Vikan - 24.02.1972, Blaðsíða 9
og flestir óska eftir því að verða
nýtir menn, en það virðist ekki
vera gott að rífa sig upp úr
þessu, þegar menn eru á annað
borð orðnir afbrotamenn.
KL. 22.30
Ég hef verið að spila bridge
við þrjá aðra fanga, en það end-
aði með hávaða og látum. Menn
eru slæmir á taugum hér.
Mér er að fara líkamlega aftur,
þó ég reyni að halda mér við
með æfingum kvölds og morgna,
en það er ekki nema von hérna
í hreyfingarleysinu að maður
slappist.
Baðið hér er líka með end-
emum sóðlegt eins og flest ann-
að. Fangaverðirnir eru flestir
ágætis menn, en þó með und-
antekningum, eins og einn
þeirra sem virðist hafa mikla
ánægju af að liggja á baðher-
bergisglugganum þegar einhver
fer í bað.
Aldrei kemur hér læknir til
að skoða okkur en hér er fyrsta
flokks gróðrastía fyrir berkla
og reyndar allskyns sjúkdóma.
Hér koma menn sem almenn-
ingur kallar róna, skítugir og
allavega og þeir sofa innan um
okkur hina, sem eru þó flestir
hreinlegir og heilbrigðir, þótt
vafi sé oft á því með aðra.
Hið opinbera virðist hafa
ákaflega lítinn skilning á mál-
um þessara manna. Þegar mað-
ur er loks kominn í fangelsið
til að taka út sína refsingu, er
manni kannski sleppt þegar út-
tektin er hálfnuð. Þá er maður
svo sem ekki spurður hvort
maður eigi peninga fyrir mat
og húsaskjóli og því síður hvort
maður hafi vinnu. Maður fær
jú fyrir fargjaldinu til Reykja-
víkur og þar stendur maður, oft
aleinn og verður að byrja á því
að leita sér að vinnu og hús-
næði og svoleiðis er ekki gert
á klukkutíma, heldur getur það
tekið marga daga og jafnvel
vikur — ef það ber þá nokkurn
árangur. Því er það að sama
gamla sagan endurtekur sig
hvað eftir annað: Þægilegast og
bezt er að leita á náðir gamalla
félaga og áður en nokkur veit
af, er fyrrverandi refsifangi
númer þetta eða hitt aftur kom-
inn .af stað í fangelsið. Þetta
kalla ég að spara aurinn en
kasta krónunni og lífshamingju
manna.
11. JÚNÍ
Það er kvöld. Ég er búinn að
sofa í mestallan dag ásamt Sínu
klefafélaga mínum. Annars get-
ur ekki verið eðlilegt hvernig
drengurinn sefur. Á síðustu
tveimur sólarhringum er hann
búinn að sofa í 36 tíma og virð-
ist allur vera að dragast saman.
Mamma sendi mér bækur og
tóbak í dag og einnig fylgdi
með álegg ofan á brauð, sem
ekki veitir af, því slæmt er fæð-
ið hér. Ég hugsa mikið um Dísu
og vona að Guð gefi að hún
hafa það gott. Ég er að vona að
Ragga hafi samband við mig
þegar hún kemur úr fríinu, því
hún er góð stúlka og ég vil ekki
missa vináttu hennar. Hún hef-
ur góð og róandi áhrif á mig en
ég vil ekkert meira okkar í
milli, því eins og sakir standa
get ég ekki gert grein fyrir til-
finningum mínum á réttan hátt.
Ég vil borga skuld mína við
lögin og verða frjáls maður.
Föngum hér er að fjölga og eru
flestir þeirra með um og
yfir ár í dóm. Tveimur var
sleppt út í dag. Þeir eru ágætir
en hafa mjög slæm áhrif hvor
á annan og sagði mér strákur
sem þekkir þá, að hann þyrði
að veðja um að einhversstaðar
yrði brotizt inn í nótt.
KL. 02.20
Ég er ekki farinn að sofa ’enn-
þá, enda höfum við Sína verið
að spila og hann að segja mér
frægðarsögur af sjálfum sér, og
eins er ekki beinlínis tilhlökk-
unarvert að fara hér í rúmið,
ef rúm skyldi kalla. Þegar mað-
ur kemur hingað fær maður tvö
teppi, annað til að breiða yfir
sig og hitt á dýnuna. Ég er samt
viss um, að hvorki koddinn né
dýnan hafa verið þvegin í 100
ár, því hvort tveggja er nær
svart af skít og í dýnunni minni
eru meðal annars stórir blóð-
blettir.
Hann Sína er alveg furðuleg-
ur, nú unir hann sér til dæmis
við að lita í litabók eins og 7
ára dóttir mín gerir, en hann
er 16 ára.
14. JÚNÍ KL. 02.30
Það er að minnsta kosti hálf-
tími síðan ég ætlaði að byrja
að skrifa en hann klefafélagi
minn gerir það ómögulegt með
mælsku sinni. Þó ég sé afbrota-
maður sjálfur er ég að reyna
að leiða hann inn á gæfulegri
brautir, en hann virðist ekki
ætla að láta sér segjast.
Hann elur á þeirri trú að með
því að brjóta sem mest af sér
og ræna, stela og eyðileggja,
hefni hahn sín á þjóðfélaginu.
Ég er eitthvað svo undarleg-
ur. Stundum finnst mér sem
einhver hamingja sé svo nálægt
mér, að það dugi að rétta út
höndina eftir henni en þegar
ég reyni gengur það náttúrlega
ekki. Eftir að ég lenti hérna
inni hefur færzt yfir mig ein-
hver húgarró sem eykst dag frá
degi og ég vona að það hverfi
ekki.
KL.15.15
Séra Hreinn Hjartarson kom
í heimsókn til mín í dag og
spurði hvernig mér liði. Ég
sagði honum eins og satt var,
að þetta væri leiðindalíf en ég
væri nokkurn veginn sáttur við
það. Ég verð jú að taka út mína
hegningu miskunnarlaust. Ég
bað hann að hafa samband við
Gretti frænda minn þegar hann
kemur að utan og biðja hann
að hjálpa mér því hann er
lærður sálfræðingur og getur
kannski læknað mig.
Þeir tveir sem sleppt var út
á fimmtudaginn eru komnir inn
aftur. Þeir brutust inn eins og
búið var að spá og eru nú komn-
ir í úttekt, annar í 8 mánuði og
hinn í 10.
ÚR BRÉFI:
Ég tel engan vafa á að sál-
frœðingur getur hjálpað mér
og öðrum sem álíka er komið
fyrir. Ég hef oft farið fram á
að mér yrði veitt slík aðstoð, en
alltaf hefur mér annaðhvort
verið neitað, eða þá að talinu
hefur verið eytt. Þó ég vildi
leita sjálfur til sálfrœðings eða
geðlœknis þegar ég slepp út, sé
ég ekki fram á að mér verði það
mögulegt fjárhagslega .. .
Eftir fyrra brotið (nauðgun-
artilraunina) var hann færður
til geðrannsóknar og kom í
Framhald á bls. 44.
8. TBLVIKAN 9