Vikan - 24.02.1972, Blaðsíða 19
SOVÉTRÍKIN
Sennilega eina ríki í heimi, þar sem fóstur-
eyðingar eru engum takmörkunum háðar.
„Ég ræð ekki við að eignast fleiri börn,“
segir Vera verkakona. „Við komum ekki
fleiri börnum fyrir í herberginu, sem við
búum í. Þau myndu líka halda vöku fyr-
ir manninum mínum, svo að hann yrði
syfjaður í vinnunni.“
Hún hefur þessvegna ákveðið að láta
eyða fóstri sínu. í Sovétríkjunum eru
engar lagalegar hömlur á þeirri aðgerð.
Konan ákveður ein, hvort hún vill fæða
barnið eður ei. Eina skilyrðið af hálfu
þess opinbera er að aðgerðin sé fram-
kvæmd á einuhverju af sjúkrahúsum rík-
isins. Kostnaðurinn er sáralítill.
SVÍÞJÓÐ
í skólunum fræðast börnin ekki einungis um
hvernig börnin verða til, heldur og hvernig
hægt sé að forðast að þau verði til.
Þegar í gagnfræðaskólum fá börnin fulla
fræðslu um hverskonar ráð til að forðast
þungun. Pillan fæst án lyfseðils, svo að
stúlkur undir lögaldri geta líka keypt
hana. Bæði konum og körlum er frjálst
að láta vana sig. Fóstureyðingar eru leyfð-
ar af heilsufarsorsökum, þegar talið er að
konan sé með arfgengan sjúkdóm, af fé-
lagslegum ástæðum, ef þungunin hefur
orðið af völdum nauðgunar og ef konan
er undir fimmtán ára aldri. Útlendar kon-
ur geta þó alls ekki fengið fóstri eytt í
Svíþjóð.
BRASILlA
Þar eru allir dregnir fyrir rétt, sem láta eyða
fóstri — svo fremi yfirvöldin frétti af því.
íbúar lands þessa eru níutíu milljónir og
íjölgar ört, en engu að síður virðist þar
enginn skilningur ríkja á að takmarka
fjölgunina. Hægt er að vísu að fá Pilluna
gegn lyfseðli, en harðbannað er að reka
áróður fyrir henni sem og getnaðarverjum
og - vörnum yfirleitt.
Fóstureyðing er aðeins leyfð ef talið er
að líf móðurinnar og heilsa barnsins sé í
hættu. Annars er öllum, sem eyða láta
fóstri, stefnt fyrir rétt. Karlmenn mega
þó láta vana sig.
MEXIKÓ
Hver sem Pilluna tekur fer til Helvítis, segir
kirkjan. Og enginn þorir að andmæla því.
Læknisfræðiprófessorum við háskolann í
Mexíkóborg er bannað að flytja fyrirlestra
um getnaðarvarnir, og eiga þeir á hættu
að þeim sé vikið úr starfi ef þeir brjóta
það bann.
Læknar mega aðeins gefa konum Pill-
una ef þær biðja ákveðið um, og þó að-
eins giftum konum. Ekki má dreifa upp-
lýsingum um getnaðarvarnir. Aftur á móti
er í öllum kirkjum landsins rekinn áróð-
ur gegn Pillunni. Kirkjah fullyrðir að
allar konur, sem taka Pilluna, verði
skammlífar og fari auk þess beinustu leið
til helvítis er þær hafa geispað golunni.
Fóstureyðingar eru bannaðar í Mexíkó.
EGYPTALAND
Ríkið hvetur til notkunar Pillunnar, og hún er
mjög ódýr. En fólkinu fjölgar og fjölgar.
íbúar landsins eru þrjátíu og sex milljón-
ir og með hverju ári sem líður bætist enn
ein milljón við. Sadat forseti hefur lýst
því yfir að takmörkun fæðinga sé eitt
brýnasta nauðsynjamál Egypta. Út um
allt land eru miðstöðvar, þar sem fólk fær
ráðleggingar viðvíkjandi getnaðarvörnum,
verjur og lyf. Hver sem kemur með nýja
konu á eina slíka stöð, fær verðlaun.
Vönun er bönnuð fyrir bæði kyn, og
fóstureyðingar sömuleiðis, fyrst og fremst
af trúarlegum ástæðum.
AUSTUR-AFRfKA
Þar telja þær dagana á perlukeðjum.
Stjórnirnar gera talsvert til að fræða fólk
um getnaðarvarnir. Konur fá sérstök
perlubönd að bera um hálsinn til að telja
á þeim út öruggu daganna, en árangur er
sagður lítill. Fóstureyðingar eru bannað-
ar. Julius Nyerere, forseti Tansaníu, hef-
ur sagt jörð Afríku svo gjöfula, að þar
þurfi enginn að hungra, þótt mannskapn-
um fjölgi talsvert. Því er þar í landi ekki
fylgt mjög fast fram áróðri fyrir tak-
mörkunum fæðinga.
8. TBL. VIKAN 19