaðaútgefandi og nú að lokum orðið heiðurs aðnjótandi í stríðinu. Hinn einlægi og ástfangni George gat að lokum fengið Jennie til að samþykkja að þau kunngerðu trúlofun sína. Prins- inn af Wales hafði átt langt samtal við Jennie um þessi áform hennar, og á hún þá að hafa sagt við hann að „hún þekkti hug sinn miklu betur en prinsinn sjálfur“. Það varð nú aðaláhugamál Jennie að synir hennar sættu sig við giftingu hennar. „Mér finnst nokkuð sárt að hafa ekki fengið línu frá hvorugum ykk- ar“, skrifaði Jennie til Jacks. Winston samþykkti þennan ráðahag, en hann var greinilega ekki ofsaglaður. Hann var fyrir löngu búinn að segja að hann ætlaði að losa sig úr hernum, þegar Pretoria væri unnin. Hann gerði það líka og lofaði að koma heim fyrir brúðkaup móður sinnar. Hún ákvað brúð- kaupsdaginn í lok júlímánaðar, þá yrði hann kominn heim. Ekki einn einasti meðlimur Cornwallis-West fjölskyldunn- ar var viðstaddur brúðkaupið, sem fór fram 28. júlí. Þrátt fyr- ir vanþóknun ýmsra og opin- bera gagnrýni, fékk Jennie ótal hamingjuóskir, allsstaðar að úr heiminum. Eitt kortið var með svörtum köntum og á því stóð einfaldlega á frönsku: „Tou- jours en deuil“ (Alltaf syrgj- andi). Það var frá Charles Kinsky greifa. Til allrar hamingju fyrir Ge- orge, gerði faðir hans hann ekki arflausan. Hún fékk áfram sömu upphæð og áður frá fjöl- skyldu sinni í Ameríku. Þau voru því það vel fjáð að þau höfðu efni á að fara í stutta brúðkaupsferð til Belgíu og Frakklands og síðustu vikunni eyddu þau í Skotlandi. Winston var búinn að fá sér íbúð í Lon- don. Nú stóðu fyrir dyrum nýj- ar kosningar í Oldham og Win- ston var reiðubúinn að reyna aftur að bjóða sig fram, og í þetta sinn hafði hann von um að sér gengi betur. Hann ákvað að trufla móður sína á brúð- kaupsferðinni til að fá aðstoð hennar. „Ég vona að þið George getið komið hingað og búið á Queens Hótel í Manchester, síð- ustu fjóra, fimm daga fyrir kosningadag. Það er álitið að nærvera þín geti haft nokkuð góð áhrif á kosningarnar. Jenn- ie kom, en George kom ekki með henni. Winston vann kosn- ingarnar í þetta sinn. George hafði verið ákveðinn, þegar hann tók þá rómantísku ákvörðun að kvænast Jennie og nú þurfti hann að horfast í augu við brauðstritið. Sir Ernest Cass- el, gamall vinur Jennie, sagðist geta haft áhrif í þá átt að út- vega honum starf við Central í London Railway og það varð úr að George varð einn af starfs- mönnum fyrirtækisins í Glas- gow. Það varð því nokkuð furðulegt upphaf búskapar þeirra; George í Glasgow við vinnu sína og Jennie í London, þar sem hún starfaði við út- gáfu Anglo-Saxon Review. Þau hittust um helgar, annaðhvort í London, eða á einhverju sveita- setri hjá vinum hennar. Það var því eins og þau væru ennþá í tilhugalífinu. Það slitnaði upp úr kunnings- skap Winstons og Pamelu nokkrum mánuðum áður. Jack kom heim úr herþjónustu og hann var ennþá ekki ákveðinn í hvað hann tæki sér fyrir hend- ur. Jennie bauð honum að búa hjá þeim George. Hann var ennþá jafn rólegur og aðlaðandi og áður, og fannst henni það dálítið skrítið að búa með þeim báðum, en George var mikið að heiman, þurfti mikið að ferð- ast fyrir fyrirtækið, svo það var eiginlega þægilegt fyrir hana að hafa einhvern af herr- unum i fjölskyldunni heima. Jack kom sér fljótlega í sama starf og hann hafði haft fyrir stríðið. 22. janúar árið 1901, klukk- an 6.30 síðdegis, andaðist Vict- oria drottning. Albert Edward, prins af Wales varð nú Edward VII. Nú rann upp nýtt tímabil í sögunni. Winston sagði við móður sína: „Heldurðu að hann haldi vináttu við þig áfram?“ 10. ágúst árið 1901, var nafn Jennie Cornwallis-West í fyrsta sinn skráð í gestabókina í Blen- heim-höll. Konungurinn vildi heldur hafa látlausa og góða vini í kringum sig, heldur en stásslega hirð. Hann var fyrir löngu búinn að fyrirgefa Jennie það sem honum hafði fundizt vanhugsað hjónaband. Svo nú var Jennie aftur horfin til fyrra lífs og George með henni. Ge- orge kallaði þetta síðar „hina dásamlegu daga“. Hvert sem konungurinn og fylgdarlið hans fór, þá voru þau Jennie og George jafnan í fylgd með honum. Jennie og Winston hittust nú æ sjaldnar, þar sem leiðir þeirra lágu sitt í hvora áttina. Win- ston var orðinn tuttugu og átta ára og Jennie óskaði þess inni- lega að hann kvæntist og stofn- aði heimili. Eftir að hann hafði skilið við Pamelu voru tvær stúlkur búnar að hafna bónorði hans; hin auðuga Muriel Wil- son og hin fagra ameríska leik- kona, Ethel Barrymore. í gesta- bókinni í Blenheim stendur 13. júlí árið 1902 að Ethel Barry- more hafi verið þar í fylgd með Jennie og fjölskyldu hennar. Winston hélt samt alltaf upp- teknum hætti að skrifa móður sini ef hann þurfti á aðstoð hennar að halda og fékk oft léð- an einkaritara hennar. Stutt bréf hans enduðu oft á spurn- ingu um hvort hann væri ekki boðinn til kvöldverðar. Svo leið að krýningardegi. 9. ágúst 1902. Til krýningarinnar í Westminster Abbey var að- eins boðið háaðlinum og kon- unglegu fólki. En í konungs- stúkunni sátu samt nokkrar fagrar konur, sem höfðu verið góðar vinkonur hans. Þar á meðal þáverandi ástkona hans, frú George Koppel, Jennie og tengdamóðir hennar. Bezti vin- ur konungsins, de Soveral 'markgreifi, heyrðist tauta: „Það er víst fátt sem þessar konur vita ekki um Edward kon- ui:g...“ VIII. hefti af Anglo-Saxon Review var helgað þessum at- burði, með forsíðumynd og rit- stjórnargrein. í því hefti voru líka greinar eftir George Bern- ard Shaw, John Oliver Hobbs, Winston Churchill og mág Jennie, Moreton Frewen, sem skrifaði um niðursuðu á fiski, hundrað árum á undan tíman- um. Grein Winstons, sem hann var lengi búinn að lofa móður sinn, var um brezka riddaralið- ið. Þar var líka grein um „fagra heimilislist" eftir ritstjórann og útgefandann, sem kallaði sig frekar Lady Randolph Churc- hill en frú George Corwallis- West. Þótt tímaritið vekti mikla hrifningu, bókmenntalega séð, þá var fjárhagur þess bágbor- 5. TBL. VIKAN 45

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.