Vikan - 24.02.1972, Blaðsíða 14
SJÁLFSMYND 2
Skemmtilegu fólki
fyrirgefst margt
1.
Hvað er það versta, sem þér
yetið hugsað yður að fyrir geti
komið?
Að axlaböndin slitnuðu á dans-
(jólfinu á Hótel Sögu i faðmi fag-
urrar meyjar.
2.
Hvar vilduð þér helzt eiga heima?
bar sem hamingjan býr.
3.
Hvaða galla í fari annarra eigið
þér erfiðast með að þola?
Vndirhyggju, sérgæði, hátiðleika,
alvörugefni, trúarvingl, andlegt
snobberí og andfýlu.
4.
Hvaða skáldsögupersónu haldið
þér mest uppá?
Les sjaldan slíkar bókmenntir —
flestar skáldsögur eru sagðar
henta bezt konum og börnum.
5.
Hvaða manneskju metið þér
mest ?
Hinn almenna, glaða og káta les-
anda minn, ef hann fyrirfinnst.
6.
Hvaða samtimakonu dáið þér
mest?
Dr. Selmu listfræðing og Stein-
unni Finnbogadóttur, hina nýju
„klínikdömu" Hannibals, að
ógleymdri Gínu Lólóbrigídu, en
ulls ekki Ólafíu og Kósigínu.
7.
Hvaða kvenhetju úr hókmennt-
unum dáið þér mest?
/Iúsfrú Þórdísi, sem Magnús frái
Syðra-Hóli á Skagaströnd eilífg-
aði í íslenzkum bókmenntum, að
ógleymdum eplapikunum, sem
striplast um allar síður Playboy.
8.
Hver er eftirlætislistmálari yðar?
Kristján i Últímu vegna afkasta,
Jóhann frá Skálum á Langanesi,
sem málaði Gullfoss (vatnsfall-
ið) í fullri stærð, gamla Grandma
Moses, sem byrjaði að mála sjö-
tug og dó með pensil í héndi 100
ára, og dr. Gunnlaug Þórðarson,
sem aðeins hefur málað eina
mynd og hafði vit á að láfa við
svo búið sitja.
9.
En tónskáld?
12. septemper, dr. Gylfi Þ. Gíslg-
son og Dgke Ellington.
10.
Hverja eiginleika teljið þér mestu
máli skipta að karlmaður hafi?
Húmor og hemil á kröftum og
láti ekki kúgast af konum.
11.
En kona?
Lykti ekki af svita undir hönd-
um og vjðar og noti 8xb svitaeyði.
12.
Hvaða kost á manneskju metið
þér mest?
Skemmtilegheit og umburðar-
lyndi. Skemmtilegu fólki fyrir-
gefst margt.
13.
Hvað þykir yður mest gaman að
gera?
Láta undan löngununum.
14.
Hvað liefðuð þér lielzt viljað
verða?
Afburða teiknari, ritsnillingur,
portretmálari og forstjóri fíóka-
útgáfunnar Geðbótar plús